Birtingur - 01.01.1961, Side 84
Kaunas, sem óforvarandis opnaði sýningu
á myndum, sem hún hafði skorið út í
eikarboli, Ijóð um sorg og angurværð. Ég
gæti líka nefnt manninn, sem læddi að
mér bunka af lýriskum ljóðum með avan-
gardistasvip! Hvorugt er til í Sovétríkj-
unum. Lýrik vegna þess að hún er illa
fallin til þess að flytja pólitískan boð-
skap, avangardismi vegna þess, að öll list
er felld í akademísk form. Allir þessir
listamenn hafa komið fram með verk, sem
gera ekki kröfu til annars en að flytja
mannlegar tilfinningar í fögru formi.
Dæmi um slík listaverk í sovétlist eru
ekki mörg. En eftir því sem lífskjör
manna batna, eftir því sem dregur úr
ofurvaldi ríkisins, eftir því sem tortryggni
þess í garð borgaranna rénar, eftir því
mun listum og menningu smámsaman
takast að leysa sig úr spennitreyju pólitík-
ur og admínistratívra fyrirmæla, og verða
á ný mannleg, verða tæki.til að tjá mann-
legar tilfinningar og mannlega fegurð.
Lenín lagði ætíð áherzlu á, að heilbrigð
skynsemi verkamanna væri æðri allri upp-
skrúfaðri vizku menntamanna. Öll sönn
list hlýtur að vera málsvari þeirrar heil-
brigðu skynsemi. 1 Sovétríkjunum er öll
list skipulögð til að þjóna hagsmunum
flokks og ríkis. En hún er ofskipulögð.
Þessvegna mun sovétlist smám saman ná
meiri blóma eftir því sem dregur úr of-
skipulagningu og listin nálgast heilbrigða
skynsemi alþýðu og gerir hana að sinni
uppsprettulind.