Vera - 01.10.1989, Qupperneq 22

Vera - 01.10.1989, Qupperneq 22
þá hafði séð, og fleiri og fleiri. Það var mikil hugbót að hlusta á slíkar um- ræður — en kvöldin voru löng og Ijósin slökkt. Elín var gömul og sofn- aði snemma. Til þess að hafa einhvern félagsskap fór ég í andaglas og síðan að skrifa ósjálfrátt. Vantaði þá ekki félags- skapinn — framliðið fólk sem ég þekkti sjaldnast nema af afspurn. Allt hafði fólk þetta sama boðskapinn. Ég átti eingöngu að hugsa um andlega hluti og bænagerð. Allir sem fást við hið yfirnáttúrulega verða varir við öflin tvenn, gott og illt. En ekki þurfti nema að kalla á síra Hallgrím Pétursson, þá hurfu allir dökkálfar. Viðfangsefnið var sem sé mínar miklu syndir og endurlausnarkenn- ingin. En hvaða syndir átti ég svo sem að hafa getað drýgt, vesalingur sem oftast hafði veriö lokuð inni á stofn- unum? Einhver öskufúll spekingur hafði þó sagt: „Það er ekki til sú synd að ég hafi ekki fundið rót hennar í minni eigin sál.“ — Þá hafði ég það. Ég hugsaði mikið um það hvers vegna ég fengi að lifa þegar ungir vinir mínir voru að deyja allt í kring- um mig og komst að þeirri niðurstöðu að þarna á bak við lægi einhver til- gangur. Mér væri ætlað að lifa eitt- hvað mjög merkilegt þegar mér batnaði. Og þess var ekki langt að bíða. Eina nóttina sögðu hinir fram- liðnu við mig: ,,Nú hættir þú bráðum að tala við okkur.“ Því vildi ég ekki trúa um svo ágætan félagsskap. Skömmu seinna var ég send í að- gerð inn á Landakotsspítala og þótti hún heppnast það vel að nálgaðist kraftaverk. Ef Matthíasi Einarssyni lækni hefði ekki tekist jafn vel með mig og raun varð á, væri ég núna með kryppu því bakið á mér var með stór- an hnút. En Matthías rétti úr mér svo ég gat gengið bein. Nú þóttist ég hafa fengið svar. Ég átti að kynna mér rómversk-kaþólska trú. Ég bað systurnar um bækur og fékk rit Jóhannesar Jörgensens frum- herja kaþólskunnar á Norðurlöndum, þess sem kom Kiljan í klaustrið forð- um. En um það vissi ég ekkert þá. Við lestur þessara og annara kaþólskra rita fannst mér ég koma úr skamm- degi inn í bjartan dag. Ég ákvað að verða kaþólsk. Þetta var árið 1931- Ég gerði mér fyllilega grein fyrir að það er ekkert smáskref að hafa siðaskipti, en á þeim tíma var al- menningur alls ófróður um kaþólskan sið og kallaði slíkt heiðindóm og villutrú. Ég var lengi að velta því fyrir mér hvernig ég gæti sagt frá ákvörð- un minni við systurnar án þess aðrir heyrðu. Ég lá á þriggja manna stofu og einn daginn var eitt rúmið tómt og konan í hinu rúminu varð skyndilega rugluð, og með óráði. Þarna kom tækifærið. En þá var ég gripin köldum efa. Var þetta Guðs vilji? Þá allt í einu sá ég birtast óljósa mynd frammi við dyrn- ar sem skýrðist smátt og smátt. Það var ung kona í nunnubúningi Karmel- reglunnar. Ég þóttist vita hver hún var, hin heilaga Teresa frá Lisiaux, en sögu hennar hafði ég lesið. Nú þurfti ekki frekar vitnanna við. Þegar systir Balbína kom inn sagði ég: „Systir, ég ætla að verða kaþólsk." „Ja, sá,“ var það eina sem hún sagði. Daginn eftir rétti hún mér bæna- kver og sagði: „Soster Clemensia siger man skal ikke lobe sádan.“ En þarna var stofufélagi minn, orðinn allt í einu með fullu ráði, eins og ekkert hefði í skorist. Þegar systurnar sáu að mér var fullkomin alvara kölluðu þær á Meulenberg biskup sem var hámennt- aður guðfræðingur og hann upp- fræddi mig um heilaga kirkju. Hann gaf mér alveg nýja sýn yfir íslandssöguna og þátt rómversku kirkjunnar í mótun íslenskrar forn- menningar. Menntunarþörf mín hefur síðan farið mjög eftir kaþólskum leið- um um sagnfræði og heimspeki. Ég varð mjög hrifin af heimskirkj unni og datt í hug að gerast nunna. Um þetta leyti voru fimm ungar, ís- lenskar stúlkur á leið í Jósefsreglu, þar á meðal besta vinkona mín Jónína Jónsdóttir frá Blönduósi sem fór utan skömmu síðar. Ég hafðifyrir löngu ætlað í Kennaraskólann og tók þar próf 1933- Nú þóttist ég geta orðið kennslununna. En ekki virtist Guð vilja það. Ég veiktist aftur af berklum og var þá útséð um klausturvistina. Skömmu seinna náði ég aftur heilsu nokkurn veginn. En lengi saknaði ég klaustursins. Það var eins og horfin ást. Eg gerðist kennslukona við Landa- kotsskóla í átta ár, til 1941. Þar var gott að vera. Á þeim árum lifði ég lífi ungu, ógiftu stúlkunnar sem bjó ein í herbergi í vesturbænum. Ýmsir vildu létta mér þá einveru, ungir menn og gamlir. Fyrst varð ég upp- veðruð vegna athygli kvæntra merk- ismanna sem voru miklu ofar í mannfélagsstiganum en ég. Hélt ég að þarna yrði mikið um andlegar um- ræður og bauð þá fyrst velkomna. En þá varð ræða höfðingja þessara nær eingöngu um leiðinlegar eiginkonur sem þeir höfðu slysast til að eiga og að sögn skilningslausar mjög um þarfir stórmennanna. Átti ég nú víst að bæta þar úr. Ég varð ákaflega hneyksluð, hafði mikið meyjarstolt og stutt varð í þessum heimsóknum. Annars var ég ekkert áfram um að gifta mig. Húsmóðurstaða þeirra tíma var oftast mikill þrældómur, nema hjá efnuðu fólki. En einstæðar mæður áttu illa æfi. Gömul vinkona „Ég veiktist aftur af berklum og var þá útséö um klausturvistina. Skömmu seinna náöi ég aftur heilsu nokkurn veginn. En lengi saknaöi ég klaustursins. Þaö var eins og horfin ást.” mín, Kristín systir Einars Benedikts- sonar skálds, sagði einu sinni við mig: „Þér eigið að gifta yður, góða mín. Hin ógifta kona einangrast í þjóð- félaginu.“ Ég fór að hugsa minn gang og loks kom að því að ég fann mann sem ég gat treyst. Árið 1939 giftist ég Sæmundi L. Jó- hannessyni frá Barðaströnd. Hann var þá í Stýrimannaskólanum og varð seinna stýrimaður og skipstjóri á togurum og við fluttumst til Patreks- fjarðar. Við eignuðumst fyrsta barnið 1940, Jóhannes sem seinna varð íþróttakennari í M.R. Næst kom Guð- rún skrifstofumaður, síðan Margrét fóstra. Ekki var alltaf hægt að fá ljós- móður á Patreksfirði og ég fór til Stykkishólms á fæðingardeild systr- anna. Þar fæddist Gullveig nú ritstjóri, Hjalti loftskeytamaður, Logi verk- stjóri og loks Frosti prentari 1953- Á Patreksfirði lifði ég lífi sjómanns- konunnar sem er algjör einvaldur á heimilinu því maðurinn er nær alltaf úti á sjó. Þessu kunni ég vel að mörgu leyti. En því fylgdi mikil ein- semd. Ég þekkti nær engan fyrstu árin og hús mitt fylltist af smábörnum. Það er mikið púl að eiga sjö börn á fáurn árum og hefði orðið mér ofviða ef ekki hefðu komið til ungu stúlkurnar sem ég fékk til hjálpar. Þetta var á stríðsárunum og ömurlegt í meira lagi að vita manninn sinn á sjó í þeim hildarleik. Einkum sló óhug á alla þegar kafbátar fóru að sökkva ís- lensku fiskiskipunum, fyrst Reykja- borginni og síðan Fróða, þar sem þeir létu ekki nægja að skjóta skipin niður heldur drápu mennina á björg- unarflekunum og um borð þá sem í varð náð. Það varð því mikil huggun að hafa þessar góðu stúlkur hjá sér til að tala við. Sumar voru hjá okkur árum sam- an, Hólmfríður Jónsdóttir í sjö ár og Guðlaug Guðmundsdóttir frá menn- ingarheimilinu Brjánslæk langdvölum og er heimilisvinur fram á þennan dag. Stúlkurnar voru mikið fleiri en mig langaði venjulega til að ég ætti þær sem dætur og hafði samviskubit yfir að geta ekki sent þær allar í skóla. En hvernig hefði þá farið um heim- ilishaldið? Þetta voru óskir sem aldrei gátu ræst. Þær hurfu mér flestar, þó ég frétti að þær urðu nýtar konur, hver á sínu sviði. En hvaðvarð um hana Diddu Hálfdanardóttur frá Önund- arfirði? Hún svaf mér til fóta í tóm- legu hjónarúminu 1942. Algert álfabarn með gullhár, gáfuð og skemmtileg. Hvar er hún nú? Ég sendi henni kveðju. Eg tók mikinn þátt í félagslífinu á Patreksfirði. Þar var fullt af sauma- klúbbum og félagsstarfi með skemmti- legum konum, t.d. í kvennadeild 22

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.