Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Side 5
— s —
þeir gerðu margir um greinar J. H.
— að leggja þær frá sér ólesnar.
Einn ber eg ábyrgð á því, sem
hér verðui sagt, þótt ritstjórinn kall-
aði mig »fulltrúa gamal-guðfræðingac,
og mörgu verð eg að sleppa að svara,
af því að mitt svar á að vera stutt,
enda hefir blaðið Bjarmi fluttgreini-
leg andsvör gegn trúmálahugleiðing-
um J. H., og geta enn nokkrir feng
ið þau ókeypis, ef þeir óska.
Eins og sakir standa, tel eg nauð-
synlegra að skýra þessi ágreinings-
mál alment, en að svara J. H. orði
til orðs. Skal þess þegar getið, að
þar sem eg tala alment um nýguð-
fræðina eða tilslökunar-stefnuna, þá
á eg ekki fremur við hvernig hún
birtist hér á landi en annarstaðar í
evangeliskum löndum.
Fyrstu trúmálahugleiðingar J. H.
snerust aðallega um að sýna fram á
hvað mikil þörf væri á nýrri guð-
fræði. Og væri það rétt, sem J. H.
segir í III. kaflanum, að nýja guð-
fræðin væri »ékkert annað en tima-
beer útlistun hinna gömlu trúarsann-
inda, sem mynda höfuðinntak þess
fagnaðarerindis, sem Jesús flutti heim-
inum«l) — þá yrðu líklega fáir guð-
*) J. H. hefir auðsjáanlega átt erf-