Vera - 01.10.1989, Qupperneq 15

Vera - 01.10.1989, Qupperneq 15
líkamlegt. Þá er það oft sem varnirn- ar bresta og manneskjan heldur það ekki út, hún hefur ekki þol til að standa þetta af sér og segja: „Það gerir ekkert til þó fólk gagnrýni mig og sé að draga úr mér, það gerir ekkert til þó mér líði illa, ég geri þetta samt.“ En þetta þarf hún kannski að geta gert meðan hún er að komast yfir ákveð- inn þröskuld og aðlaga aðra fjöl- skyldumeðlimi að því að svona er þetta. Það þarf ákveðna hörku til að standast þessa raun og oft standa konur mjög einar í þessu og njóta alls ekki stuðnings sinnar nánustu fjöl- skyldu. Á þessari öld hafa þœr sól- frœöikenningar vegiö mjög þungt sem leggja áherslu á barnœskuna sem mótunarskeiö — sem n.k. forsögn aö því sem koma skal á fulloröinsárunum. Er ekki hugsaniegt aö þessar kenn- ingar hafi aliö á sektarkennd kvenna? Ég get ekki ímyndað mér að sál- fræðikenningar, um mikilvægi bernskunnar fyrir seinni tíma þróun og líðan einstaklingsins, hafi í sjálfu sér alið á sektarkennd. í fyrsta lagi held ég að margar konur þekki þess- ar kenningar ekki að neinu marki. í öðru lagi er það mín sannfæring að þessar kenningar eigi við sterk rök að styðjast og öll klínísk reynsla og rann- sóknir í sálarfræði renna stoðum und- ir slíkt. Það má hins vegar segja að það sé kannski synd að staðreyndir og vitneskja um þessi mál hefur ekki verið notuð nægjanlega vel af konum, bæði til að skilja sjálfar sig betur og til að krefjast betra lífs bæði fyrir sig, börn sín og fjölskyldu. Hvernig geta konur tekist á viö sektarkennd sína? Sá sem upplifir vandann er sá sem verður að takast á við hann. Sá sem er þjakaður af sektarkennd verður sjálfur að vinna með hana og skilja þær aðstæður og þau viðbrögð sem ala á henni. Ef maður gerir það ekki þá er í raun verið að auka á sektar- kenndina. Konur verða að auki að greina á milli raunverulegrar sektar- kenndar, sem krefst úrlausnar með aðferðum skynseminnar, og sektar- kenndar sem er óraunhæf og tauga- veiklunarkennd. Slík sektarkennd þarfnast meðferðar ef viðkomandi ætlar ekki að lifa í neikvæðu og eyði- leggjandi lífsmynstri sem þjáir hann sjálfan mest. Það getur hins vegar kostað rnikla vinnu að komast út úr niðurnjörvuðu mynstri sektarkenndar en það er þess virði til að reyna að öðlast frelsið, sjálfsvirðinguna og sjálfstraustið. isg. ERTU SAMVISKULAUS? 1) Þú veist aö föðursystir manns- Stenst þú SQin- ins þlns á afmœli á morgun. Þú VÍSkllDrÓfÍÖ eöa a) stin9ur þessum upplýsingum * . aö manninum þínum. fellur þU. b) skreppur og kaupir handa henni gjöf. c) vonar aö þaö veröi gaman I veislunni. 2) Þiö hjónin eruö í flnu matar- boöi og þú sérö aö þaö vantar tölu á skyrtuna hans. Þú hugsar sem svo a) œ, af hverju lét ég hann fara I þessa skyrtu? b) hvaö skyldi vera I eftirréft? c) vonandi tekur enginn eftir þessu! 5) Barnið ykkar á aö fara til eyrnalœknis. Þú a) fœrö þér frí úr vinnunni, flýtir þér til dagmömmunnar, ferö til lœknisins og slöan aftur I vinnuna meö nagandi samviskubit yfir því hversu oft þú hefur tekiö frí. b) ergir þig á því allan daginn aö alltaf skulir þú þurfa aö sjá um þessa hluti og veröur svo of sein til lœknisins. c) spyrö sambýlismann þinn þegar þú kemur heim úr vinnunni hvernig hafi gengiö hjá lœkn- inum. 6) Þú œtlar á ráöstefnu um helg- ina. Þú a) ferö og kaupir inn til helg- arinnar og biöur sambýlismann- inn aö passa börnin. b) hringir I mömmu og fœrö hana til aö taka krakkana annan daginn og tengdamömmu hluta úr hinum. c) segir sambýlismanni og börnum aö þú þurfir aö fara á ráöstefnu tiltekna helgi og ferö svo I fyllingu tlmans. 3) Eftir þriggja vikna vœtutlö spáir veöurstofan sól um helgina. Þú a) ferö og kaupir stuttbuxurnar þú sást um daginn. b) gerir laugardagshreingern- inguna á föstudagsnótt til aö öll fjölskyldan komist upp I sveit um helgina. c) sendir liöiö úr bœnum og fœrö friö til að sauma nýju gardínurnar á meöan. 4) Þiöeruðboðinísamkvœmitil vinar hans I kvöld. Þú a) ferö I freyöibaö, lakkar negl- urnar á tánum og klœöir þig I betri fötin. b) útvegar barnapössun, pressar buxurnar hans, gefur krökkunum aö boröa, ferö I eld- snögga sturtu og drífur þig I betri fötin. c) getur meö engu móti ákveö- iö hvort þig langar aö fara eöa ekki af því þér finnst þú ekkert eiga til aö fara I. 7) Barnið ykkar verður 7 ára á morgun. Þú a) þrífur, kaupir inn, bakar, skreytir, býöur öllum vinunum, afa og ömmu, frœnkunum og frœnd- unum, skipuleggur leiki og skemmtiatriði og eldar svo ofan I manninn aö afmœlinu loknu. b) ert svo upptekin I vinnunni aö þú frestar afmœlinu um óákveö- inn tíma en kaupir sportmódel af fjarstýröum bíl I staöinn. c) Lœtur barniö um aö bjóöa, hjálpar manninum aö baka og barninu aö skreyta og skemmtir þér konunglega I veislunni. Stigagjöf: 1) a) 5 stig b) 10 stig c) 0 stig. 2) a) 10 stig b) 0 stig c) 5 stig. 3) a) 0 stig b) 10 stig c) 10 stig. 4) a) 0 stig b) 10 stig c) 5 stig. 5) a) 10 stig b) 5 stig c) 0 stig. 6) a) 5 stig b) 10 stig c) 0 stig. 7) a) 10 stig b) 0 stig c) 5 stig. 50-70 stig. Ábyrgðartilfinningin bókstaflega lekur af þér. Þú þarft aö koma minnsta kosti 30 stigum yfir á manninn þinn. 25-50 stig. Þaö er hlaupinn ofvöxtur I áþyrgöartilfinninguna. Ef þú passar þig ekki endar þú fljótlega I nœsta flokki fyrir ofan. 5-25 stig. Þú ert frjáls og ábyrg kona. Stattu þig! 0 stig. Þú ert áþyrgöarlaus og œttir aö vera meö sektarkennd! 15

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.