Morgunblaðið - 03.09.2011, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
26.900,-
Haraldur A. Haraldsson
Löggiltur fasteignasali
Einbýlishús eða parhús
að stærðinni 200 fm. óskast strax í
108 Reykjavík og 200 Kópavogur.
Vinsamlega hafið samband símleiðis eða með tölvupósti:
GSM; 690 3665 hallihar@remax.is
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján Jónsson
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra flutti Alþingi skýrslu um stöð-
una í efnahags- og atvinnumálum í
gær og sagði hún margt benda til
þess að hagvöxtur á þessu ári væri
vanmetinn. Atvinnumál yrðu helstu
verkefni ríkisstjórnarinnar á næstu
mánuðum.Ýmsar aðgerðir víða um
land, opinberar og hálfopinberar,
ættu að skila með beinum hætti í
kringum sjö þúsund nýjum störfum
á næstu árum og fjölda afleiddra
starfa.
Þessar fjárfestingar væru upp á
80-90 milljarða króna. Þá væru
ótaldar framkvæmdir í orkuverum
og stóriðju en vænta mætti þess að
þar myndi verða til sambærilegur
fjöldi nýrra starfa. Jóhanna sagði, að
lífskjarasókn væri framundan og þá
sókn yrði að byggja á jafnari skipt-
ingu tekna, samfélagslegri ábyrgð
og virðingu fyrir náttúrugæðum.
„Reynslan sýnir, að valið stendur
ekki á milli hagvaxtar og jöfnuðar
því jöfnuður er forsenda varanlegs
hagvaxtar og samfélagslegrar sátt-
ar,“ sagði Jóhanna. Hlutur launa af
landsframleiðslu hefði aldrei verið
lægri en nú eða 59%, samanborið við
72% árið 2007. Lækkunin svaraði til
13% af landsframleiðslu, um 200
milljarða króna, sem farið hefðu frá
launþegum til fyrirtækja.
„Það ætti að létta mörgum fyrir-
tækjum að standa undir kjarabótum
án þess að hækkuninni sé velt út í
verðlagið,“ sagði ráðherrann.
„Við erum komin af
hættusvæðinu og í skjól,“
sagði Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra
í þingumræðunum í gær.
Minnstu hefði munað að
landið glataði efnahagslegu
sjálfstæði sínu í október 2008 og
ekkert traust verið eftir. Það
traust hefði ríkisstjórnin náð
að byggja upp og það sæist á
því að ríkissjóður hefði fyrr á
árinu sótt sér milljarð dollara með
alþjóðlegri skuldabréfaútgáfu á
ágætum kjörum.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að ríkis-
stjórnin hefði tekið að sér á þessu
kjörtímabili að snúa vondri stöðu í
betri og það hefði mistekist. Ekkert
lát væri á atvinnuleysinu þótt þús-
undir manna hefðu flutt brott frá Ís-
landi. Leiðin út úr því ástandi sem
Íslendingar glímdu við væri að
skapa störf. En ríkisstjórnin neitaði
að horfast í augu við vanda sem allir
aðrir sæju og tímanum á Alþingi
væri löngum stundum varið í mál
sem engu skipti.
Sjálfstæðismenn vilja skapa
störf og lækka skatta
Bjarni sagði, að Sjálfstæðisflokk-
urinn vildi skapa störf, lækka skatta
og sækja fram og að Íslendingar
vildu vinna sig út úr vandanum.
Hann spurði einnig hvaða rétt Ís-
lendingar hefðu til að draga 27 Evr-
ópusambandsríki að viðræðuborðinu
til þess eins að sjá hvað kæmi út úr
þeim viðræðum.
„Af þeirra hálfu liggur málið alveg
skýrt fyrir,“ sagði Bjarni. „Þeir hafa
komið sér saman um reglurnar. Þeir
ætlast til þess að við séum að knýja
dyra, viljum komast þar inn eins og
regluverkið hefur verið samið af
þeim sameiginlega.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði að hér hefði enginn þorað að
fjárfesta á síðustu árum. Allir rækju
sig á það sama: Það þyrði enginn að
fjárfesta í landi þar sem búið væri að
hækka skatta 100 sinnum á nokkr-
um misserum, þar sem ráðherrar
töluðu um þjóðnýtingu og létu eins
og hægt væri að breyta reglum á
einni nóttu.
Þannig hefði ráðamönnum tekist
að stöðva alla þessa fjárfestingu með
því að gera allt öfugt við það sem
gera ætti í kreppuástandi. Vinstri
grænir hefðu ekki enn fundið at-
vinnugrein sem þeir sættu sig við og
Samfylkingin sætti sig við þetta.
Jóhanna heitir lífskjarasókn
Morgunblaðið/Eggert
Hlustað Ráðherrarnir Ögmundur Jónasson og Árni Páll Árnason fylgjast með umræðunum í gær, íbyggnir á svip.
Morgunblaðið/Eggert
Áminning Einhverjir settu upp
fjölda krossa á Austurvelli í gær til
að minna á erfiðleika heimilanna.
Bjarni Benediktsson segir ekkert lát á atvinnuleysinu þótt þúsundir manna hafi flutt úr landi
Sigmundur Davíð segir fjárfesta óttast stöðugar skattahækkanir og reglum sé breytt fyrirvaralaust
við neinn. Hún hafi óskað eftir við-
tali við forstjóra félagsins og sent
honum tölvupóst, en hann hafi ekki
svarað.
Hildur segist ekki sjá fram á að
neitt verði úr þessari ferð. Það taki
langan tíma að skipuleggja nýja
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Um sextíu manna hópur kennara
við Brekkubæjarskóla á Akranesi
sér ekki fram á að komast í náms-
ferð til Boston sem hópurinn var
búinn að skipuleggja í vetrarfríi í
október. Ástæðan er sú að Iceland
Express hefur fellt flugið niður.
„Við vorum búin að skipuleggja
ferð til Boston í vetrarfríi okkar í
október. Við vorum búin að hafa
samband við skóla úti sem ætluðu
að taka á móti okkur. Fólk var búið
að panta hótel og búið að borga inn
á ferðina og gera aðrar ráðstafanir.
Síðan fengu við símtal frá Iceland
Express fyrir nokkrum dögum þar
sem okkur var tilkynnt að búið
væri að fella flugið niður. Við feng-
um þær skýringar að það væru svo
fáir að fljúga á þessum tíma og
ekkert yrði flogið í september og
október,“ segir Hildur Björnsdóttir,
kennari við Brekkubæjarskóla.
Ómældur tími í skipulagningu
Hildur segir að Iceland Espress
hafi boðið hópnum að fljúga til New
York helgina á eftir, en hún segir
að það gangi ekki upp vegna þess
að ferðina hafi átt að fara í vetr-
arfríi kennara. Auk þess hafi hóp-
urinn ekki komið sér upp neinum
tengslum við skóla í New York.
Hildur segir að búið sé að eyða
ómældum tíma í að skipuleggja
ferðina. Skipuleggjendur hafi átt í
samskiptum við skóla og aðra aðila
sem hafa unnið að því með hópnum
að setja saman dagskrá fyrir þessa
daga.
Hildur segist vera afar ósátt við
þessa niðurstöðu. Hún hafi óskað
eftir að fá að ræða við yfirmann hjá
félaginu til að ræða þessa ákvörð-
un, en hún hafi ekki náð sambandi
námsferð og gera nauðsynlegar
ráðstafanir. Tíminn sé einfaldlega
orðinn of stuttur. Hún segist líka
furða sig á hversu litlu máli það
virðist skipta Iceland Express að
þessi stóri hópur komist leiðar sinn-
ar.
Sextíu manna hópur kemst
ekki í námsferð til Boston
Kennarar ósáttir við viðbrögð Iceland Express sem felldi flugferðina niður
Morgunblaðið/Ernir
Flugvélar Sextíu manna hópur kemst ekki í námsferð sína til Boston í
Bandaríkjunum þar sem Iceland Express hefur fellt flugferðina niður.
Samtök atvinnulífsins sendu frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem full-
yrðingum forsætisráðherra um að
hlutur launa af landsframleiðslu
hefði minnkað og væri aðeins
59% en hefði verið 72% var
andmælt.
„Hlutfall launa af
landsframleiðslu var í
raun 60,1% árið
2007 og 51,2% árið
2010,“ segir í yf-
irlýsingunni. „Mis-
munurinn er 8,9% sem eru 137
milljarðar króna á verðlagi ársins
2010. Árið 2007 var hlutur launa í
sögulegu hámarki á Íslandi og lík-
lega heimsmet, a.m.k. finnast eng-
in dæmi um svo hátt hlutfall í al-
þjóðlegum gagnasöfnum OECD
eða ESB. Sérkennilegt er að miða
við það ár en hin háu hlutföll ár-
anna 2004-2007 skýrast af mjög
háu raungengi krónunnar sem ekki
fékk staðist til lengdar. Um það
eru flestir sammála.“
SA gagnrýna ráðherra
HLUTFALL LAUNAGREIÐSLNA AF LANDSFRAMLEIÐSLU
Jóhanna
Sigurðardóttir