Birtingur - 01.01.1961, Síða 62
Halldór Kiljan Laxness og Gunnar Gunn-
arsson hafa á þeim árum fengið saman-
lagt jafnháa upphæð greidda árlega einsog
þessi mikli leiðtogi, eða þrjátíu og þrjú
þúsund tvö hundruð og tuttugu krónur
hvor. Það þarf þrjá Svavara Guðna-
syni plús þrisvar sinnum Þorvald Skúla-
son í listamannalaunum til þess að
jafngilda Jóni Dúasyni samkvæmt mat-
inu í fjárlögum ríkisins. Kannski þetta
sé hugsað sem einskonar embættislaun
til Jóns Dúasonar sem forystumanns
grænlenzkrar útlagastjórnar í nafni þeirr-
ar Islendingabyggðar sem hvarf fyrir
mörg hundruð árum og styrkur til þess
að koma á fót íslenzkri nýlendukúgun á
eskimóum að Danaveldi yfirbuguðu og
brottstökktu úr Grænlandi.
Ríkið styrkir og styrkir. 1958 til 1961
stendur í fjárlögum árlega: til kaupa á
málverkum úr íslenzkri sögu samkvæmt
ákvörðun Menntamálaráðs krónur þrjátíu
þúsund??? I fjárlögum 1961 fær Listasafn
Einars Jónssonar 236 þúsund krónur.
Listasafn Ásmundar Sveinssonar kr. 0,00.
Og svo er vert að geta þess að ríkið kostar
stórfé til þess að senda Kristmann Guð-
mundsson endalaust í skóla landsins til
þess að forða börnum og unglingum frá
því að verða bókmenntaáhuga að bráð.
Fjárhagslegur stuðningur við sinfóníu-
hljómsveit Islands hefur verið ein af
örfáum undantekningum um heillavæn-
legar fjárveitingar ríkisins í menningar-
málum. Sinfóníuhljómsveit er enginn lúxus.
Hún er grundvöllur fyrir músíklíf lands-
ins. I tölu þeirra ungu efnilegu manna
sem á undanförnum árum hafa með yfir-
skilvitlegum hætti hlotið metorð og frama
í stjórnmálalífinu eru til þeir sem ekki
hafa orðið uppvísir að því að berjast
fyrir neinni annarri hugsjón en lækka
menningarstig íslendinga á músíksviðinu
(einsog þörfin var nú brýn fyrir svo-
leiðis baráttu).
Árni Kristjánsson píanóleikari sem nú
er tónlistarstjóri útvarpsins er einn af
mætustu listamönnum þjóðarinnar í mús-
íkinni og væri vonandi að áhrif hans og
manna einsog Björns Ólafssonar sem hef-
ur alla tíð borið hita og þunga starfsins
í hljómsveitinni sjálfri, verið forsprakki
og hinn sídrífandi stríðsmaður starfsins
sem allt byggist á, — að þessir menn og
aðrir þjónar ljóssins og listarinnar og
tónanna megi sigrast á hinum tóndumbu
áróðursmönnum smásálarskaparins í lág-
kúrunni sem gera fjóshauginn að hásæti
sínu og þykir allt óþarft sem ekki miðast
við viðhorfin sem ilmurinn þar vekur.
Manifestie des 121
Efnilegasta fólkið meðal franskra rithöf-
unda og leikhúsmanna og kvikmyndahöf-
unda er hatramlega bannfært af stjórn-
arvöldum í Frakklandi vegna hins fræga
ávarps sem þetta fólk gaf út um afstöðu
sína í réttindamáli samvizkunnar and-
spænis morðskyldu þjóðfélagsþegnsins
þegar stjórnarvöldin blása í herlúðurinn.
Næstum allir þeir rithöfundar sem hafa
vakið athygli á undanförnum árum með
tilraunum sínum til að rjúfa staðnaða
hefð í bókmenntum Frakka með nýsköp-
un, nýjum aðferðum, nýrri tækni, nýjum
viðhorfum — þeir standa á þessu skjali:
Robbe-Grillet, Michel Butor, Natalie Sar-
60 Birtingur