Vera - 01.10.1999, Side 9

Vera - 01.10.1999, Side 9
ardansstaði. Sá vandi er einnig fjárhagslegur." Ingólfur: „Það er sama hvert litið er í samfélag- inu, allt er miklu kynlífstengdara en áður. Ein skýr- ing er einfaldlega mark- aðsvæðing allrar tilverunn- ar, „sex sells" eins og þeir segja I útlöndum. Öll tíma- rit, t.d. frá Húsfreyjunni og að Bleiku og bláu, reyna að nýta sér þá staðreynd á einhvern hátt til að selja sig. Nú og svo er Guð jú dauður, sósíalisminn að minnsta kosti í kóma og hin lítilfjörlegu gildi alls- ráðandi. Ef til vill er þessi sexualisering ákveðin leit að einhverri upplifun sem mönnum finnst máli skipta. Óneitanlega er gott kynlíf með magnaðri upplifunum tilverunnar. Það er ekki að ástæðulausu sem Frakkar kalla full- næginguna „la petite mort" eða litla dauða." Úlfhildur: „Það sem mér finnst vera vandamálið við þetta, eins og svo margt annað í samfélag- inu, er hvað umræðan er alltaf frumstæð. Það er einfaldlega engin um- ræða, þess vegna er svo erfitt að taka skýra af- stöðu því maður hefur ekkert til að máta sig við." Hildur Fjóla: „Er ekki umræða einmitt það sem við þurfum og síðan fræðsla?" Rúna: „Jú og mér finnst við þurfa að beina um- ræðunni að þeim körlum sem nýta sér vændið. Það þurfum við reyndar líka að gera þegar við tölum um ofbeldi og misnotkun á börnum. Fyrir 20 árum vildi fólk ekki trúa því að hér á landi væru konur barðar heima hjá sér og börn misnot- uð. Nú vita allir að svo er, því miður, en hálf sann- leikurinn felst í þvi að það er ekki talað um hverjir það eru sem nauðga og berja. Það eru íslenskir karlmenn og það eru líka þeir sem kaupa þjón- ustu þessara stúlkna sem eru fluttar inn til lands- ins. Þeir bera þvi ábyrgð og þeir eru ekki fáir - það sýnir eftirspurnin, að minnsta kosti enn sem komið er." EÞ Vellíðan heima... lín éai láreft Bankastræti 10 - Sími 561 1717 Kringlan - Sími 588 2424 VER A • 9

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.