Birtingur - 01.01.1961, Síða 9

Birtingur - 01.01.1961, Síða 9
sagði Farrington strákunum að taka út og fá sér annan. Einmitt þegar hver um sig var að nefna sinn drykk, hver skyldi þá rekast inn nema Higgins! Og auðvitað þurfti hann að slást í hópinn. Strákarnir vildu strax heyra hans útgáfu af sögunni, og hann sagði þeim hana með mikilli kæti, því fimni sterkir viskísjússar eru upplífgandi sýn. Allir veltust um af hlátri, þegar hann sýndi hvernig hr. Alleyne skók hnefann framan í Farrington. Svo hermdi hann eftir Farrington og sagði „ 0 g þ á v a r ég eins svalur, maður, og hægt er að hugsa sér“, og Farrington sjálfur leit sínum óhreinu augum yfir hópinn, brosti og saug viskídropa úr yfir- skegginu með neðrivörinni. Þegar þessum umgangi lauk, varð þögn. O’Halloran átti peninga, en hinir virtust ekki eiga neitt; þeir félagar yfirgáfu því staðinn með nokkurri eftirsjá. Við hornið á Duke-stræti beygðu þeir Higgins og nefstóri Flynn til vinstri, en hinir þrír sneru við og héldu inn í borgina. Regnið buldi á köldum götunum, og þegar þeir komu að Ballast-skrifstofunni, stakk Farr- ington upp á því að þeir færu í Skozka húsið. Barinn var troðfullur og mikil há- reysti af spjaili manna og glasaglamri. Mennirnir þrír brutu sér leið framhjá skrækjandi eldspýtnasölum í anddyrinu og röðuðu sér í hnapp við borðsendann. Þeir fóru að segja sögur til skiptis. Leonard kynnti þá fyrir ungum manni sem hét Weathers og sýndi fimleika og trúðlist í Tívolí. Farrington bauð einn umgang. Weathers sagðist vilja einn lítinn Irskan og Apollinaris. Farrington sem vissi mæta- vel hvað var hvað spurði strákana, hvort þeir vildu einn Apollinaris líka; en strák- arnir báðu Tim um sterkt handa sér. Samtalið gerðist nú háfleygt. O’Halloran gaf einn umgang, og svo gaf Farrington annan, en þá maldaði Weathers í móinn og þótti gestrisnin orðin of írsk. Hann lofaði að koma þeim inn að tjaldabaki í Tívolí og kynna þá fyrir nokkrum líflegum stelpum. O’Halloran sagði að þeir Leonard mundu þekkjast boðið, en Farrington mundi ekki koma, því hann væri kvæntur maður; Farrington gaut sínum daufu, óhreinu augum yfir hópinn og lét á sér merkja að hann skildi, að þetta var skens. Wathers fékk þá til að þiggja ofurlítið bragð á sinn kostnað og lofaði að hitta þá á eftir hjá Mullingan í Poolberg-stræti. Þegar Skozka húsið lokaði, héldu þeir til Mulligans. Þeir fóru þar inn í einkaher- bergi fyrir innan, og O’Halloran pantaði smá hressingu handa öllum. Þeir voru farnir að finna vel á sér. Farrington var einmitt að gefa umgang, þegar Weathers kom aftur. I þetta skipti drakk hann bitter, Farrington til mikils léttis. Það - var orðið lítið eftir í buddunni, en þó svo, að þeir gátu haldið sér við. Tveir ungir kvenmenn með stóra hatta og ungur mað- ur í köflóttum fötum komu inn rétt í þessu og settust við næsta borð. Weathers Iieilsaði þeim og sagði félögunum að þau væru frá Tívolí. Farrington varð í sífellu litið á annan kvenmanninn. Það var eitt- hvað sérkennilegt við hana. Hún var með heljarmikla, fagurbláa slæðu sem vafið var um hattinn og hnýtt í slaufu undir kverkinni; og hún var með heiðgula hanzka sem náðu upp að olnboga. Farring- Birtingur 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.