Vera - 01.10.1989, Side 8

Vera - 01.10.1989, Side 8
\im HIÐ ÓLEYSANLEG/ Þegar talið berst að sektarkennd eða samviskubiti eru allar konur vel heima í efninu en mæður sérfræðing- ar. Þær þekkja tilfinningahnútinn sem kom karlinum, hér á undan, spánskt fyrir sjónir. Þennan hnút sem fær okkur til að hlaupa við fót heim á leið eftir of langan vinnudag, fund sem drógst á langinn eða búðarráp sem tók lengri tíma en til stóð. Þennan hnút sem herpist saman þegar við leiðum hugann að því að kannski komi veraldlegt vafstur okkar í dag niður á börnunum okkar á morgun. Þær þekkja þá óreiðu sem kemst á hugann, viljann og tilfinningarnar þegar valið stendur milli þess að fá sér meiri launavinnu og vera minna heima á daginn eða vera meira heima og minnka við sig launavinnu, jafnvel hætta henni að mestu. Eflaust eru margir þeirrar skoðunar að konur og karlar eigi í raun ekkert val og verði að vinna fulla vinnu utan heimilis eigi endar að ná saman. Að auki komi samfélagið ekkert til móts við foreldra ungra barna og þ.a.l. verði þeir að notast við dýrar hall- ærislausnir í barnapössunarmálum. Þegar þær lausnir svari ekki lengur kostnaði verði það hlutskipti kon- unnar að brjóta upp starfsferil sinn og taka til við heimilisstörfin þar sem karlinn hafi meiri tekjumöguleika en hún. Þessi mynd blasir mjög víða við og vissulega er hún sönn, en hitt er líka satt að við höfum öll ákveðið val þó innan vissra marka sé. Við erum gerendur í lífi okkar ekki síður en þolendur. Ef við neitum því getum við eins lagst með tærnar upp í loft. Margar konur eru sáttar við það að hafa heimilisstörf að aðalstarfi og finnst þau gildi sem ráða á vinnu- markaðnum engan veginn eftir- sóknarverð. Ekki er þó örgrannt um að þær fái sektarkennd yfir því að vera ,,bara húsmæður". Aðrar reyna að telja sjálfum sér trú um að þær hafi valið að vera heima — það sé það sem þær vilji — en eru samt haldnar stöðugri löngun til fá sér launaða vinnu. Þær hafa sektarkennd yfir því að langa í raun eitt og gera svo annað. Svo eru þær sem eru að kikna undan því álagi sem fylgir stöðugum þeytingi milli heimilis og vinnu og þær sjá heimilið í hyllingum. Þær ákveða jafnvel að gerast heima- vinnandi og viti menn, eftir skamm- an tíma sjá þær heiminn fyrir utan í sömu hyllingum og heimilið áður. Þær fá sektarkennd yfir því að vita ekki hvað þær vilja og yfir því að njóta ekki nægilega samvistanna við börnin. Enn eru svo konur sem eru og hafa ákveðið að vera á vinnumarkaði með þeim kostum og göllum sem því fylgir og skipuleggja heimilishald með tilliti til þess. Þær eru margar hverjar með sektarkennd yfir því að vera of eigingjarnar og ekki nógu góðar mæður og eins yfir því að heimilið lítur alls ekki alltaf út eins og góð heimili eiga að gera. Þó sektarkennd kvenna sé afskaplega slítandi fyrir þær sjálfar og komi í veg fyrir að þær geri réttmætar kröfur til annarra, þá hefur hún reynst sam- félaginu í heild ansi notadrjúg. Hún er eins og rofi á vararafstöð. Þegar ýtt er á hana fara konur í gang og bjarga því sem bjargað verður. Þær reyna að þóknast umhverfi sínu og sínum nánustu og standa sína plikt svo eng- inn geti nú brigslað þeim um annað. Eftir sitja þær sjálfar með óuppfylltar þarfir og langanir, fremur slappa sjálfsímynd og óljósa hugmynd um að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera. En hvar liggja rætur þessarar sektar- kenndar? Voru konur fyrri kynslóða jafn plagaðar af henni og við? Lítum fyrst á skrif íslenskra skáld- kvenna. Hvað með rithöfundinn, bæjarfulltrúann, þingkonuna og 10 barna móðurina Guðrúnu Lárusdótt- ur sem samhliða margvíslegum skyldustörfum gaf út 10 skáldsögur og 2 smásagnasöfn? Og hvað með skáldkonuna Huldu sem var hús- móðir á stóru sveitaheimili? Höfðu þessar konur aldrei sektarkennd gagnvart börnum sínum? Ekki er hægt að merkja það af sögum þeirra. Vissu- lega upplifðu þær togstreitu en hún var öðru fremur milli langanna þeirra og skyldu og þær virðast ekki velkjast í neinum vafa um hvort beri að velja. Konum ber að fórna sér. Um þetta segir Soffía Auður Birgisdótt- ir m.a. í formála að bókinni Sögur ís- lenskra kvenna 1879-1960: ,,I sögum Huldu ber konum að fórna sér skilyrðislaust fyrir börn og heimili, þótt þær kunni að dreyma um annað hlutskipti. Sú fórn er þó aldrei auð- veld...“. Segja má að með því að fórna sér hafi konur að vissu leyti svikið sjálfar sig en slík svik kalla ekki á sektarkennd nema þá hjá öðrum. Það er ekki fyrr en eftir 1920 sem upp koma efasemdir um ágæti fórnarinnar og sjálfsímynd kvenna í bókmenntum tekur ekki að breytast að neinu marki fyrr en eftir seinni heimsstyrjöld. Kannski má segja að formæður okkar hafi tæpast staðið andspænis neinu vali. Þær bjuggu í kyrrstöðusamfélagi þar sem hlutverk og skyldur voru fast afmörkuð og fólk lifði svipuðu lífi kynslóð eftir kynslóð. Hið sama verður ekki sagt um nútímasam- félagið þar sem þekking úreldist nánast jafn hratt og hún er fengin og hreyfanleikinn er hin æðsta dyggð. Og þó við höfum kannski ekkert af- gerandi val um hinar stóru lxnur í lífi okkar og samfélagi þá höfum við val 8

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.