Birtingur - 01.01.1961, Page 11

Birtingur - 01.01.1961, Page 11
eyða öllum peningunum, og svo var hann ekki einu sinni fullur. Hann fór aftur að finna til þorsta og langaði inn í hlýjuna og reykjarsvæluna á knæpunni. Hann hafði tvisvar látið í minni pokann fyrir manni sem var tæpast fullvaxinn og þannig eyðilagt það orð sem farið hafði af kröftum hans. Hann var að springa af gremju, og þegar honum datt í hug kvenmaðurinn með stóra hattinn, þessi sem straukst við hann og sagði P a r d o n ! ætlaði hann alveg að kafna af reiði. Hann steig af sporvagninum í Shelbourne- götu og lóssaði sér áfram, þungur og fyr- irferðamikill, í skugganum af bröggunum. Hann hafði óbeit á því að vera að fara heim til sín. Þegar hann gekk inn bak- dyramegin og kom inn í eldhúsið, var það tómt og eldurinn næstum útbrunn- inn í stónni. Hann öskraði uppá loftið: „Ada! Ada!“ Hann átti litla, holdskarpa konu sem þúst- aði hann, þegar hann var ódrukkinn og liann þústaði í staðinn, þegar hann var fullur. Þau áttu fimm börn. Lítill drengur kom hlaupandi niður stigann. „Ilver er þetta?“ sagði maðurinn og hvessti augun í myrkrinu. „Ég, pabbi“. „Hvaða ég? Er það Charlie?“ „Nei, pabbi. Það er Tom“. „Hvar er móðir þín?“ „Hún fór í kirkju“. „Það var og ... Tók hún til nokkurn mat handa mér?“ „Já, pabbi. Ég —“. „Kveiktu ljós. Ilvað á þetta myrkur að þýða? Eru hinir krakkarnir háttaðir?“ Maðurinn hlammaði sér niður í einn stól- inn meðan litli drengurinn kveikti á lamp- anum. Hann fór að herma eftir flámæli sonar síns og tautaði eins og hálft í hvoru við sjálfan sig: „1 kerkju, í kerkju, í kerkjönni!“ Þegar kveikt hafði ver- ið á lampanum, lamdi hann hnefanum í borðið og hrópaði: „Hvar er maturinn minn?“ „Ég er ... ætla að fara að sjóða hann, pabbi“, sagði litli drengurinn. Maðurinn stökk á fætur viti sínu fjær og benti á eldinn. „Við þennan eld! Þú lætur eldinn deyja! Það veit guð, að ég skal kenna þér! ...“. Hann tók skref í áttina til dyranna og greip göngustaf sem stóð að hurðarbaki. „Ég skal kenna þér að láta eldinn deyja!“ sagði hann og bretti upp erminni til að eiga hægra með að hreyfa handlegginn. Litli drengurinn æpti „ ó, p a b b i ! “ og hljóp kjökrandi kringum borðið, en mað- urinn elti hann og náði taki á blússunni hans. Litli drengurinn leit skelfdum aug- um í kringum sig, en þegar hann sá að vonlaust var að sleppa, féll hann á kné. „Þetta skaltu fá, þegar þú lætur eldinn deyja næst!“ sagði maðurinn og sló hann af alefli með stafnum. „Hafðu þetta, hvolpurinn þinn!“ Drengurinn veinaði af sársauka, þegar stafurinn lenti á læri hans. Hann spennti greipar og rödd hans skalf af ótta. „Ó, pabbi!“ hrópaði hann. „Berðu mig ekki, pabbi! Ég skal . . . Ég» skal biðj a fyrir þér . . . Ég skal biðja til guðsmóður fyrir þér, pabbi, ef þú berð mig ekki .. . Ég skal biðja guðsmóður ...“. Geir Kristjánsson þýddi. Birtingur 9

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.