Morgunblaðið - 03.09.2011, Qupperneq 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011
Þá er kallið komið
hjá honum Guðjóni. Það er sárt að
sjá á eftir honum. Við kynntumst í
janúar 1999 þegar hann fór að
vinna á ferjunni Sæfara og sigla til
Grímseyjar. Ég mun sakna hans
sárt á bryggjunni í Grímsey þegar
Sæfari kemur þangað þar sem ég
vinn við afgreiðslu á ferjunni. Það
er svo margt sem kemur í huga
þegar ég hugsa um hann Guðjón.
Það var t.d í einu slúttinu hjá Sæ-
fara þegar Guðjón spyr mig hvort
ég dansi Jenka og sagði ég svo vera
en við vorum ekki sammála hvern-
ig sá dans var, tók ég upp símann,
hringdi í mömmu sem kann þann
dans og hafði ég rétt fyrir mér,
gerði hann svo mikið grín að mér
útaf þessu og bara síðast þegar við
hittumst rifjaðist þetta upp og var
mikið hlegið. Hann sagðist alltaf
dansa betur þegar hann væri búinn
með nokkur glös en ég sagði það
villu því hann dansaði við mig líka í
Grímsey eitt sinn án þeirra, þá
sagði einn að það væri svo gaman
að sjá tvo lyftara dansa saman.
Hann Guðjón var sérstaklega
barngóður, t.d. þegar Bjarni fór
með ferjunni fór hann yfirleitt
beint upp í stýrishús og spjallaði
við Guðjón. Barst þá talið mjög oft
að hestunum hans og bauð hann
Bjarna að koma til sín á hestbak
sem og hann gerði. Hann var svo
ánægður með flotta hesthúsið sitt
sem var málað í hvítu og var sér-
lega snyrtilegt og flott. Það var
virkilega gaman að líta til hans
þangað. Var hann nú ekki ánægður
með mig að vilja ekki fara á hest-
bak hjá sér.
Eitt skipti vorum við hjónin að
Ásgeir Guðjón
Kristjánsson
✝ Ásgeir GuðjónKristjánsson
fæddist á Ísafirði
11. ágúst 1946.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
11. ágúst 2011.
Útför Ásgeirs
Guðjóns fór fram
frá Dalvíkurkirkju
20. ágúst 2011.
plana ferðalag um
Vestfirðina og þá
vildi hann segja mér
allt um þá og hvar við
áttum að stoppa.
Hann merkti allt inn
á kortið hjá mér og
það var svo gaman að
skoða þá staði sem
hann benti okkur á.
Síðasta skiptið sem
ég sá hann var 24.
júlí, þá komum við
Maggi til þeirra hjóna á Dalvík og
stóð þá til Færeyjaferðin þeirra.
Það var svo gaman að ræða um
ferðina við hann því við vorum ný-
lega búin að vera þar og gat ég sagt
honum pínulítið um Færeyjar.
Mikið var ég svo ánægð að vita að
hann gat notið ferðarinnar því eitt
sinn hafði hann sagt mér að sig
langaði mikið þangað.
Elsku Guðjón, þín verður sárt
saknað hjá okkur, megi guð geyma
þig. Elsku Bergljót og fjölskylda,
megi góður guð styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Ykkar vinir
Anna María og fjölskylda,
Grímsey.
Nú er komið að því að kveðja
hann Gauja okkar. Þegar ég var lít-
il bjó ég í Víkinni eins og Gaui og
Bergljót móðursystir mín. Þetta
var klárlega mitt annað heimili og
ef eitthvað bjátaði á gat ég alltaf
komið til þeirra. Gaui var líka alltaf
til í að leika við okkur börnin og
manni fannst ekkert skemmtilegra
en að fá að klifra á honum. Líka
löngu eftir að pabbi sagði að ég
væri orðin of stór fyrir að klifra á
sér var Gaui enn til í þetta. Gaui
var minn annar pabbi, enda hafði
ég, jú, beðið um það sérstaklega,
mig vantaði nefnilega pabba með-
an pabbi minn var á sjónum. Björg
Jónína eldri dóttir mín sagði ein-
mitt það sama og maður hugsaði
þegar hún heyrði af því að Gaui
væri fallinn frá: „Hann sem var svo
skemmtilegur alltaf.“
Jú, hann var barnakarl og sér-
lega stríðinn gat hann verið. Ég leit
mikið upp til hans alltaf og trúði
alltaf öllu sem hann sagði lengi
framanaf. Til dæmis einu sinni
þegar við krakkarnir máttum ekki
klifra á honum af því hann hafði
farið í aðgerð til að láta fjarlægja
gallsteina. Hann sagði okkur að
þetta væru steinar sem hann hefði
borðað þegar hann var lítill strák-
ur. Þessu trúði ég í þónokkur ár.
Ég man eftir mörgum góðum
dögum með allri fjölskyldunni í
víkinni og mun sakna þess að síð-
ustu ár hef ég ekki haft tækifæri til
að hitta ykkur eins mikið og áður.
Ég hef verið í námi og af þeim or-
sökum ekki haft möguleika á að
hitta ykkur eins oft og mig hefði
langað og á dálítið erfitt með það
núna.
Ég gifti mig 18. júní síðastliðinn
og varð þess heiður aðnjótandi að
Gaui og Bergljót komu í brúðkaup
okkar. Þar sem ég bý erlendis
hafði ég ekki heyrt af því að
krabbameinið væri komið svona
langt hjá Gauja því fjölskyldan
vildi ekki að ég þyrfti að hafa
áhyggjur af þessu í veislunni. Þetta
varð til þess að ég dró hann „Gauja
pabba“ hvað eftir annað út á gólfið
og við dönsuðum og tvistuðum og
skemmtum okkur mjög vel. Ég
hefði eflaust ekki þorað/lagt í að fá
hann svona oft út á gólfið með mér
ef ég hefði vitað af því að hann væri
orðinn svona veikur af hræðslu við
að hann væri of brothættur.
Það er með trega í hjarta sem ég
kveð þig nú, takk, elsku Gaui minn,
fyrir þann innblástur sem þú gafst
mér sem barni. Þú hjálpaðir í
gegnum erfiðan tíma lítilli óöruggri
barnasál. Verst að hafa ekki getað
sagt þér það sjálf. Takk fyrir mig.
Elsku Bergljót, Sigga, Palli,
Dagbjört og Þórhildur og fjöl-
skyldur, ég votta ykkur samúð
mína.
Þórunn Ágústa Þórsdóttir
og fjölskylda.
Fallinn er frá langt um aldur
fram einstakur fjölskylduvinur og
gleðigjafi, Ásgeir Guðjón Krist-
jánsson, Gaui. Minningar hrannast
upp frá fyrstu æskuárum í Bolung-
arvík þegar krakkaskarinn þeirra
Agga og Binnu annars vegar og
þeirra Addýjar og Dengsa hins
vegar, hljóp í gegnum íbúð móður
Gaua og fjölskyldu áleiðis upp á
efri hæðina á Skólastíg 26 þar sem
Sossa amma bjó. Þrátt fyrir oft á
tíðum mikla fyrirferð á hlaupunum
í gegn, heyrðist sjaldan styggð-
aryrði fjölskyldunnar á neðri hæð-
inni og þar átti Gaui, þá ungur
maður ekki síst hlut að máli. Með
einstakri lífsgleði sinni, umburðar-
lyndi og ánægju af börnum, gerði
hann þetta gegnumstreymi barna-
skarans að eðlilegasta hlut í heimi,
gantaðist við okkur, stríddi okkur
og lék við okkur svo hvert barn
hændist að honum án vandræða.
Hann var einstaklega barngóður
og gladdi okkur oft með ýmsu góð-
gæti þegar hann var í landi. Þegar
við systurnar komum á unglings-
árin fylgdist hann alltaf með okkur
og „gætti“ okkar þegar við vorum
unglingar í málningarvinnu að
mála bátana. Eftir að Sossa amma
flutti í litla húsið á Aðalstrætinu
kom hann oft í eldhúsið og hló og
sagði sögur. Aldrei gleymist þegar
hann kom í eldhúsið til að kynna
hana Bergljótu sína. Ástina í lífi
sínu sem hann hefur gengið með
lífsgönguna síðan.
Símtölin hans í gegnum tíðina,
einkum eftir að hann flutti norður,
færðu manni jafnan kraft, hlátur,
lífsgleði og trú á lífið. Gaui lifði líf-
inu til hinsta dags. Dagarnir í sum-
ar þegar hann dvaldi hjá okkur í
Bolungarvík ásamt Bergljótu sinni
munu seint líða úr minni. Við erum
þakklátar fyrir samleiðina með ein-
stökum manni, einstökum mann-
vini sem átti jafnan ríkulega til af
kærleik og jákvæðni öðrum til
handa. Það vita þeir sem þekktu
hann.
Góður Guð blessi minningu Ás-
geirs Guðjóns Kristjánssonar sjó-
manns og mannvinar og veiti Berg-
ljótu, Dagbjörtu, Palla, Siggu og
fjölskyldum þeirra og systrum
hans Svönu og Ingunni styrk í
þeirra mikla missi.
F.h. móður og okkar systkin-
anna,
Ingibjörg og Soffía
Vagnsdætur, Bolungarvík.
Elsku besti bróðir
minn.
Í dag kveð ég þig með miklum
söknuði. Mikið þykir mér það
óraunverulegt að sitja hérna og
vera að skrifa minningargrein
um þig.
Þann 18. águst hringdu strák-
arnir þínir í mig og sögðu mér
þær hræðilegu fréttir að þú værir
farinn frá okkur. Ég veit ekki
hvað ég get sagt. Held að ég sé
ekki búin að meðtaka það al-
mennilega að þú sért farinn frá
okkur. Það eru bara tvö ár síðan
við kvöddum Hafdísi systur okk-
ar og fjórum mánuðum síðan
kvöddum við pabba og nú ert þú
farinn frá mér, elsku Jói minn.
Eins og flest allir vita þá
bjóstu úti í Danmörku meira og
minna alla þína ævi. Það var allt-
af svo gaman að heimsækja þig til
Kaupmannahafnar, oft komum
við Jónas til þín og alltaf stóðu
dyrnar þínar opnar fyrir okkur
eins og fyrir alla aðra sem þú
þekktir. Þannig varstu bara, allt-
af með dyrnar opnar fyrir fjöl-
Jóhann Sigfús
Sigdórsson
✝ Jóhann SigfúsSigdórsson
fæddist í Reykjavík
19. apríl 1956. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 18.
ágúst 2011.
Jóhann var jarð-
sunginn frá Selja-
kirkju 26. ágúst 2011.
skyldu þína og vini
og alltaf tilbúinn
að hjálpa ef þú
gætir. Það er ein
ferð sem ég man
alltaf eftir. Árið
1989 þá komu ég,
Jóhanna og Edda í
heimsókn til þín og
við vorum hjá þér í
tvær vikur. Þú
fórst með mig og
stelpurnar í dýra-
garðinn, tívolíið og við löbbuðum
út um allt og skoðuðum allt það
sem hægt var að gera í Kaup-
mannahöfn og við skemmtum
okkur öll alveg rosalega vel og við
eigum allar margar skemmtileg-
ar minningar og myndir frá þess-
um tíma og vil ég þakka þér sér-
staklega fyrir þessa ferð.
Margar eru minningarnar sem
ég, Jónas og dætur mínar eigum
um þig og erum við öll þakklát
fyrir að eiga þær og þakklát fyrir
að hafa haft þig í lífi okkar.
En ég kveð þig nú, elsku bróð-
ir minn, og ég þakka þér fyrir all-
ar samverustundirnar okkar og
allar minningarnar okkar sem ég
mun varðveita í hjarta mínu.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín systir,
Hanna.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
BJÖRNS BALDVINS HÖSKULDSSONAR
byggingarverkfræðings,
Álfaskeiði 73,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítalans og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir
góða umönnun í veikindum hans.
Sigrún Arnórsdóttir,
Höskuldur Björnsson, Auður Þóra Árnadóttir,
Arnór Björnsson, Bára Jóhannsdóttir,
Baldvin Björnsson, Helga Rúna Þorleifsdóttir,
Þórdís Ragnhildur Björnsdóttir, Michael Teichmann
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýju
og vináttu við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARGRÉTAR S. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Furugerði 1,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Hjálmar B. Gíslason,
Snorri Hjálmarsson, Sigríður L. Guðjónsdóttir,
Gísli Hjálmarsson, Soffía Nönnudóttir,
Berglind Sigurðardóttir,
Ína Dóra Hjálmarsdóttir, Benóný Guðjónsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengda-
föður og afa,
SVANS KRISTJÁNSSONAR,
Hafnarbergi 16,
Þorlákshöfn.
Sérstakar þakkir til starfsfólks G-11 deildar Landspítalans fyrir
einstaka umönnun og hjartahlýju.
Edda Laufey Pálsdóttir,
Laufey Elfa Svansdóttir, Tor Ulset,
Páll Kristján Svansson, Kristín Berglind Kristjánsdóttir,
Guðrún Ingibjörg Svansdóttir, Bjarni Jónsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
SVAVARS FRIÐLEIFSSONAR,
Litlagerði 3,
Hvolsvelli.
Guð blessi ykkur öll.
Marta Arngrímsdóttir,
Arngrímur Svavarsson, Guðrún H. Hlöðversdóttir,
Jón Marteinn Arngrímsson,
Bjarni M. Sigurðarson,
Ragnar H. Rögnvaldsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra
sonar, unnusta og bróður,
SIGÞÓRS BESSA BJARNASONAR,
Næfurási 3,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Landspítala við Hringbraut, í Fossvogi, líknardeildar í Kópavogi
og heimahlynningar sem og öllum öðrum sem önnuðust Bessa
af einstakri alúð og umhyggju í veikindum hans.
Guðrún E. Baldvinsdóttir, Bjarni Bessason,
Erna Jóna Guðmundsdóttir,
Magnús Snorri Bjarnason,
Sólveig Bjarnadóttir.
✝
Öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
HALLDÓRU SIGURÐARDÓTTUR
lögfræðings,
Flyðrugranda 8,
Reykjavík,
sendum við hugheilar þakkir.
Þökkum líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sérstaklega fyrir hlýju og velvild sem henni var sýnd þar
og fjölskyldu hennar.
Systkini Halldóru og fjölskyldur þeirra.
✝
Innilegar þakkir til ykkar sem sýnduð samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
JÓNÍNU BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Teigi II,
Fljótshlíð.
Hrafnhildur Árnadóttir, Páll Theódórs,
Guðbjörn Árnason, Hlín Hólm
og aðrir aðstandendur.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall og útför okkar hjartkæru
SIGRÚNAR DAGBJARTSDÓTTUR
frá Seldal í Norðfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
deildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup-
stað og annarra umönnunaraðila fyrir um-
hyggju og aðstoð.
Börn, tengdabörn, barnabörn, langömmubörn,
langalangömmubörn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför bróður
míns og frænda,
SIGURÐAR ÞORKELSSONAR,
til heimilis á Strandgötu 90,
Eskifirði,
sem lést á dvalarheimili aldraðra á Eskifirði
laugardaginn 20. ágúst.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hulduhlíðar fyrir ómetanlegan
hlýhug og hjálp í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Þorkelsdóttir, Ingvar Gunnarsson
og aðrir aðstandendur.