Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Síða 25

Nýtt og gamalt - 01.02.1914, Síða 25
milli trúarjátninga kirkju sinnar eða »gömlu« guðfræðinnar, og hinna, sem hika ekki við að fylgja megin- reglum stefnunnar nokkurn veginp rökrétt alla leið, enda þótt leið sú liggi út úr öllum sögulegum kristin- dómi og stundum allar götur út í algyðistrú. Því er ekki að leyna, að eftir því sem mér er kunnugt urn þessa »miðlunarguðfræðinga« virðist mér rökfræðin eða röksemdaleiðslan einna lökust hjá þeim, enda þótt þeir sjálf- ir vilji vitanlega láta kalla hana vís- indalega. En á hinn bóginn kemur þar stundum í ljós svo mikið af ein- lægum trúartilfinningum, að mér hefir komið i hug hvort vér jákvæð- ir guðfræðingar værum ekki að bera vopn á bræður vora, að því er suma þeirra snertir, með ýmsu af þvi sem við þá og urn þá er sagt frá vorri hlið. Trú þeirra sumra virðist mér sem sé vera miklu betri en guðfræði þeirra er, og þá vil eg heldur lita á trúna, að þvi er einstaklinginn snertir. Aðal-mein þeirra flestallra eru meðal annars þessi: Þeir bera svo mikla lotningu fyrir hinni svo nefndu »sögulegu og bókmentalegu krítik* nýja testamentisins hjá svæsnum 2

x

Nýtt og gamalt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt og gamalt
https://timarit.is/publication/853

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.