Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Page 34
34 —
19. (»i nafni föðursins, sonarins og
hins heilaga andac). Hinar 3 per-
sónur guðdómsins eru nefndar sam-
hliðaíl. Kor. 12. 4—6; II. Kor 13,
13. — postullega blessunin — og
I. Pét. 1., 2.«.
Fjölda marga aðra ritningarstaði
benti hann oss á réttilega á þeim
árum, sem beinlínis og óbeinlínis
styddu þrenningarlærdóminn.— Hon-
um var og fjarri skapi þá að hafna
persónuleik heilags anda, þótt hann
virðist gera það nó. —
En jafnvel þótt hann kunni að
hafna sannleiksgildi allra þessa ritn-
ingarorða nú — að sið þeirra nýguð-
fræðinga, sem láta »dogmatíkc sína
og trúarskoðanir mestu ráða í »biblíu-
rannsóknumc sínum — þátrúi eg ekki
öðru en ritningarorðin fái samt að
vera kyr »milli spjalda bibllunnar«,
bæði hjá prófessorum og öðrum.
Á hinn bóginn get eg ekki betur
séð, en að próf. J. H. vilji í Krists-
fræði sinni fara meðalveg milli únitara
og skoðana þeirra, sem ríkt hafa í
kristinni kirkju um liðnar aldir.
Eg býst við, að hann vilji ekki
taka alveg undir með únitörum og
segja, að ekki hafi verið neitt nema
stigmunur milli Jesú og annara manna,