Vera - 01.10.1989, Page 27

Vera - 01.10.1989, Page 27
HÉÐAN OG ÞAÐAN KVENNA- ÚTVARP I vetur verður sú nýbreytni tekin upp í þáttaröðinni ,,í dagsins önn“ á rás 1, að í miðvikudagsþættinum verður sjónarhorn kvenna alls- ráðandi. Þar verður fjallað um hvaðeina sem varðar hlutverk, stöðu og hugmyndir kvenna. Reynt verður að fylgjast með því sem er efst á baugi í kvenna- umræðu hvort heldur sem þar er um að ræða menningu, listir, bókmenntir, pólitík, fræðigreinar eða annað. Er það m.a. hugmynd stjórnenda þáttarins að reyna að miðla því sem er að gerast í út- löndum og er stefnt að því að vera með sérstaka fréttaritara í Banda- ríkjunum, Bretlandi, Ítalíu og Svíþjóð. Og í öllu efni þáttarins eru það viðhorf kvenna sem eru í brennipunkti. ,,í dagsins önn“ verður á dagskrá á rás 1 alla virka daga f vetur kl. 13.05. Þessir þættir hafa unnið sér fastan sess í hugum margra út- varpshlustenda enda taka þeir á málum sem fá að öllu jöfnu lítið rúm í fjölmiðlum þ.e. félagslegum málum af ýmsu tagi. í þessum þáttum eru dregin fram þau svið mannlegs samfélags sem skipa svo stóran sess í hugum okkar allra en sem ekki þykja góð uppspretta frétta s.s. barnauppeldi, skóla- ganga, heimili, fjölskyldulíf, heil- brigði o.fl. Umsjón með þáttunum í vetur hafa Bergljót Baldursdótt- ir, Steinunn Harðardóttir, Ásdís Loftsdóttir, Þórarinn Eyfjörð og e.t.v. einhverjir fleiri. Þættirnir verða sinn með hvoru móti eftir vikudögum. Mánudagsþátturinn verður helgaður því sem er að ger- ast í ýmsum félagslegum málum á höfuðborgarsvæðinu s.s. dag- vistarmálum og skólamálum, og efni athyglisverðra funda og ráð- stefna gerð nokkur skil. Á þriðju- dögum verður sambærilegur þáttur frá Akureyri. Á miðviku- dögum verður kvennaþátturinn eins og fyrr sagði og á fimmtu- dögum verður þátturinn helgaður menningunni — ekki bara há- menningunni heldur ekki síður ýmsum menningarbundnum fyr- irbærum. Föstudagsþátturinn verður svo notaður til að segja frá því sem er á döfinni um helgina eða í komandi viku og tónlist fær meira rúm þennan dag en aðra daga. isg. B/\K VIÐ BYRGÐA Samtök um kvennaathvarf standa nú fyrir opnum kynningarfundum í Gerðubergi einu sinni í mánuði til þess að vekja athygli á málefnum samtakanna og því félagslega vandamáli sem þau fást við þ.e. kynferðislegu of- beldi af ýmsu tagi. Tveir fundir hafa þegar verið haldnir en næstu fundir verða: 7. nóvember kl. 20.15 Efni: Heimilisofbeldi. 5. desember kl. 20.15 Efni: Nauðgungarmál. í desember næstkomandi verða liðin 7 ár frá stofnun Kvennaathvarfsins. Helsta verkefni Samtaka um kvenna- athvarf hefur verið að veita konum sem búa við heimilisofbeldi tímabundið athvarf og stuðning. Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun athvarfsins hafa 978 konur komið til dvalar í athvarfinu en auk þeirra hafa dvalið þar 786 börn með mæðrum sínum. Mikilvægur liður í starfsemi Samtaka um kvennaathvarf er að stuðla að opinni umræðu og fræðslu um heim- ilisofbeldi m.a. til þess að auka skilning almennings og ráðamanna á umfangi og afleiðingum vandans. Fund- irnir í Gerðubergi eru liður í því. Eru fundirnir bæði fræðandi og vekjandi og hvetur VERA lesendur sína til að mæta og sýna athvarfinu þannig stuðning sinn í verki. 27 ORKIN/SÍA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.