Birtingur - 01.01.1961, Side 65

Birtingur - 01.01.1961, Side 65
José Antonio Ögæfan mikla 1898 F. Romero Árið 1898 náði frelsisbaráttan í Kúbu gegn nýlendustjórn Spánverja hámarki sínu. Snemma það ár sendu Bandaríkja- menn orrustuskípið „Maine“ til Havana til að vernda eignir og líf bandarískra þegna þar. Sprenging varð í skipinu og 266 menn fórust með því. Ekki var vitað með vissu um orsök slyssins, enda skiptir það litlu máli. Kröfur McKinleys, forseta Bandaríkjanna, jafngiltu því að Spán- verjar létu eyna af hendi. Hann lýsti yfir frelsi Kúbu og Spánverjar sendu flota sinn, undir stjórn Cervera aðmíráls, til að berjast fyrir ströndum Kúbu. Bandaríkjamenn króuðu hann inni í Santiago-höfn og þegar hann reyndi að komast út missti hann öll skip sín. Dewey ílotaforingi eyddi öðrum spönskum flota við Filippseyjar, og Manila var hertekin hinn 12. ágúst sama ár. Spánverjar urðu að hverfa frá Kúbu og afhenda eyna ásamt Puerto Rico sem skaðabætur. Jafn- vel þó að Manila hafi ekki fallið fyrr en eftir að samið hafði verið um frið, voru óskir Spánverja að engu hafðar og urðu þeir einnig að yfirgefa Filippseyjar. Fengu þeir aðeins 20 millj. dala í skaða- bætur. Zulu- og Karólínueyjarnar höfðu þegar verið seldar Þjóðverjum þetta sama ár. Hið mikla sjóveldi Spánverja var því liðið undir lok. Frá stjórnmálalegu sjónarmiði var þetta aðeins iokaáfallið, það hafði vofað yfir um skeið og hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Á tímabilinu 1868—73 höfðu lýðræðisöflin beðið ósigur og hið póli- tíska frelsi var afnumið, og voru það glöp undanfarinnar kynslóðar; hrun Gullöldin nýja Yfirlit um spanska ljóðagerð 20. aldar Fyrri grein Birtingur 63

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.