Morgunblaðið - 16.09.2011, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Fimm af helstu seðlabönkum heims
gripu til samhæfðra aðgerða í gær til
að tryggja aðgengi evrópskra banka
að fjármögnun í Bandaríkjadal á
millibankamarkaði. Evrópski seðla-
bankinn, bandaríski seðlabankinn,
Englandsbanki, Japansbanki og
seðlabankinn í Sviss standa að að-
gerðunum. Seðlabankarnir munu
veita evrópskum bönkum lán í Banda-
ríkjadal til þriggja mánaða í senn.
Evrópskir bankar munu fá ótakmark-
að aðgengi að Bandaríkjadal í útboð-
um sem seðlabankarnir munu standa
fyrir mánaðarlega til ársloka.
Þrátt fyrir að ákvörðun seðlabank-
anna fimm hafi í fyrstu leitt til þess að
gengi hlutabréfa evrópskra banka
hækkaði á mörkuðum í gær þykir hún
fyrst og fremst vera til marks um
hversu alvarleg lausafjárþurrðin hef-
ur verið á evrópska millibankamark-
aðnum undanfarið. Eins og fram
kemur í umfjöllun Financial Times
hafa bandarískir bankar haldið að sér
höndum þegar kemur að lánveiting-
um í Bandaríkjadal til evrópskra
banka af ótta við áhrif skuldakrepp-
unnar á evrusvæðinu á stöðu þeirra.
Skorturinn á Bandaríkjadal á evr-
ópska millibankamarkaðnum hefur
meðal annars endurspeglast í því að
tveir ónafngreindir evrópskir bankar
óskuðu eftir lánum fyrir 575 milljónir
dala í útboði Evrópska seðlabankans
á dögunum. Er þetta í fyrsta sinn í
fjórar vikur sem bankar hafi tekið
þátt í útboðinu en þar sem vextirnir á
dollaralánum Evrópska seðlabankans
eru mun hærri en markaðsvextir taka
bankar ekki þátt í þeim nema um
brýnan vanda sé að ræða.
Enginn vandi leystur
Þrátt fyrir að ákvörðuninni hafi í
fyrstu verið vel tekið á mörkuðum var
haft eftir sérfróðum í erlendum fjöl-
miðlum að hún fæli ekki í sér neina
lausn á þeim vanda sem við væri að
etja. Áhyggjur manna af gæðum
eignasafna evrópskra banka og
hversu berskjaldaðir þeir eru fyrir
frekari lækkun ríkisskuldabréfa á
evrusvæðinu eru enn til staðar. The
Daily Telegraph hefur eftir sérfræð-
ingi hjá Monument Securities að já-
kvætt væri að tryggt aðgengi að
Bandaríkjadal væri til staðar ef til
meiriháttar tíðinda á evrusvæðinu
skyldi draga á næstu mánuðum.
Seðlabankar opna flóðgáttir
Fimm helstu seðlabankar heims tryggja evrópskum bönkum ótakmarkað aðgengi að Bandaríkjadal
næstu mánuði Til marks um hversu mikil dollaraþurrðin á evrópskum millibankamarkaði hefur verið
Reuters
Bjartsýni Ákvörðuninni var fagnað í fyrstu á fjármálamörkuðum.
Skýrr hagnaðist um 109 milljónir
króna eftir skatta á fyrstu sex mán-
uðum ársins, borið saman við tap
upp á 14 milljónir á sama tíma í
fyrra. EBITDA-hagnaður, þ.e.
hagnaður fyrir afskriftir, skatta og
fjármagnsliði, var 511 milljónir
króna af reglulegum rekstri.
Í tilkynningu frá Skýrr, sem er
móðurfélag HugarAx á Íslandi,
Kerfi AB í Svíþjóð og Hands AS í
Noregi, kemur fram að velta sam-
stæðunnar hafi verið liðlega 12,3
milljarðar króna á tímabilinu. Veltan
á fyrri helmingi ársins 2010 var 11,2
milljarðar, þannig að hún jókst um
10% á milli ára.
Eigið fé félagsins í lok júní nam 3,5
milljörðum króna. Í tilkynningunni
er haft eftir Gesti G. Gestssyni, for-
stjóra Skýrr, að fyrirtækið sé tals-
vert hreykið af þeim rekstrarárangri
sem nú liggur fyrir. EBITDA-hagn-
aður hafi aukist um 9,2% milli ára.
„Þessar tölur endurspegla þá
staðreynd að Skýrr er í dag eitt öfl-
ugasta fyrirtæki Norðurlanda á sviði
upplýsingatækni, með um 1.100
starfsmenn og viðamikinn rekstur í
fjórum löndum. Skýrr er þannig
móðurfélag þriggja rekstrarfélaga;
HugarAx á Íslandi, Kerfi AB í Sví-
þjóð og Hands AS í Noregi, en til
norska félagsins heyrir einnig Sia
Aston Baltic í Lettlandi,“ bætir
Gestur við. ivarpall@mbl.is
Skýrr hagnast
um 109 milljónir
Velta og hagn-
aður aukast á fyrri
helmingi ársins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skýrr Gestur G. Gestsson forstjóri.
Hagnaður jókst milli ára.
Roger Aliber, fyrrverandi prófess-
or í hagfræði við Chicago-háskóla,
hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands í
gær. Sem kunnugt er hélt hann
fyr-irlestur sumarið 2008 þar sem
hann olli miklu fjaðrafoki með því
að lýsa því yfir að íslenska hag-
kerfið stæði frammi fyrir alvar-
legri fjármála-kreppu.
Í erindi sínu lagði Aliber mikla
áherslu á þátt óhefts fjármagns-
flæðis í aðdraganda fjármála-
kreppa í heiminum frá því
snemma á níunda áratugnum. Að
sögn hans hafi fylgismenn þess að
helstu myntir heims flytu gagn-
vart hver annarri talið að það fyr-
irkomulag myndi ekki leiða til
meiriháttar sveiflna á gjaldeyr-
ismörkuðum heldur til hægfara
aðlögunar gengis þannig að það
endurspeglaði raunverulega sam-
keppnishæfni hvers hagkerfis fyr-
ir sig auk þess sem það styrkti
stoðir og svigrúm sjálfstæðrar
peningamálastefnu. Reynsla und-
anfarinna áratuga hafi hinsvegar
sýnt hið gagnstæða.
Morgunblaðið/Eggert
Aliber Olli miklu fjaðrafoki hér sumarið 2008.
Aliber snýr aftur
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á
gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í
eindaga til og með 15. september 2011, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga
til og með 5. september 2011 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir
er fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2011, á staðgreiðslu tekjuskatts,
útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum
launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda
aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi,
kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum,
skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á
eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum,
sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til
að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem
lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði
þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki
í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. september 2011
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli