Vera - 01.05.1983, Side 10

Vera - 01.05.1983, Side 10
Líklega vita allir hvaö tískublöð eru, alla vega hvernig þau líta út og hvað þau hafa að geyma. En fyrir hverja eru þessi blöð og hvaða tilgangi þjóna þau? Margar og mismunandi skoðanir eru á því. Hér á íslandi þekkjum við tískublöð frá fjölmörgum löndum. en mér vitanlega er aðeins gefið út eitt tískublað íslenskt, tísku- blaðið Líf. Útgefandi þess segir í fyrsta blaðinu: „Fólk velur sérritin með tilliti til atvinnu sinnar eða áhugamála, og gefst með lestri þeirra betra tækifæri til þess að auka þekk- ingu sína á áhuga- og atvinnusviðum sínum en á annan hátt. Það hefur ekki farið framhjá neinum hversu miklum vinsældum er- lend sérrit sem fjalla um áhugasvið konunnar hafa náð ekki síður hérlendis en erlendis.“ (1. tbl. 1. árg. Líf). Þá vitum viö það, allar konur liafa sömu áhugamál og sækjast því eftir sama lesefni — allar konur eru settar undir einn hatt. En eru konur svo einsleitur hópur að hægt sé að tala um þær sem konuna, og ef svo er gefa þá tískublöðin sanna mynd af áhugamál- um hennar'? Jackie Onassis og við hinar Fjölmiölar eru einn mikilvirkasti mótunaraðili samfélags okkar og tískublöð teljast til þeirra. Nokkrar rannsóknir hafa veriðgerð- ar á tískublöðum, vikublöðum og kvennablöðum en oft er erfitt að flokka hin ýmsu blöö og tímarit undir eitt þessara heita, mörg eru þau eins konar sambland af þessu öllu. Erlendis, bæði í USA og UK, er gefinn út sægur kvennatímarita sem ekki eru öll ætluð sömu hópum í þessurn þjóðfélögum. Til dæmis eru bandarísku tímaritin Red book, Ladies ’Home Journal ætluö miðstéttarhúsmæðrum, tímaritið Ms. ætlað frjálslyndum konum í efri millistétt og tímaritið True story ætlað konum úr verkalýðsstétt. Þrátt fyrir þessa vídd þá virðist það vera gegnum- gangandi tilhneyging samkvæmt innihaldsrannsóknum, að öll þessi kvennatímarit framleiði svipaða ímynd af kvenlegum einkennum. Hún er stuðningspúði fyrir aðra og mjög upptekin af tilfinninga- legum hliðum og jafnvægi í lífinu, konan er sköpuö til að þóknast öðrum. Þegar henni mistekst í því hlutverki er hún kurteisislega fordæmd. Með því að skilgrcina heim kvenna þá gefa öll þessi tímarit til kynna þá hugmynd að stétt sé óviökomandi konurn og eigi alls ekki viö er skilgreina á kvenleika. Tímaritin leiöa hjá sér þá stað- reynd að konur búa við mismunandi félagslegar aöstæður og til- heyra mismunandi stéttum. Samkvæmt þessum tímaritum eru TÖKUM SPEGILINN í EIGIN HENDUR & 10

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.