Vera - 01.05.1983, Qupperneq 5

Vera - 01.05.1983, Qupperneq 5
Flestir þekkja hvernig sjálfsöryggiö helst í hendur viö hugmyndir þær sem viö gerum okkur um útlit okkar. Teljum viö útlitiö í lagi er sjálfstraustiö nóg en ef við erum í götóttum sokkum eöa meö graftarbólu á nefinu fyllumst við óöryggi og óánægju mcð okkur. Öll erum við misjöfn, sem betur fer, og greinilegt er að ekki er ætlast til frá náttúr- unnar hendi aö viö séum eins. Þrátt fyrir þaö viröist þó alltaf sem eitthvað ákveðið útlit sé eftirsóknarverðara en annað og allir veröi að reyna að líkja eftir því. Þetta draumaútlit er nokkuð mismunandi eftir tískustefnum en þó er alltaf eitt sem breyt- ist ekki. Konur eiga aö vera tmgar. Einnig hafa þær, a. m. k. undanfarna áratugi, átt aö vera grannar, sífellt í góöu skapi og þar meö brosmildar og auðvitað bera þaö meö sér aö þær séu undirgefnar, viökvæmar og ánægðar meö hlutskipi sitt. Konur hafa því rembst viö aö halda sér grönnum, þar sem þær standa yfir pottunum, og ungum þótt tíminn vinni gegn þeim. Miklum tíma, fjár- munum og orku er eytt í þaö aö stunda megrun, snyrtistofur og velja klæðnaö viö hæfi. Þaö er ekkert á móti því að líta vel út en það er ömurlegt að vera sífellt að reyna að líta „öðruvtsi" út. Og hafa ekki allir tekið eftir því hve útlit fólks skiptir litlu máli eftir aö maður er farinn að kynnast því? Alls kyns ósamkvæmni kemur fram í sambandi viö útlit. Konur eiga t. d. aö halda sér ungum helst alla ævina en ef þær klæða sig eins og táningar eftir að þær (óhjákvæmilega) eldast eru þær litnar hornauga. Alls staðar gleymur við ,,ung er konan fögur" og hver vill ekki vera falleg? En viö eldumst allar og hvernig er það, hafið þiö ekki séö fallegar eldri konur, sem hafa bæöi hrukkur og grásprengt hár? Margar hinna óskráðu krafa um útlit fólks eru geröar bæöi til karla og kvenna. En yfirleitt eru þær geröar í margfalt meira mæli til kvenna. Ekki heyrist auglýst „ung- ur er karlinn fríöur" eöa „herraleikfimi — sértímar fyrir þá sem þurfa að losna viö aukakílóin". Karlar mega nefnilega eldast — og það sem meira er — þeir mega bera aldurinn utan á sér. En slíkt og þvílíkt leyf- ist konum ekki. I tískuverslunum og tísku- blöðum er stöðugt höföað til kvenna. Þær veröa aö vera glæsilegar, jafnt á nóttu sem degi. Konum er innprentaö að útlitiö skipti þær öllu máli. Þær eiga að komast í gegnum lífiö á fallegu brosi og fögrum fótleggjum. En ekki er nóg með aö útlitið skipti kon- urnar sjálfar miklu máli. Þaö getur nefni- lega haft mikið aö segja fyrir eiginmenn aö konurnar þeirra líti vel út. Þær veröa að hafa útlit og framkomu sem gerir körlunum kleift aö taka þær meö sér og sýna á mannamótum. Þannig eiga konur aö vera skrautfjaðrir í hatti eiginmanna sinna. Það sjást greinilega tískustefnur í klæða- buröi og háttum fólks eftir því hvort það telur sig til hægri eða vinstri í pólitík. Vinstri sinnar klæðast flauelsbuxum, muss- um og kínaskóm á meðan hægri sinnar eru í skyrtum, blúsum. terelynbuxum og leöur- mokkasíutn. En hvorum flokknum sem fólk tilheyrir er ljóst að það leggur mikið upp úr því að halda útlit síns hóps. Viö þurfum aö gera okkur grein fyrir því aö við erum teymdar á asnaeyrum hvaö kröfur um útlit varðar. Með því að í'á konur til að eyða orku sinni í að huga að og „betrumbæta" útlit sitt er síður hætta á að þær seilist inn á valdasvið karla. Konur það er fleira við okkur en útlitð! Se. 5*

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.