Birtingur - 01.01.1961, Síða 60

Birtingur - 01.01.1961, Síða 60
í blaðinu Arts fyrir vikuna frá 25.—31. janúar 1961: „Je dois dire que le propos de la piéce a bien été de décrire le pro- cessus de la nazification d’un pays ainsi que le désarroi de celui qui naturellement allergi á la contagion, assiste á la méta- morphose mentale de sa collectivité“. Má ég spyrja Kristján hvort þetta myndi ekki þýða að Ionesco segi að fyrir sér hafi vakað í leikritinu að lýsa því hvernig land verði nazistískt og einnig örvæntingu þess manns sem er af náttúru sinni ósmit- næmur en er vitni að andlegri umturnun síns umhverfis? Svo getur Kristján bara snúið sér til Ionesco og spurt hann hvað það eigi að þýða að vera að vara fólk við fasisma og nazisma í heiminum í dag, Stofuhiti En hví í ósköpunum ofhita Reykvíkingar hús sín einsog þeir gera? Eru allir að reyna að rækta melónur í stofum sínum á laun? Kannski hefur einhver fundið egg frá útdauðri fuglategund og er að reyna að klekja því út við stofuhita. Ilvaða hús er það? Það gæti verið anzi víða. Stofuhitinn er misnotaður einsog brennivínið. Það er einsog fólk þurfi að sannfæra sig einlægt um að það sé ekki að dreyma: það sé í raun og veru búið að öðlast þessi dásamlegu lífsþægindi. Friðhelgi ferðalangsins Skyldi það standa í umferðalögunum að bílstjórar í áætlunarferðum á langleiðum eigi heímtingu á þeim skammti af út- varpshávaða sem þeir telji sig þurfa sjálfir til að standast þrekraun starfsins og fá afþreyingu? Og það séu farþegar skyldugir að þola möglunarlaust. Einsog ástandið er nú væri æskilegt að sérleyfis- höfum væri gert að hafa sjúkraskýli á helztu viðkomustöðum til að veita þeim aðhlynningu sem ekki hafa sérþálfun í að þola slíkan hávaða sem útvarpið leggur til klukkustund eftir klukkustund. Ég veit til þess að áætlunarbifreiðar sem fóru milli Akureyrar og Reykjavíkur í fyrra- sumar voru búnar öflugum hátölurum sem var raðað eftir endilöngu vagnloftinu með stuttu millibili og úr öllum þessum há- tölurum glumdi þindarlaust þessi ótrúlega andstyggð af skrílslegu glamri sem ríkis- útvarpið okkar er svo fundvíst á undir því yfirskyni að verið sé að stytta þjóð- inni stundir en virðist frekar miða í þá átt að stytta þjóðinni aldur. Sem betur fer hafði ég ekki gert mér grein fyrir því hve öflug starfsemi útvarpsins í þá átt er fyrr en ég var farþegi Norður- leiðafélagsins milli Reykjavíkur og Akur eyrar en því miður átti ég ekki annars úrkosta en sæta þessum afarkostum sömu leið til baka. Með þessum öflugu tækjum er allt landslag þurrkað út, sögustaðir líka, samræður, allur félagsskapur sem annars kynni að áskotnast er útilokaður, einveran upprætt fyrir þeim sem hennar óska. Allur söfnuðurinn má hafa það að vera laminn þessum ægilega terróríser- andi gný óskalaganna og byltast í skark- alanum frá sjúkraþætti til sjómannaþátt- ar eða sæta þeim refsiaðgerðum sem á dynja undir fyrirsögninni: Þátturinn við vinnuna, — sem er miðaður við ólgandi athafnalíf í stórum verksmiðjum en á reisu okkar var ekki sú hjálparstarfsemi 58 Birtingur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.