Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Page 16

Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Page 16
ósannindi, sem þeir þykjast finna, í biblíunni, því vænna þykir þeim um hana virðist manni. Og þau versin eða biblíukaflarnir, sem »trú- armeðvitund* þess eða þess guð- fræðingsins felst á, telur hann guð- innblásin. Þetta er svo talið með óhlutdrœqum vlsindum I Þessum grundvallarreglum um vé- fengingar allra kraftaverka og um úrskurðarvald trúarmeðvitundarinnar andmælir eldri stefnan gersatnlegn, og telur þær jafnt fjarri röksemda- leiðslu sannra visinda, sem sönnum kristindómi. Og eg get ekki séð, að reglur þessar séu neitt betri fyrir það, þótt ýmsir nýguðfæoingar beiti þeim ekki nema að sumu leyti, nerrii staðar á miðri leið og láti stjórnast af trúarþörf eða trúararfi sínum, þvert ofan í reglur sínar og röksemdir1). Sjálfsagt er og að kannast við, að þeir munu oftast sjálfir sannfærðir um, að stefna þessi verÖi til eflingar sönnum kristindómi, enda hefir þá *) Má viða sjá þess merki í greinum í. H. að höfuð og hjarta togast á um yfirráðin, enda vill hann auðsjá- anlega ekki hafna nema sumum krafta- verkasögunum, þeim sem honutn þykja ótrúlegastar.

x

Nýtt og gamalt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt og gamalt
https://timarit.is/publication/853

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.