Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Page 14

Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Page 14
— i4 — þá oft gripið til handhægrar »sönn- unar«, sem svo hljóðar: »Fyrst hér er sagt frá kraftaverki hlýtur sagan að vera ýkt eða ósönn með ölluc.1) J) Slík »röksemdafærsla« er mér persónulega minnisstæð, því að það var hún sem opnaði á mér augun svo að eg sá að biblíurannsóknir ný- guðfræðinga voru hlutdrægar. Eg trúði því í einlægni á prestakólaár- um minum að biblíukrílíkin væri al- veg óhlutdræg vísindi, og því væri sjálfsagt að viðurkenna ályktanir hennar og fullyrðingar, sem mér voru kendar og sérstaklega komu óþægi- lega við ritvissu og sannleiks- gildi margra rita gamla testamentis- ins. Að vísu skildist mér að sumar þessar fullyrðingar mundu særa trú- artilfinningu ýmsra, og oft heyrði eg árið eftir að eg útskrifaðist, danska kennimehn fara hörðum orðum um biblíukrítikina. Einkum eru mér minnisstæð ummæli Lúðvigs Schröd- ers skólnstjóra á Askov, er hann var að kvarta um hvað mikið hefði borið á biblíukrítík i fyrirlestri, sem síra Skovgaard-Petersen hafði haldið þar árið áður. En eg hugsaði með sjálf- um að það væri til litils að spyrna gegn vísindalegum sannleika. Svo var eg á stúdentafundinum á Leckö við biblíufyrirlestra hjá Michelet próf. frá Kristjaníu og þar heyrði eg »sönn-

x

Nýtt og gamalt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt og gamalt
https://timarit.is/publication/853

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.