Birtingur - 01.01.1961, Page 30

Birtingur - 01.01.1961, Page 30
Öll fyrri leikrit Ionesco eru fremur stutt og sýnd jafnan tvö og tvö saman. Þau eru hnitmiðuð, mikill hraði í þeim, snögg skipti geðbi’igðanna. Þar víxlast markhittin gamansemi, tregi, kaldhæðni, harmur. En viðkvæmnin er alltaf varin snöggu skopi, höfundurinn er í rauninni dulur og spennir skopbogann yfir sínum sárustu kenndum. Hann splundrar öllum hefðbundnum reglugerðum, leikur sér að því að tæta bannhelgina í skrúðgörðum steingerðra viðhorfa. Ionesco talar um nauðsyn þess að skapa ný form, um þrot- laust viðnám listamannsins gegn þeim formum sem hafa verið ofnotuð af þeim sem fóru á undan, um orð og orðasam- bönd sem hafa glatað merkingunni, eru dauð. Þess vegna verði höfundurinn sífellt að finna nýjar leiðir. Þorri rithöfunda, listamanna og hugsuða trúi því að þeir fylgi tíma sínum; hinn byltingarfúsi leik- ritahöfundur gengur á móti straumi tím- ans, segir Ionesco. Hann hlýtur að vera andstæðingur ríkjandi skipulags. Hann gagnrýnir en réttlætir ekki það sem nú er. Það er auðvelt að gagnrýna liðna tíð, einkum þegar ríkjandi skipulag hvetur þig til að gera svo, en með því réttlætir mað- ur stöðnunina og lyppast niður fyrir kúg- uninni og hinu hefðbundna, segir Ionesco. Ionesco spinnur saman hið skoplega og hið harmlega og segist raunar ekki geta greint á milli. I fljótu bragði gæti virzt ringulreið í verkum hans sem eru reyndar hnitmiðuð og nákvæm í allri byggingunni. Hann er mesti endurskoðunarsinni sem leikhúsið á í dag. Og líf án sífeldrar end- urskoðunar hlýtur að deyja. Hann er gæddur öruggu áhrifsskyni á leikhúsvísu. Hann leikur sér að málinu einsog hinn fimasti virtúós, það lifir nýju frjálsu lífi í verkum hans, þróast eftir sínum eigin lögmálum, er fullt af orðaleikjum; dæmi úr daglegu tali okkar eru einangruð, hreinræktuð, röntgenlýst, og afhjúpaður tómleiki þeirra; meiningarleysið í tali manna opinberað, Ionesco hikar ekki við að slíta sundur hin löggiltu orðasambönd, jafnvel sundra orðunum og leysa þau upp í táknræn hljóð, ef því er að skipta. Hann bindur textann víða með rími, stuðlar, byggir af nákvæmni hrynjandina og rýfur hana kannski óvænt með mishljómum. Það er því mikið vandaverk að þýða verk Ionesco. Hann byggir upp dynamíska spennu en verk hans verða aldrei viðskila við líf mannanna, abstrakt; þau kafa í vitund nútímamannsins og túlka þau öfl sem takast þar á. Þau eru full af fárán- leika og ólíkindum en skortir sízt mein- ingu. Fyndni lonesco er svo hrein og drama- tísk að gagnrýnendur sem alltaf leita sam- anburðar hafa talað um Chaplin í þeirri andránni. Engan leikritahöfund nútímans þekki ég sem er eins lagið að koma áhorf- endum sínum á óvart og Ionesco. I hinum glaðasta hlátri verður okkur skyndilega ljóst að við horfum af barmi hengiflugs- ins. Og hin sorglegustu atvik magnar Ionesco með afvopnandi fyndni svo að við missum skelfinguna út í hlátur. Ionesco er fæddur í Slatina á Dónárbökk- um árið 1912, það er í Rúmeníu. Átján mánaða gamall fluttist hann til Parísar, lærði í frönskum skólum þegar hann hafði aldur til en hvarf til Rúmeníu 14 ára gam- all. Þar varð hann síðar bókmenntapró- 28 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.