Vera - 01.10.1989, Page 35

Vera - 01.10.1989, Page 35
VARNARSAMNINGURINN ER UPPSEGJANLEGUR „Kvennalistinn lýsir undrun sinni og áhyggjum yfir því að æ ofan í æ berast frétt- ir af áætlunum um langdvöl bandarísks her- liðs á íslandi.“ Þetta eru upphafsorð ályktunar frá Kvennalistanum þar sem á að er bent að herstöðvasamningurinn milli ís- lands og Bandaríkjanna sé uppsegjanlegur með aðeins átján mánaða fyrirvara. Engu að síður hafi verið gerður samningur við bandarísk stjórnvöld til að minnsta kosti fimmtán ára um vatnsafnot hersins á Suður- nesjum, heimilaðar hafa verið miklar íbúðabyggingar fyrir herinn, gert hefur verið samkomulag um uppbyggingu og af- not hersins af ijósleiðarakerfi Pósts og síma og fleira mætti telja. Þá segir: „Á tímum þíðu í alþjóðastjórnmálum og vilja til að draga úr vígvæðingu, væri þeim, sem trúað hefur verið fyrir stjórn landsins, nær að endur- skoða afstöðuna til veru hers á íslandi í stað þess að gera íslendinga sífellt háðari hernum efnahagslega." NÝJA FISKVEIÐISTEFNU. í ályktun sem samþykkt var á þingflokks- fundi Kvennalistans þann 1. sept. s.l. er lýst yfir áhyggjum yfir því ástandi sem skapast hefur víða um land vegna núgildandi stefnu í sjávarútvegsmálum. Hvert byggð- arlagið af öðru hafi mátt þola skipasölur með tilheyrandi kvótaflutningum á undan- förnum mánuðum. Slíkir atburðir skeki und- irstöður byggðarlaga sem byggja tilveru sína nær eingöngu á sjávarútvegi. Er bent á skyldu yfirvalda en síðan segir: „Aðalatriðið er þó að menn átti sig á því, að atburðir sem þessir munu halda áfram að gerast svo lengi sem fiskveiðikvótinn er bundinn við skip. Kvennalistakonur gerðu sér fyrir löngu grein fyrir hrikalegum af- leiðingum núgildandi fiskveiðistefnu. í ljósi síðustu atburða er vert að minna á til- lögur sem Kvennalistinn kynnti opinberlega þegar haustið 1987. Samkvæmt þeim yrði fiskveiðikvótinn ekki lengur bundinn við skip, heldur yrði a.m.k. 80% af heildarafl- anum skipt milli byggðarlaga með hliðsjón af lönduðum afla fyrri ára. Hefðu tillögur Kvennalistans náð fram að ganga þegar þær voru lagðar fram fyrir tveimur árum væri ástandið annað nú á þeim stöðum sem sætt hafa þungum búsifjum vegna vondra laga. Kvennaiistakonur leggja áherslu á nauðsyn þess að breyta núgildandi stefnu við endurskoðun laganna á komandi þingi.“ ALLIR SKOLAR í REYKJAVÍK EINSETNIR 1994-95 Um fá mál virðist í orðu kveðnu meiri samstaða í þjóðfélaginu en einsetinn, sam- felldan grunnskóla. Um þetta vitna sam- þykktir kennarasamtaka, niðusrstöður nefnda, þingsályktunartillögur og frum- vörp nánast allra stjórnmálaafla á Alþingi. í Borgarstjórn Reykjavíkur hefur þó ekki komið fram tillaga um einsetinn skóla fyrr en nú að fulltrúi Kvennalistans mælti fyrir slíkri tillögu þann 21. september. Tillagan er um fimm ára framkvæmdaáætlun sem gerir ráð fyrir 100 milljón króna við- bótarfjárveitingu á ári í fimm ár til að reisa skólastofur og koma þannig á ein- setningu. Við það er miðað að unnt verði að einsetja alla grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 1994-95. Öll heimili í Reykjavík, reyndar flest heimili í þéttbýli, þekkja óöryggið og rótleysið sem fylg- ir stuttum og óreglulegum vinnutíma barna í skólum. Börnin eru fyrir hádegi eitt árið og eftir hádegi það næsta. Þau þurfa að fara margar ferðir á dag í skólann, jafnvel með löngum hlé- um. Þau yngstu fá nauðastutta kennslu og yfirleitt stendur þeim sáralítil sem engin nær- ing til boða í skólanum. í samfélagi þar sem báðir foreldrar vinna langan vinnudag er þetta löngu orðið úrelt og algerlega óboðlegt, bæði fyrir börn og foreldra. Auk þess er þetta uppeldis- og menntunarlega séð ófullnægjandi. Hið harða húsbóndavald heldur um pyngjuna. Þetta ófremdarástand hefur þó sérlega hrjáð okkur konur og börnin í áranna rás. Ég fullyrði að löngu væri búið að færa þetta til betri vegar ef börnin sjálf eða við konurnar hefðum ráðið í hvaða röð framkvæmdir eru teknar í þjóð- félaginu. Konurnar í gömlu karlaflokkunum hafa svo sem ályktað um þessi mál. Þær hafa bara verið algerlega ofurliði bornar af körlunum þegar komið hefur að fjárveitingum. Því er það, að þrátt fyrir miklar yfirlýsingar virðist fátt það breytast sem er í þágu kvenna, barna og gamla fólksins hér á landi. Við lútum vilja karlanna og hjá þeim vantar viljann til þessara verka. Þeir halda enn um pyngjuna með hörðu húsbónda- valdi. Þeir líta pyngjuna sem sína eigin eign og skammta okkur síðan skít úr hnefa til þeirra mála sem brenna á okkur. Við Kvennalistakonur höfum áður lagt fram tillögur í þessum málaflokki. Við riðum á vaðið á Alþingi árið 1987 með ítarlegu frumvarpi um einsetinn, samfelldan skóla og lengdan kennsiu- tíma grunnskólanema. Þá myndaðist halle- lújakór á þinginu. Allir þingmenn sem tjáðu sig um málið voru á einu máli um ágæti þess. En frumvarpið hlaut ekki samþykki hallelújakórs- ins. Það reyndist enn sem fyrr ekki rifa á pyngj- unni þegar til kastanna kom. Til þess að koma á nútíma skóla hér á landi verður að opna pyngjuna. Áhlaup Kvennalistans á hallarmúra Davíðs. Nú gerðum við Kvennalistakonur áhlaup á Hall- armúrinn í borgarstjórn. Ekki er hann árenni- legur enda allur úr glansandi málmi, gleri og gljásteypu, en það er skylt að reyna. Það mynd- aðist ekki hallelújakór í borgarstjórn. Minni- hlutinn var okkur samferða en meirihlutinn 35

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.