Morgunblaðið - 03.09.2011, Side 38
38 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
2 6 9 8
3 6 1
5 8 2 4
5
4 5
6 2
6 1 4 9
3 8
9 8 1
8 9 2
5 4
3 2 8
5 8
4 3 9
1 6 5
9 2
2 3 5 4
9 4 5 6
7 2
9 6
8 4 1
7 1 5
4 5 6 2
9 3 6
7 2
4 8
6 8 1
9 3 4 2 1 5 7 8 6
5 1 2 8 7 6 3 4 9
6 8 7 4 9 3 2 5 1
2 4 1 5 6 7 9 3 8
8 5 6 9 3 2 4 1 7
3 7 9 1 4 8 5 6 2
1 2 8 7 5 4 6 9 3
4 9 3 6 2 1 8 7 5
7 6 5 3 8 9 1 2 4
9 6 4 7 1 3 2 5 8
3 5 2 8 4 9 1 6 7
8 1 7 6 5 2 9 3 4
2 9 1 5 6 8 7 4 3
5 7 6 3 2 4 8 1 9
4 3 8 1 9 7 5 2 6
7 8 5 4 3 1 6 9 2
1 4 9 2 7 6 3 8 5
6 2 3 9 8 5 4 7 1
8 7 1 5 2 4 6 9 3
5 2 4 9 6 3 1 7 8
9 6 3 7 8 1 2 4 5
7 3 5 2 4 6 8 1 9
1 4 8 3 7 9 5 6 2
2 9 6 8 1 5 4 3 7
6 8 2 4 3 7 9 5 1
3 1 9 6 5 8 7 2 4
4 5 7 1 9 2 3 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 3. september,
246. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Þú hefur frá blautu
barnsbeini þekkt heilagar ritningar.
Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar
fyrir trúna á Krist Jesú.
(2. Tím. 3, 15.)
Ætli það sé algengt að Bedúínar íSahara býsnist yfir öllum
þessum sandi í eyðimörkinni? Vík-
verji spyr sig stundum að þessu þeg-
ar hann heyrir landa sína kvarta und-
an veðrinu á Íslandi. Vita þeir ekki að
Ísland er í Norður-Atlantshafi, upp
við heimskautsbauginn?
x x x
Þrátt fyrir að ríflega 1.100 ár séufrá landnámi og ágætar upplýs-
ingar til um búsetuskilyrði hér á landi
finnst mörgum bara grautfúlt að hér
ekki sé alltaf logn, hlýtt og þurrt.
Hversu langt erum við komin frá
uppruna okkar, sögu og þjóðmenn-
ingu þegar það virðist vera álitið eitt-
hvert sérstakt afrek eða undarleg
sérviska að hjóla eða ganga til og frá
vinnu? Fóru ekki forfeður okkar allra
sinna ferða fótgangandi eða í besta
falli á hestbaki? Fyrir ekki svo mörg-
um áratugum var það álitinn algjör
lúxus að eiga einkabifreið og það var
algengara en flesta grunar að fólk
hjólaði eða gekk í vinnuna. Nú eru
það talin heilög mannréttindi að geta
ekið bíl frá heimili sínu og lagt í
ókeypis bílastæði alveg upp við
vinnustaðinn. Raunar er bara stór-
furðulegt að ákvæði um þetta séu
ekki fyrir löngu komin í stjórn-
arskrána.
x x x
Það er ekkert alltaf auðvelt aðhjóla eða ganga langar leiðir í
roki og rigningu. En það er bara eðli-
legt þurfa að kljást við veðrið. Það er
hluti af því að búa í þessu landi.
x x x
Víkverji heyrði um daginn sögu afbrottfluttum Íslendingi sem fór
með barnið sitt í leikskóla í Osló. Þá
var 20 stiga frost og hann spurði, eins
og Íslendingum er tamt, hvort börnin
yrðu ekki bara inni þann daginn.
Leikskólakennarinn hváði og sagði
(u.þ.b.): „Nei. Ef þau ætla að búa í
þessu landi verða þau að geta verið
úti í svona veðri.“
Það hlýtur að mega gera sömu
kröfu til fullorðinna Íslendinga og til
norskra leikskólabarna. Eða hvað?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skadda, 4 megn-
ar, 7 siða, 8 grobbs, 9
sníkjudýr, 11 nytjalanda, 13
glens, 14 reikar, 15 ill-
menni, 17 spírar, 20 skel-
dýr, 22 vindhviðan, 23 fing-
ur, 24 glatar, 25 vitlausa.
Lóðrétt | 1 fótþurrka, 2
ástundar, 3 einkenni, 4 sam-
sull, 5 les, 6 blómið, 10
fjandskapur, 12 eðli, 13
guggin, 15 úr því að, 16 ber,
18 áfanginn, 19 byggja, 20
flanar, 21 hermir eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 mannsefni, 8 buddu, 9 tíbrá, 10 tól, 11 tunga,
13 arinn, 15 harms, 18 örmum, 21 kot, 22 losti, 23 urinn,
24 mannalæti.
Lóðrétt | 2 aldin, 3 nauta, 4 eitla, 5 nebbi, 6 ábót, 7 háin,
12 góm, 14 rór, 15 hold, 16 raska, 17 skinn, 18 ötull, 19
meint, 20 munn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn-
@mbl.is
Fjaðrafok.
Norður
♠ÁKG4
♥106
♦Á62
♣10432
Vestur Austur
♠9872 ♠D65
♥2 ♥G987
♦G97543 ♦108
♣98 ♣G765
Suður
♠103
♥ÁKD543
♦KD
♣ÁKD
Suður spilar 7G.
Þótt austur líti engan veginn út
eins og páfugl státar hann þó af
þremur skautfjörðum – einni
drottningu og tveimur gosum. Þær
fögru fjaðrir verða allar plokkaðar
af honum, ein af annarri. Útspilið
er spaðanía.
Sagnhafi telur á fingrum og tám
upp í fjórtán slagi miðað við skikk-
anlega hjartalegu, en ellefu að öðr-
um kosti. Eins og sönnum meistara
sæmir gerir hann ráð fyrir því
versta: Drepur á ♠Á, leggur niður
♥Á í leit að blönkum gosa, en bíður
svo með líflitinn og þreifar fyrir sér
til hliðar, tekur þrjá efstu í laufi og
tígulhjón. Fer síðan inn í borð á ♠K
og til að spila tígulásnum. Upphefst
þá mikið fjaðrafok í austur, sem
getur ekki endað nema á einn veg –
með þrettán slögum.
3. september 1919
Flogið var í fyrsta sinn á Ís-
landi, í Vatnsmýrinni í Reykja-
vík. Fólk var undrandi að sjá
„nýjasta galdraverk nútímans
svífa loftsins vegu,“ að sögn
Morgunblaðsins.
3. september 1939
Aukafréttir voru í Ríkis-
útvarpinu kl. 11.48 á sunnu-
dagsmorgni þar sem flutt var
sú fregn að Bretar hefðu sagt
Þjóðverjum stríð á hendur.. Í
aukablaði Morgunblaðsins
daginn eftir var aðalfyr-
irsögnin: „Það er stríð.“
3. september 1982
Sýning á verkum Bertels
Thorvaldsen var opnuð á
Kjarvalsstöðum, en hún var á
vegum Thorvaldsenssafnsins í
Kaupmannahöfn.
3. september 1988
Brúin yfir ósa Ölfusár var
formlega tekin í notkun.. Leið-
in milli Þorlákshafnar og Eyr-
arbakka styttist úr 45 kíló-
metrum í 15 kílómetra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Sumir mega helst ekki vera að því að halda upp á
viðburði eins og afmæli. „Oftar en ekki hefur það
lent á virkum dögum,“ segir tónlistarmaðurinn og
Apparatsmaðurinn Úlfur Eldjárn, sem er á öðru
ári í tónsmíðanámi við Listaháskólann og er 35
ára í dag. „Á tímabili var ég duglegri við að halda
bara upp á það einn.“ Nú eru tímamótin um helgi
og verður haldið upp á daginn að hætti dóttur-
innar Dýrleifar sem verður 6 ára þriðjudaginn 6.
september. Feðginin verða með sameiginlega af-
mælisveislu. „Þannig var það líka þegar ég var
þrítugur og þá hvarf afmælið mitt algerlega í
skuggann af eins árs afmæli hennar. Afmælið mitt verður því eig-
inlega barnaafmæli.“
Helgin er eitt stórt fjölskyldu- og vinaafmæli. Skúli Óskarsson,
tengdafaðir Úlfs, er 63 ára í dag, Ari, bróðir hans, verður þrítugur á
mánudag og Úlfi er boðið í tvær afmælisveislur í kvöld. „September
er þétt setinn,“ segir hann og bendir á að platan Pólyfónía með org-
elkvartettnum Apparati komi út í Danmörku, Þýskalandi og víðar á
mánudag. Sveitin þurfi að fylgja plötunni eftir ytra en annars ætli
hann að einbeita sér sem mest að náminu í vetur. steinthor@mbl.is
Úlfur Eldjárn tónlistarmaður 35 ára í dag
Barnaafmæli fyrir dótturina
Hlutavelta
Guðný Hlín
Kristjánsdóttir,
Unnur María Dav-
íðsdóttir og Ind-
íana Líf Blurton
héldu tombólu við
Litlatún í Garða-
bæ. Þær söfnuðu
13.389 kr. sem þær
gáfu til styrktar
krabbameins-
sjúkum börnum.
Flóðogfjara
3. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.36 0,4 9.55 3,8 16.10 0,6 22.20 3,6 6.16 20.39
Ísafjörður 5.43 0,3 11.52 2,2 18.18 0,4 6.14 20.51
Siglufjörður 2.07 1,4 8.03 0,2 14.31 1,4 20.29 0,2 5.57 20.34
Djúpivogur 0.39 0,3 6.53 2,3 13.18 0,4 19.12 2,0 5.44 20.11
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Notaðu daginn til þess að ganga í fé-
lag eða samtök sem hjálpa þeim sem minna
mega sín. Ástarsamband er í burðarliðnum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er ekki hægt að heyja valdabar-
áttu við börn og ungt fólk með offorsi. Farðu
í bókabúð, á safn eða eitthvert annað sem
þú ert ekki vön/vanur að fara.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Allt hefur sinn tíma svo þú skalt
ekki beita þrýstingi þó þér þyki nóg um
hægaganginn. Líttu í eigin barm og skoðaðu
málin í rólegheitunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Til þín verður leitað í sambandi við
lausn á viðkvæmu vandamáli. Stundum er
það best gert með því að taka þátt í því að
láta öðrum líða vel, en ekki í dag.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert einstaklega sannfærandi í
vinnunni núna. Einhver liggur á peningum
eins og ormur á gulli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þitt vinalega eðli mun koma að góð-
um notum í dag. Vertu til staðar og aðstoð-
aðu vini þína sem á því þurfa að halda.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú átt auðvelt með að hafa áhrif á ann-
að fólk og telja það á þitt band. Möguleik-
arnir sem þú stendur frammi fyrir eru marg-
ir, en mundu að hafa með í ráðum þá, sem
þér standa næst.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur breyst mikið frá fyrra
ári. Fólk er tilbúið til að létta undir með þér.
Ekki hafa áhyggjur, þú ert ekki að flýta þér
um of.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það ríður á miklu að geta haldið
uppi tjáskiptum við aðra. Þér finnst enginn
nenna að hlusta á þig. Þú sýpur seyðið af
letikastinu í síðustu viku.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert full/ur samúðar í garð
samstarfsmanns og vilt gjarnan koma hon-
um til hjálpar. Þú heillast af framandi lönd-
um.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ýmsa nýja hluti rekur á fjörur þín-
ar og miklu varðar að þú kunnir að bregðast
við þeim með réttum hætti. Þú færð gjöf.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Það
hleypur á snærið hjá einhverjum þér ná-
komnum.
Stjörnuspá
Í dag, 3. sept-
ember, er Hrefna
Jóhannesdóttir
100 ára. Hún býr
nú á dvalarheim-
ilinu Sæborg á
Skagaströnd.
Hrefna er ein 16
systkina en þar
af eru þrjú enn á lífi. Hún tekur á
móti vinum og vandamönnum í fé-
lagsheimilinu Fellsborg, Skaga-
strönd, kl. 14-16 á afmælisdaginn.
100 ára
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Db3 dxc4 5.
Dxc4 Bg7 6. e4 0-0 7. Be2 Ra6 8. Rf3 c5 9.
d5 e6 10. 0-0 exd5 11. exd5 Bf5 12. Be3 He8
13. Rh4 Bd7 14. Hfd1 b5 15. Df4 b4 16. Rb5
He4 17. Dg3 Rg4 18. Rf3 Rxe3 19. fxe3
Hxe3 20. Df2 De8 21. Hd2
Staðan kom upp á franska meistara-
mótinu í opnum flokki sem lauk fyrir
skömmu í Caen. Stórmeistarinn Jean-
Pierre Le Roux (2.517) hafði svart gegn
kollega sínum Romain Eduouard (2.587).
21. … Bxb5! 22. Bxb5 Hxf3! 23. Dxf3 Dxb5
24. d6 Hf8 svartur stendur nú til vinnings
þótt langan tíma taki að innbyrða vinning-
inn. 25. He1 Rb8 26. Dd5 Rd7 27. He7 a6
28. Hde2 Bd4+ 29. Kh1 Rf6 30. Df3 Kg7
31. g4 Dc4 32. h4 h6 33. b3 Dc3 34. Kg2
Dxf3+ 35. Kxf3 Hd8 36. Ha7 Re8 37. d7
Rf6 38. g5 hxg5 39. hxg5 Rxd7 40. He7
Re5+ 41. Kf4 c4 42. Hxa6 c3 43. Hc7 Rd3+
44. Kg4 Be5 45. Hcc6 Hd4+ 46. Kh3 Rf4+
47. Kg4 Re6+ og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik