Vera - 01.12.1997, Blaðsíða 52

Vera - 01.12.1997, Blaðsíða 52
BRIO Áfram stelpur! Notum atkvæöi okkar og kjósum okkar konur í prófkjöri R-listans 31. janúar n.k. Uppstillingarnefnd Kvennalist- ans hefur lagt fram lista meö 7 nöfnum til prófkjörs R-list- ans. Þar fer eins og nærri má geta fríður hópur Kvennalista- kvenna á öllum aldri með ólík- an bakgrunn og reynslu, á- samt fulltrúa óháðra ofan af Kjalarnesi. Drífa Snædal, formaður Iðnnemasambands íslands. Guðrún Erla Geirsdóttir, myndlistarkona. Kristín Blöndal, myndlistarkona. Ragnhildur Helgadóttir, bóka- safns- og upplýsingafræðingur. Sólveig Jónasdóttir, útgáfu- og kynningarfulltrúi Starfsm.fél.Rvk. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi. Kolbrún Jónsdóttir, hrepps- nefndarmaöur á Kjalarnesi. Sálin vaknar SKÁLDSAGA EFTIR KATE CHOPIN. íslensk þýöing: Jón karl Helgason. Útgefandi: Bjartur 1997 Tæp öld er síðan skáldsaga Kate Chopin Sálin vaknar (The Awakening, 1899) kom fyrst út í Bandaríkjunum og hlaut svo harkalegar viðtökur aö rithöfundarferill Chopin var þegar á enda. Sagan af vit- undarvakningu Ednu Pontellier (eöa af því hvernig sál hennar vaknar, eins og þýöandi oröar þaö svo fallega) þótti hneykslanleg og beinlínis hættuleg lesning fyrir kyn- systur höfundarins og fór svo fýrír brjóstiö á góðborgur- um þessa tíma aö Kate Chopin fann enga útgefendur fyr- ir sföari verk sín. Þetta er saga af ungri eiginkonu og móöur tveggja sona, sem lániö virtist leika viö á öllum sviöum. Hún býr viö félagslegt og efnahagslegt öryggi og viröist ekkert skorta. Rjótlega kemur þó f Ijós aö þaö er einmitt djúp- stæöur skortur sem þjáir Ednu Pontellier; skortur á sjálfsmynd sem hún getur samsamaö sig meö, skortur á djúpum tilfinningum og sannri upplifun á tiiverunni. Þaö er þetta sem sagan fjallar um; uppgötvun Ednu Pontellier á þvf hver hún er og vakningu tilfinn- inga og kennda sem hún vissi ekki áöur að hún byggi yfir. Eöa eins og segirframarlega f bókinni; „Frú Pontellier var meö öörum orðum farin aö skilja stööu sfna f heiminum og samband sitt við innri og ytri tilvist sína" (19). Þetta er þvf saga af sjálfsmyndarleit, sem er gamal- kunnugt þema úr bókum kvenna allt fram til okkar tíma, saga af konu sem sættir sig ekki viö þaö hlutverk sem samfélagiö hefur úthlutaö henni ogvill lifa lífinu á fyllri og rfkari hátt. Og þessi saga er sögö af miklum skilningi, hlýju og listfengi, sem Jón Karl Helgason hefur náö vel að fanga f þýöingu sinni. Sú vakning sem textinn lýsir gerist hægt og bftandi, verður viö lesturinn um leið vakn- ing lesandans sem skynjar breytinguna á Ednu Pontelli- er hægt og sígandi, líkt og hún sjálf: Henni var aöeins Ijóst að hún sjálf - sú sem hún var þessa stundina - var á einhvern hátt ööruvfsi en sú sem hún hafði verið. Aö hún sæi heiminn með öörum augum og væri óðum aö kynnast innra meö sér nýjum vfddum sem gæfu umhverfinu annan og ólíkan blæ - enn haföi hún ekki minnsta grun um aö svo væri (52). Þetta er saga sem gerist að miklu leyti á tilfinninga- sviðinu og f frásögninni fléttast á þvf sviöi saman mann- legar kenndir og ástríöur, annars vegar, og listin - mynd- listin og tónlistin - hins vegar. Auðvelt er aö gefast þess- um texta á vald í Ijóörænu hans, myndvísi og táknræn- um skírskotunum. En efniö þótti, eins og áöur er sagt, eldfimt. Vakning Ednu Pontellier leiöir til þess aö hún vill eiga sig sjálf, ráöa lífi sfnu sjálf og hvorki vill né getur fórnaö sjálfi sfnu I annarra þágu. Hún léti gjarnan Iff sitt f sölur fyrir syni sfna, útskýrir hún fyrir vinkonu sinni, en hún getur ekki fórnaö þeim sjálfi sínu. Þess konar hugsanaháttur var framandi I þvf samfélagi sem bókin lýsir og til að geta haldiö honum til streitu þarf sterk bein eöa eins og Mademoiselle Reisz, vinkona frú Pontellier segir: Fugl, sem ætlar aö svffa ofar heföum og fordómum, veröur aö hafa sterka vængi. Þaö er sorglegt aö sjá gerpin flögra særö og örmagna til jaröar (105). Þessi mynd kallast á viö mynd af vængbrotn- um fugli sem „baröist áfram uppi á himninum, sveimaöi, flögraöi, hringsólaöi örkumla niöur aö vatnsfletinum" (145) yfir söguhetjunni þar sem hún syndir til hafs f bókarlok. Endalokin eru því tragísk, þegar sá sem stuðlaöi mest aö þvi aö sálin í Ednu vaknaöi hopar af hólmi eöa svfkur velur hún dauöann. Hún er ný kona, hann er full- trúi samfélagsins og karlveldisins og þorir ekki að fljúgja meö þeim fugli sem hann hefurvakið til flugs. Þessi bók ætti aö vera öllum konum og bók- menntaáhugamönnum skyld og Ijúf lesning - og henni fylgir greinargóöur eftirmáli þýöanda þar sem meira er sagt frá verkinu og höfundi þess. Soffía Auöur Birgisdóttir fyrir litla krakka Kerrur, burðarrúm, hjólagrindur, vagnar, baðborð, föt, þroska leikföng, bílastólar, rúm og margt fleira, Góð merki brevi hauck SíSumúla 22, sími: 581 2244
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.