Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 43
Þaulvanir tónlistarmenn komu að Blæ. Edgar Smári samdi lögin, söng og lék á kassagítar; Björn Ólafsson lék á trommur, Valdimar Kolbeinn Sig- urjónsson á kontrabassa, Ómar Guðjónsson á gítar, rafgítar og slagverk og sá um útsetningar og stjórnaði upptökum og Guðmundur Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur) hljóðblandaði og tónjafnaði. Edgar gefur plöt- una út sjálfur, undir merki Söngmáls ehf. Vanir menn PLATAN BLÆR MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Söngvarinn og lagasmiðurinn Edgar Smári Atlason sendi hinn 1. sept- ember sl. frá sér plötuna Blær og er hún fyrsta sólóplata hans með frum- sömdu efni. Á plötunni er Edgar á ljúfum nótum og syngur lög sín við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagra- skógi, Jakobs Jóh. Smára, Tómasar Guðmundssonar, Sigtryggs Bald- urssonar og Matthíasar Jóhannessen. Í þeim má finna rómantík, hlýju, ást og náttúrustemningar, svo eitthvað sé nefnt. Spurður að því hvers vegna ljóðin séu öll eftir karlmenn segir Edgar enga sérstaka ástæðu fyrir því en hugsanlega eigi hann auðveldara með að setja sig inn í hugarheim þeirra en kvenkyns höfunda. Mörg fjaran sopin Edgar hefur komið víða fram sem söngvari á undanförnum árum, m.a. í Söngvakeppni Sjónvarpsins og á jóla- tónleikum Björgvins Halldórssonar auk þess að syngja á gospeltónleikum með Fíladelfíukórnum. Þá má einnig geta þess að Edgar var í fyrstu strákasöngsveit Íslands, Luxor, sem umboðsmaður Íslands, Einar Bárð- arson, kom á koppinn. „Það er líf eftir Luxor,“ segir Edgar kíminn. Hann var einnig í hljómsveitinni Stoneslin- ger sem síðar varð Benny Crespo’s Gang og hefur því marga fjöruna sop- ið í bransanum. Edgar segist lengi hafa gælt við að gefa út aðra plötu en fyrsta sólóplat- an sem hann gaf út var Ferðalangur og kom hún út árið 2006. Þá söng hann inn á dúettaplötu með Valgerði Guðnadóttur, Bréfbát, lög eftir Jó- hann Helgason en sú plata kom út í byrjun árs. Vandinn að finna konsept „Mig vantaði bara alltaf eitthvert konsept, að vera með eitthvert mark- mið, hún þurfti að vera heilsteypt og flott. Þannig að ég ákvað bara að kýla á íslenska ljóðahöfunda, karlmenn, og fór að sanka að mér ljóðum í fyrra og lesa margar bækur, ljóðabækur. Ég treysti mér ekki til að semja texta sjálfur en ég get samið laglínur og lög,“ segir Edgar um Blæ. Hann hafi í fyrra farið að leggja drög að plötunni og fengið gítarleikarann Ómar Guð- jónsson til að hjálpa sér með útsetn- ingar og sjá um að smala í hljómsveit. Kiddi Hjálmur sá um hljóðblöndun og tónjöfnun en hljómsveitin æfði lögin áður en í hljóðver var haldið, í júní sl. Lögin voru tekin upp „live“ til að fá meira líf í tónlistina, að sögn Edgars. „Það er ekkert „auto-tune“ á söngn- um eða neitt, þetta er bara sungið og ekkert verið að laga neitt,“ segir Edg- ar. Platan sé lífrænt ræktuð. Þess má að lokum geta að hluti ágóðans af sölu plötunnar mun renna til Samhjálpar. „Það er líf eftir Luxor“  Edgar Smári gefur út plötu með eigin lögum við valin ljóð eftir karl- menn  Platan var tekin upp „live“ til að gera hana líflegri Morgunblaðið/Kristinn Ljúfur Plata Edgars Smára samanstendur af fallegum, hugljúfum lögum, sungnum af næmni og natni. Leikkonan Alyssa Milano er í skýj- unum yfir nýju hlutverki, en hún eign- aðist son sl. miðvikudag. Um er að ræða frumburð Milano og eiginmanns hennar Davids Bugliaris, umboðs- manns í Hollywood, en þau gengu í hjónaband árið 2009. Sonurinn hefur hlotið nafnið Milo Thomas Bugliari. Skömmu eftir fæðinguna skrifaði Milano á Twitter að sér fyndist hjarta sitt hafa þrefaldast að stærð nú þegar sonurinn væri kominn í heiminn og hjartað þyrfti að rúma þá miklu ást sem hún bæri til hans. „Ást mín til hans er meiri en sem nemur öllum laufblöðum heims.“ Milano er þekktust fyrir leik sinn í vinsælum sjónvarpsþáttum á borð við Who’s the boss, Charmed og Melrose Place. Milano eignast son Reuters Sælleg Alyssa Milano er að springa úr ást á nýfæddum syni sínum. SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR A.K. - DV FRÁBÆR ÍSLENSK GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA SUPER SIZE ME 5% Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT 30 MINUTES OR LESS LÚXUS KL. 1 - 3 - 6 - 8 - 10 14 30 MINUTES OR LESS KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 - 8 - 10 14 Á ANNAN VEG KL. 8 10 THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14 SPY KIDS 4 4D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.50 - 8 L COWBOYS AND ALIENS KL. 10 14 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.40 L STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12 30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14 THE CHANGE-UP KL. 2 (TILBOÐ) - 4 - 6 - 8 - 10 14 SPY KIDS 4 4D KL. 6 L STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 2 (TILBOÐ) - 4 L Á ANNAN VEG KL. 6 - 8 - 10 10 30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14 THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14 GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 L SPY KIDS 4 4D KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 L STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 3.20 ( TILBOÐ) L CONAN THE BARBARIAN KL. 10.20 16 ONE DAY KL. 5.30 - 8 L THE SMURFS 2D ENS. TAL KL. 3.20(TILBOÐ) L LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar THE DEVILS DOUBLE LAUGARD. Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:20 THE DEVILS DOUBLE SUNNUD. Sýnd kl. 8 - 10:20 THE CHANGE-UP Sýnd kl. 8 - 10:20 SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4 - 6 CONAN THE BARBARIAN Sýnd kl. 8 - 10:20 STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4 - 6 STRUMPARNIR ÍSL TAL Sýnd kl. 2 (700kr.) - 4 HÖRKU SPENNUMYND HANN ER FÆDDUR STRÍÐSMAÐUR HEFURÐU EINHVERN TÍMANN VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR? FRÁ LEIKSTJÓRA WEDDING CRASHERS OG HANDRITSHÖFUNDUM THE HANGOVER Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD! BYGGÐ Á SANNRI SÖGU! ÞRÆLMÖGNUÐ MYND UM SON SADDAM HUSSEIN -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Hvar í strumpanum erum við ? Sýnd í 3D með íslensku tali Vinsælasta myndin á Íslandi í dag! Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKT R MEÐ RAUÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.