Vera - 01.12.1997, Blaðsíða 48
9
ólabækurnar
Ulfabros
Ljóöabók eftir Önnu Valdimarsdóttur
Útgefandi: Forlagið 1997
Mér finnst að Ijóðabókin Úlfabros eftir Önnu Valdimars-
dóttur heföi getað haft undirtitilinn Ég er kona, að skrifa
um konu, frá konu, til konu. Svo mjög finnst mér hún
bera þess merki að vera sprottin úr hugarheimi konu.
Þetta er ekki sagt til að draga úr gildi Ijóöanna, heldur
einungis til að skerpa á því sem mér finnst einkenna
þau, og þaö þýðir heldur ekki að þau eigi aöeins erindi
til kvenna. Þau eru einlæg og opinská og þaö er auðvelt
að samsama sig hinu fjölbreytta tilfinningalitrófi sem
þau birta og viöbrögðum konunnar viö því sem hún
mætir í hversdagslegu amstri og samskiptum við börn
og maka. En fyrstu tvö Ijóöin gefa hins vegar til kynna
að viöbrögðin gætu verið önnur ef hún væri eöli sínu trú.
Samanber fyrsta Ijóðiö sem ber heitiö Úlfabros.
Bros þess sem veiöir
bros þess sem hleypur
villtur, frjáls
bros þess sem spangólar
aö fullu tungli.
Hví skyldu konur ekki brosa?
Úlfabrosum.
Líka það næsta.
Rödd konu.
Hún rís upp
á afturfæturna
og lætur í sér heyra.
Þessi tvö Ijóð, svo og nafn bókarinnar, finnst mér hafa
beina skírskotun til bókar Clarissu Pinkola Estés,
Women Who Run With the Wolfes. Þar segir hún að sér-
hver kona fæðist með frumeðli hinnar villtu konu, en að
konan sem „tegund" sé í útrýmingarhættu vegna þess
að samfélag, siöir og venjur hafi frá örófi alda þrúgað og
bælt þetta frumeöli. Og innan á þókarkápu þeirrar bók-
ar segir í lauslegri þýðingu undirritaörar: „aö án hinnar
villtu konu (í okkur sjálfum) verðum við eins konar nytja-
dýr, kjarklausar, rændar sköpunarmætti, fjötraðar".
Strax í þriöja Ijóðinu kemur þetta fram. Nútfmakonan
þlygðast sfn fýrir að hafa áhuga á þvf sem Sþrottiö er af
einni frumhvöt manneskjunnar, kynhvötinni. Konur eiga
ekki og mega ekki láta f Ijósi slíkan áhuga. Ljóöiö lýsir
vandræöaganginum sem hlýst af því að konan, sem er
að kaupa í matinn, lætur undan forvitni sinni á að
glugga i þlað sem fjallar um þessa forboönu hluti. Síð-
an eru Ijóöin Pollyanna og Uþplitsdjörf. Þar er hvatning-
in til að gera það sem hana langar til, hvaö sem öðru
líður. Hún þarf ekki að sýnast neitt annað en hún er.
Þannig einkennast Ijóðin f heild af innri báráttu konunn-
ar. Baráttunni milli þess að gera það sem aðrir ætlast
til af henni og þvf sem hana sjálfa langar til að gera.
Særindunum yfir því að vera misnotuð og gremjunni yfir
þvf að fara ekki eftir því sem innri rödd og þetri vitund
segja. Baráttunni milli hinna tveggja kvenna sem búa í
einni. Þeirrar sem hlustar á eðlisávísunina og hinnar
sem hefur látið mótast af uppeldi og kröfum umhverfis
og tíma.
Bókin skiptist í fimm kafla og má greina áherslumun
eöa blæbrigðamun milli kaflanna, þótt undirtónninn og
megintemaö sé þaö sem fyrr greinir. í fyrsta kaflanum,
sem þer heitið Konur, gætir ákveðinnar kerskni og kald-
hæðni, eins og f kvæðunum Hjátrú og Köld eru kvenna-
ráö. En undir yfirboröinu er angistin. Kona, af hverju ger-
iröu þetta?.
Líf og starf er yfirskrift annars kafla. Þótt óöryggiö og
viðleitnin til að finna hina „réttu" fmynd konu sé enn til
staðar f þessum Ijóðakafla, þá finnst mér gæta meiri
áræðni og sáttar sem jaðrar við kæruleysi, en jafnframt
meiri sjálfsáskorunar um aö hlú að eigin innri köllun og
sköpunarkrafti.
Svo kemur kaflinn Tfmamót. Hér talar kona sem er far-
in að gera upp hlutina, lítur til baka og veit aö hún hef-
ur látið ráöskast meö sig og misbjóða tilfinningum sfn-
um, en er farin aö gera sér Ijóst að hún mun ná valdi á
þeim, hún er enn hrædd við að taka áhættu. Hún er
ekki tilbúin aö hleypa út sársaukanum, en hún veit að
hún þarf að gera þaö. Henni vex ásmegin.
I fjóröa kaflanum, Uppgjöri, beinist athyglin gagngert að
samskiptum og uppgjöri við ákveðinn einstakling. Það er
persónulegt uppgjör konu viö ástvin sem hefur brugðist.
Hann hefst á kvæðinu Karlmennsku, sem mér finnst
einna besta kvæðið í bókinni. Það er óhlutbundið en
táknrænt fyrir innihald þeirra Ijóöa sem á eftir koma.
Táknrænt fýrir þann sem ryðst áfram, knúinn af vissunni
um eigið ágæti og fær jafnvel hrós og aödáun annarra
fýrir atorkuna. Hann eirir engu. Jafnvel það sem fékk
hann til að breyta stefnu sinni um stund, kremur hann og
særir nær til ólífis. En það kemur aö þvf að bjargið
stöðvast. Það kemur aö þvf að sá sem ofbýður samferða-
fólki sfnu, situr eftir einn með hrunda sjálfsmynd og þá
er of seint aö iörast.
En konan, sem hafði trúað og treyst, umborið og fýrir-
gefið og reynt að skilja f hið óendanlega, losnar úr ánauð-
inni. Loksins skilst henni að hún verðskuldar þaö frelsi
sem henni haföi veriö gefið f vöggugjöf og hún dansar f
fögnuöi yfir frelsi sfnu. Sársaukann hefur hún losað úr
örjósti sfnu. Hann liggur þundinn á stofuþorðinu, - en
hann er ekki farinn úr húsinu.
Nú dansa ég aftur á eldhúsgólfinu.
Sársauki minn liggur bundinn inni á stofuborði.
Ætlar hún aö geyma hann þar?
Þetta Ijóð skilur mann eftir f spurn, enda heitir kvæðið
Ljóöahandrit. Það gæti gefiö til kynna að efniö sé ekki
alveg frágengið.
Síðasti kafli bókarinnar heitir Ástin. Konan hefur fund-
ið ástina aftur. Ástarhrifningin, lostinn og erótfkin fá að
leika lausum hala. Eða hvað? Er ekki eins og enn og aft-
ur, þrátt fyrir fengna reynslu og meðvitað frelsi og ásetn-
ing um að láta það frelsi aldrei af höndum, lúri undirgefn-
in og þessi tilhneiging til aö gefa sig öörum? Sbr. Ijóðið í
þínar hendur... Það fer ekki hjá þvf að þessi yfirskrift leið-
ir huga minn beint að orðum Krists á krossinum: „Drott-
inn, f þínar hendur fel ég anda minn". Hvað er konan að
gera? Hefur hún aftur játast undir vald karlmannsins,
sem má refsa henni ef hún er honum ekki að skapi?
„Maður, f þínar hendur fel ég Iff mitt og ráð?!" Hún tínir
saman vönd úr greinum og grasi.
Nálgast hann meö vönd f útréttri hendi.
Þetta máttu eiga til aö hirta mig meö.
Þorbjörg Daníelsdóttir
STOFNAÐ 1952
Ömmuflatkökurnar eru alltafjafn ómótstœðilegar!
Allt frá 1952 hafa
Ömmuflatkökurnar
verið ómissandi
grunnur fyrir
uppáhaldsálegg
landsmanna, jafnt
stórra sem smárral
Ömmuflatkökur...
...grunnurinn að !
góðum bita. 1
i
í
<