Morgunblaðið - 03.09.2011, Page 39
DAGBÓK 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
EN ÞAÐ
HLÝTUR AÐ
TAKAST?
ÉG
MISSTI AF
90% AF ÞVÍ SEM
ÞÚ SAGÐIR...
EN ÉG ÆTLA
AÐ GISKA Á AÐ
SVARIÐ SÉ „JÁ”
ÉG ÁKVAÐ
AÐ KALLA ÞAÐ
„GÓLIД
ÞAÐ ER
YNDISLEGT AÐ
EIGA LITLA
SYSTUR
ÉG HELD AÐ ÉG SÉ EKKI
LENGUR JAFN EINMANA...
ÉG VONA AÐ ÞAÐ SÉ RÉTT
HJÁ HONUM... ÉG ÁTTI
ALDREI NEIN SYSTKINI ÉG
ER EIN-
HUNDUR
SPEGILL,
SPEGILL,
HERM ÞÚ
MÉR...
...HVER
Á LANDI
FEGURST
ER?
ÞAÐ
ERT ÞÚ
HELGA
EN
FRÁBÆRT
*ANDVARP*
STUNDUM ÞARF
MAÐUR AÐ
LJÚGA TIL AÐ
HALDA LÍFI
ATHUGUM NÚ HVAÐ ER Í
ÞESSARI VALENTÍNUSARKÖRFU
SEM ÞÚ GAFST MÉR
KERTI... NUDDOLÍA... OG
BÓK UM ÞAÐ HVERNIG Á AÐ
ENDURHEIMTA RÓMANTÍKINA
ERTU
AÐ REYNA
AÐ SEGJA MÉR
EITTHVAÐ
ELSKAN?
HVAÐ HELDUR ÞÚ?
HVERNIG
NÁÐIRÐU Í
ÞENNAN RISA-
EÐLUHAUS?
ÞAÐ SKIPTIR
EKKI MÁLI, EN EF ÞÚ
VILT FÁ HANN AFTUR
ÞÁ KOSTAR ÞAÐ ÞIG
500 MILLJÓNIR!
ANNARS VIL ÉG TAKA ÞAÐ FRAM AÐ
ÉG BER SJÁLFUR FORNALDARLEGT NAFN
ÉG HEITI SABRETOOTH!
Saknar einhver
mynda?
Þessi mynd ásamt
fleirum fannst í Álna-
vörubúðinni í Hveragerði, mynd-
irnar voru innan í minnisbók sem
var merkt Verkamannafélaginu
Dagsbrún árið 1966. Myndirnar má
nálgast í búðinni, sím-
inn þar er 483-4517.
Barnakerra fannst
Það fannst barna-
kerra, þríhjóla með
systkinapalli fyrir ut-
an þjónustuver borg-
arinnar í Borgartúni
12-14, á mánudegi eft-
ir menningarnótt. Í
kerrunni er Latabæj-
arhlaupspoki og eig-
andi getur væntan-
lega lýst innihaldinu.
Frekari upplýsingar í
síma 411-1111 eða á
staðnum, opið virka
daga frá 8:20-16:15.
Ást er…
… að hjálpa honum að
losna við feimnina.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Margt er fróðlegt í gögnum umíslenska kommúnista, sem
Arnór Hannibalsson og Jón Ólafs-
son fundu á söfnum í Moskvu og
lesa má á Þjóðarbókhlöðunni. Eitt
einkennilegasta skjalið er skýrsla,
sem Dýrleif Árnadóttir samdi á út-
mánuðum 1932 á norsku um
„Leynibrugg og undirróður í ís-
lenska flokknum“ (Konspirasjon og
provokasjon innenfor det islandske
parti). Dýrleif var þá í þjálf-
unarbúðum byltingarmanna í
Moskvu, svokölluðum Vesturskóla,
og bar þar dulnefnið „Doris Lind“.
Dýrleif var prestsdóttir frá
Skútustöðum í Mývatnssveit. Hún
var bekkjarsystir hinna kunnu
kommúnista Brynjólfs Bjarnasonar,
Hendriks Ottóssonar og Ársæls
Sigurðssonar í menntaskóla, og
varð snemma róttæk. Sat hún í
fyrstu miðstjórn kommúnistaflokks-
ins, sem stofnaður var í nóv-
emberlok 1929.
Í skýrslunni kvartaði Dýrleif
undan því, að félagar í flokknum
færu ekki nógu varlega. Flugumenn
og njósnarar væru á hverju strái.
Sérstaklega nefndi hún sjómann
einn íslenskan, sem tekinn hefði
verið í kommúnistasellu Íslendinga
í Kaupmannahöfn. Heimkominn
hefði þessi íslenski sjómaður sagt
jafnaðarmönnum af starfsemi
kommúnista.
Hver var þessi flugumaður? Dýr-
leif nafngreindi hann ekki. En í
málgagni ungra kommúnista,
Rauða fánanum, 7. nóvember 1931
var kvartað undan því, að ungir
jafnaðarmenn hefðu auglýst fund
þennan dag, á rússneska bylting-
arafmælinu, þar sem halda ætti
ræðu um „fjórtán ára alþýðuvöld í
Rússlandi“. Ræðumaður „spilaði
sig“ sem kommúnista í Kaup-
mannahöfn forðum, en væri nú
„einn af efnilegustu slúðrurum“ Al-
þýðuflokksins. Hér var maðurinn
kominn: Ásgeir Pétursson sjómað-
ur, bróðir þeirra Jóns Axels Al-
þýðuflokksforingja og Péturs út-
varpsþular.
En sagan er gráglettin. Ásgeir
Pétursson gerðist síðan stalínisti.
Tókust ástir með honum og Dýr-
leifu, og gengu þau í hjónaband.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Hver var flugumaðurinn?
Karlinn á Laugaveginum var all-ur á iði þegar ég hitti hann og
hugurinn við grávíðinn sem rauk
upp um leið og borið var á gömlu
flugbrautina norður á Hólsfjöllum.
Og nú sá hann fyrir sér, að þessu
ræktunarátaki yrði fylgt eftir. Og
það birti yfir andlitinu:
„Ef gull sérðu gult við þér skína
lát glampann í skjóðuna þína.“
Ég kollhúfur lagði
kvaddi og sagði:
„Það kvað vera fallegt í Kína!“
Það er merkilegt að fletta And-
vökum Stephans G. Stephanssonar,
hversu mikill hann varð af sjálfum
sér. Fyrsta bindið af fjórum í heild-
arútgáfu ljóða hans byrjar á þess-
um ferhendum. Sjálfskaparvítið er
yfirskrift hinnar fyrri:
Mér er sjálfs mín leti leið.
Líf og fjör í æðum dvínar,
þegar að hún greipagleið
glennir um mig krumlur sínar.
Hann var 14 eða 15 ára, þegar
hann orti þessa stöku, og árinu
eldri þegar hann orti:
Fyrir öllu eldra sér
skal ungur lotning bera –
lastaðu ekki Lúcifer,
láttu karlinn vera.
Og þriðja ferhendan í Andvökum
ber yfirskriftina Framþróun:
Í æsku tók ég eins og barn
alheimskunnar trúna.
Með aldri varð ég efagjarn.
Engu trúi ég núna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það kvað vera
fallegt í Kína
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is