Morgunblaðið - 03.09.2011, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011
✝ HermannHólmgeirsson
fæddist í Hellu-
landi í Aðaldal 21.
október 1932.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga 23.
ágúst 2011.
Foreldar hans
voru Hólmgeir
Stefánsson, f. 21.2.
1893, d. 11.6. 1970
og Þorbjörg Árnadóttir, f. 9.4.
1898, d. 14.10. 1961. Systkini
Hermanns voru: Margrét, f.
5.5. 1923, d. 3.12. 1997. Krist-
jana, f. 3.11. 1924, d. 4.4. 2010.
Sigrún, f. 2.8. 1926. Völd-
undur, f. 16.1. 1930, d. 1.1.
1994. Eftirlifandi eiginkona
Hermanns er María Gerður
Hannesdóttir, f. 12.9. 1937, frá
Staðarhóli í Aðaldal. For-
eldrar hennar voru Hannes
Jónsson, f. 24.2. 1900, d. 6.7.
1966. Halldóra Magnúsdóttir,
f. 9.10. 1898, d. 20.7. 1976.
Börn Hermanns og Maríu
eru: 1) Hólmgeir, f. 20.11.
1957. Maki Bryndís Ívars-
dóttir, f. 11.5. 1957. Börn
heimilislíf í söngelskum hópi
stórfjölskyldunnar. Eftir hefð-
bundna skólagöngu fór hann í
smíðadeildina á Laugum. Her-
mann fór mjög ungur að vinna
utan heimilis. Árið 1957
kvæntist hann Maríu G. Hann-
esdóttur frá Staðarhóli og
hafa þau búið þar síðan. Her-
mann vann margvísleg störf í
gegnum tíðina, svo sem bygg-
ingarvinnu, vegavinnu, akstur
stórra sem smárra bíla í alls-
konar þjónustu, var bóndi veð-
urathugunarmaður og land-
póstur. Á Staðarhóli var
bensínafgreiðsla, pósthús, sími
og veðurathugun í mörg ár
svo oft var mikill erill á heim-
ilinu og í mörg horn að líta.
Hermann var virkur maður í
sinni sveit og tók að sér marg-
vísleg ábyrgðarstörf. Söngur
var fyrirferðarmestur þegar
kom að tómstundum. 19 ára
gamall fór hann að syngja með
kirkjukór Grenjaðarstaða-
sóknar og var gerður að heið-
ursfélaga þar eftir 50 ára
starf. Hann var einn af stofn-
endum karlakórsins Hreims
1975 og starfaði um árabil í
honum. Hermann var sístarf-
andi fyrir sig og sína allt til
æviloka.
Útför Hermanns fer fram
frá Grenjaðarstaðakirkju í
dag, 3. september 2011, og
hefst athöfnin kl. 14.
þeirra Birna, f.
12.1. 1993, Her-
mann, f. 20.2.
2000. Fyrir átti
Hólmgeir dótt-
urina Bessý, f.
2.12. 1983, sem á
soninn Alexander
Temujin Gabríels-
son, f. 10.4. 2009.
2) Magnús, f. 24.1.
1963. Maki Anna
Sigrún Jónsdóttir,
f. 1.12. 1968. Börn þeirra eru
Halldóra, f. 14.12. 1990, sam-
býlismaður Aðalsteinn Páls-
son, f. 13.12. 1990. Heiðrún, f.
31.1. 2002. 3) Hanna Dóra, f.
30.6. 1965. Maki Davíð Haf-
steinsson, f. 1.2. 1960. Börn
þeirra Gerður, f. 9.11. 1990,
unnusti Atli Páll Gylfason, f.
22.9. 1989. Hafdís, f. 29.9.
1992. Svandís, f. 12.9. 1997.
Hafsteinn, f. 23.9. 2001. 4)
Bergþór, f. 29.1. 1975. Maki
Anna Marín Ernudóttir, f.
10.1. 1976. Börn þeirra Ægir
Þór, f. 11.5. 2005. Ísak Ernir,
f. 20.1. 2011.
Hermann var yngstur fimm
systkina og ólst upp við gott
Í dag kveðjum við góðan vin og
heiðursfélaga okkar, í bili. Her-
mann var einstaklega gefandi
vinur. Glettinn og stríðinn á góð-
um stundum, en traustur, tröll-
tryggur og hjálpsamur með af-
brigðum þegar á móti blés. Hann
gekk ungur í kirkjukórinn, hann
var jafn ábyrgur í því eins og öllu
sem hann tók að sér að gera.
Hann ásamt Maríu eiginkonu
sinni var mörg ár með olíuaf-
greiðslu fyrir Esso. Það var aldr-
ei lokað, sama hvort komið var á
hádegi, eða kl. 3 að nóttu, alltaf
kom annað þeirra út og afgreiddi
okkur. Einnig voru þau með póst
og símaafgreiðslu lengi, þá hitt-
ust nágrannarnir oft á pósthúsinu
hjá þeim á föstudögum þegar
hann kom úr mjólkur- og fóður-
flutningum sama hvað klukkan
var. Þá voru þau hjónin líka með
veðurathuganir í áratugi, alveg
þar til í vor sem leið. Mörg ár var
hann landpóstur og það var sama
sagan, alltaf brosandi og elsku-
legur á hverju sem gekk. Hann
var kosinn í stjórn kirkjukórsins
árið 1986, var fyrst ritari, en
gjaldkeri frá 1988 til 2009 þegar
hann gaf ekki kost á sér lengur.
Við vorum saman í stjórninni í 16
ár, einhvern veginn æxlaðist það
svo að okkur var falið það mik-
ilvæga starf að þvo upp eftir æf-
ingar. Þetta voru 20-25 bollar og
kaffikannan, en það var merki-
legt hvað það gat tekið okkur
langan tíma. Við ræddum ótrú-
legustu hluti þegar aðrir voru
farnir heim. Oft komu prests-
hjónin niður til okkar í spjall, sér-
lega eftir að séra Þorgrímur kom,
og þau Mjöll áttu með okkur
margar skemmtilegar stundir í
kjallaranum á Grenjaðarstað.
Eitt sinn var verið að ræða eitt-
hvað frá fyrri árum, umræðuefnið
er löngu gleymt, en Þorgrímur
spurði okkur hvernig þetta hefði
verið þegar við vorum um ferm-
ingu. Þá skellihló Hermann og
ætlaði aldrei að hætta, en ég
stundi því upp að við værum nú
ekki fermingarsystkin, enda var
rétt 20 ára aldursmunur á okkur.
Þetta lýsir persónu hans vel,
hann var alltaf í takti við alla
yngri sem eldri.
Hann átti því láni að fagna
ungur að giftast Maríu sinni, og
eiga með henni 4 börn. Það fór
ekkert á milli mála þegar hann
talaði um hana hve mikið hann
elskaði hana og virti. Þegar Her-
mann hafði sungið með kórnum í
50 ár gerðum við hann að heið-
ursfélaga í smáhófi sem við héld-
um, og buðum mökum okkar í 19.
október 2001 í tilefni af afmæli
kórsins sem var stofnaður þann
dag árið 1945. Hann var með okk-
ur í öllum undirbúningi, en okkur
tókst samt að koma honum alger-
lega á óvart.
Núna kveðjum við ástkæran
vin okkar og óskum honum góðr-
ar ferðar. Síðar munum við fylgja
honum eitt af öðru, og vitum að
hann tekur vel á móti okkur með
fallega glettna brosinu sínu í
Sumarlandinu. Maju og fjölskyld-
unni sendum við innilegar sam-
úðarkveðjur. Guð blessi minn-
ingu Manna á Staðarhóli.
F.h. Kirkjukórs
Grenjaðarstaðarkirkju.
Guðný Gestsdóttir.
Enn hefur illvígur sjúkdómur
haft betur og Hermann á Stað-
arhóli er fallinn frá svo alltof, allt-
of snemma.
Mig langar að minnast þessa
góða nágranna og vinar nokkrum
orðum. Hermann að afgreiða
bensín, kemur gangandi snögg-
um, stuttum skrefum, niður
heimreiðina, brosandi og hress.
Hermann að „taka veðrið“ , en
það gerði hann í 50 ár. Hermann
að afgreiða póstinn, já og alla
„kassana“ sem voru pantaðir frá
Akureyri í þá daga. Svo varð
hann póstur og fyrir jólin kom
hann og kallaði neðan úr forstofu
„ baukurinn er kominn, hann er
kominn!“ en það var Mackin-
tosh’s sem vinir okkar í Keflavík
sendu okkur alltaf fyrir jól og
gera enn. Ég man líka svo vel eft-
ir skemmtilegum sunnudagsbílt-
úr sem við fórum suður að Stafni,
mamma og pabbi, Hermann og
Mæja og við öll börnin. Við sett-
umst út í mó og borðuðum nesti,
þætti kannski ekkert merkilegt í
dag, en okkur fannst þetta svo
gaman og það lifir í minningunni.
Alltof snemma missti Her-
mann fallegu söngröddina sína,
en hann söng alltaf í kirkjukórn-
um og svo auðvitað í karlakórnum
líka og alltof snemma hætti hann
að geta dansað, en að syngja og
dansa og skemmta sér og öðrum
var honum svo mikil lífsfylling.
En ég er viss um að nú er hann
farinn að syngja aftur með systk-
inum sínum sem farin eru.
Hermann hafði svo stóran
faðm, bæði í gleði og sorg og hann
var til staðar fyrir mig og okkur á
Brúum á slíkum stundum. Þegar
komið var að fæðingu Borgars
míns keyrði Hermann mig til
Húsavíkur. Hann átti fólksbíl og
það þótti betra að flytja mig í hon-
um, en jeppa pabba. Þetta var að
vorlagi um miðja nótt og drullu-
pyttir á Brúargerðinu, svo að
hann mátti keyra út að Hólma-
vaði og hringinn, en taldi það ekk-
ert eftir sér og verð ég honum
alltaf þakklát fyrir. Hann beið
líka með stóran faðm við klukkna-
portið á Grenjaðarstað, bæði þeg-
ar við komum með Óla og pabba,
hinsta sinn í kirkjuna og hann
keyrði pabba síðasta spölinn!
Hermann átti svo sterka og óbil-
andi trú og það var svo gott, já al-
veg ómetanlegt að geta talað við
hann þegar Þórhallur lá sína
banalegu. Hann sagði mér líka
frá sínum veikindum og erfiðleik-
um, sem hann þó bar af miklu
æðruleysi og hann var ekkert
hræddur við að fara, þótt hann
væri auðvitað ekki sáttur við það.
Eftir að mamma varð ein á
Brúum hafa allir góðu grannarnir
okkar verið svo hjálpsamir og
yndislegir og þá ekki síst hjónin á
Staðarhóli sem alltaf voru boðin
og búin að hjálpa, að taka hana
með á samkomur, fylgjast með
hvort ekki væri allt í lagi og
hringja og spjalla og fyrir það vil
ég þakka!
Ég votta Mæju og allri fjöl-
skyldunni mína dýpstu samúð og
bið Guð að styrkja þau og blessa.
Ég kveð Hermann á Staðarhóli
með sorg í hjarta, en minningin er
björt og falleg og mun lifa.
Hafðu þökk fyrir allt, góði vin-
ur.
Þorgerður Gísladóttir.
Okkar ástkæri tengdafaðir og
afi er látinn.
Hans er sárt saknað en allar
góðu minningarnar sem við eig-
um um hann munu ylja okkur um
ókomna tíð. Það hefur verið okk-
ur ómetanlegt að hafa Hermann
afa hjá okkur frá því er við stofn-
uðum fjölskyldu á Akureyri.
Á Staðarhóli er töluð skýr og
kjarnyrt norðlenska svo tekið er
eftir. Afi hafði mikinn orðaforða
um veður, færð og ástand vega en
hann hafði mikið vit á veðri eftir
öll árin sem veðurathugunarmað-
ur. Það var gaman að ræða þessi
mál við hann þar sem nákvæmnin
og fagmennskan var í forgrunni.
Þegar við systkinin komum úr
sveitinni aftur í skólann eftir að
hafa verið í vist á Staðarhóli með
einhver ný orð frá afa fengum við
stundum athugasemdir frá félög-
unum: „þú talar svo gamaldags“
Þegar brjóta átti vegg, múra í
holu, mála eða leggja pípulögn,
svo ekki sé nú minnst á að gera
við bílinn var ávallt hægt að leita í
smiðju Hermanns því það var
varla til það verk sem hann hafði
ekki unnið við um ævina.
Afi var sérstaklega góður bíl-
stjóri og ávallt látinn keyra ef
velja þurfti á milli bílstjóra þegar
farið var í sunnudagsbíltúr eða ef
þurfti að aðstoða bíla í ófærð.
Segja má að hann hafi keyrt nær
alla sveitavegi norðanlands og
komið heim að flestum bæjum í
ferðum sínum er hann vann sem
póstur og flutningabílstjóri.
Við krakkarnir höfðum óskap-
lega gaman af því að spila á spil
við afa hann kenndi okkur að
leggja kapla og spila hin ýmsu
spil. Það var oft fjör við eldhús-
borðið þegar afi var að stríða okk-
ur í spilunum um leið og hann
gerði „like“ með sínum bogna
þumalfingri. Undir stjórn afa var
mikið hlegið þegar æft var að loka
öðru auganu eða að blístra. Á eld-
húsborðinu var ávallt randalína,
nýlagað kaffi og köld mjólk fyrir
okkur krakkana.
Þegar út var komið fengum við
að stýra dráttarvélinni, leika okk-
ur í heyinu, aðstoða við að taka
veðrið eða hjálpa við að dytta að
húsunum.
Við kveðjum okkar elskulega
tengdapabba og afa með fullt
fangið af heilræðum, hlýjum og
góðum minningum.
Davíð Hafsteinsson
og afabörnin Gerður, Haf-
dís, Svandís og Hafsteinn.
Hermann
Hólmgeirsson
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Guðríðarkirkja
auglýsir sal til leigu:
Fyrir erfidrykkjur, brúðkaup, fermingar, fundarsalur.
Uppl. S. 577 7770 og 663 7143 eða
kirkjuvördur@grafarholt.
www.gudridarkirkja.is
✝
Frænka okkar og vinkona,
ÁSLAUG HAFLIÐADÓTTIR
lyfjafræðingur,
Bjarkargötu 12,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnu-
daginn 21. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn
5. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Hjördís, Jóhanna, Anna Jóna, Óskar Óskarsbörn
og fjölskyldur,
Svanhildur Magnúsdóttir og fjölskylda.
✝
Okkar kæri
JÓN INGI ÁGÚSTSSON
rafvélameistari,
Bugðulæk 8,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 25. ágúst.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 5. september kl. 13.00.
Erla Svafarsdóttir,
Pétur Hafþór Jónsson,
Bergdís Þóra Jónsdóttir,
Ingimar Emil Jónsson,
Börkur Hansen,
Sigurlaug Hansen,
Erpur Snær Hansen,
Broddi Reyr Hansen,
makar, börn og barnabörn.
✝
Okkar hjartans þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
STEFÁNS JÓNSSONAR
pípulagningarmeistara,
síðast til heimilis í Sóltúni,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Sólvangs Reykjavík.
Eva Óskarsdóttir,
Margrét Stefánsdóttir, Ingvar J. Karlsson,
Ingvar Stefánsson, Áslaug Hartmannsdóttir,
Ásta Edda Stefánsdóttir, Birgir Björgvinsson,
Ellert Kristján Stefánsson, Helga Veronica Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur
kærleik og stuðning við fráfall okkar elskuðu
MAGNEU GUÐNÝJAR STEFÁNSDÓTTUR,
Bragavöllum 4,
Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Heiðarskóla fyrir skilning og stuðning á
erfiðum tíma. Einnig þökkum við Kór Keflavíkurkirkju, hljóðfæra-
leikurum, einsöngvurum og sóknarpresti, sr. Skúla Ólafssyni,
fyrir einstaklega fallega og hlýja útför frá Keflavíkurkirkju.
Þorsteinn Sæmundsson,
Dagný Gísladóttir, Eysteinn Eyjólfsson,
Rán Ísold og Saga,
Stefán Magnús Jónsson, Ester Sigurjónsdóttir,
Lilja María, Magnea Guðný og Eva Sólan,
Hildur Björg Jónsdóttir, Rúnar Eyberg Árnason,
Alexsandra Bernharð, Katrín Ösp Eyberg
og Ósk Eyberg,
Helma Þorsteinsdóttir, Erlingur Reyr Klemenzson,
Sindri Snær, Klemenz Fannar og Ívar Orri,
Sigursteinn Þorsteinsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA MARÍA GESTSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 29,
Reykjavík,
andaðist á bráðamóttöku Landspítalans,
Fossvogi, miðvikudaginn 24. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 6. september
kl. 15.00.
Gestur Valgarðsson, Hrefna Snorradóttir,
Eyjólfur Valgarðsson, Kristín Þóra Garðarsdóttir,
Valgarður Daði Gestsson, Þórunn Arnardóttir,
Garðar Eyjólfsson, Eva Dögg Kristjánsdóttir,
Hildigunnur Jóna Gestsdóttir,
Brynhildur María Gestsdóttir,
Aníta Líf Valgarðsdóttir,
Saga Garðarsdóttir.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800