Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 48

Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 48
Nútímavandamál Sviði - útferð - kláði Þetta eru einkenni sem margar konur kannast við. Einkennin eru vísbending um að um sveppasýkingu geti verið að ræða. Talið er að um helmingur kvenna á barneignaaldri fái einhvern tíma á ævinni þessi einkenni, sem stafa af röskun á gerlagróðri í leggöngum. Ástæðurnar geta verið margvíslegar t.d. mikil notkun sápu, tíðari sund- og baðferðir, aukin notkun sýklalyfja, gerviefni í nærfatnaði, innlegg/bindi, tíðatappar, þröngar galla- buxur, hormónameðferð, meðganga, blæðingar og breytingaskeiðið. Þá getur sýrustigið í leggöngunum hækkað og sveppagróður, sem þolir bæði hærra sýrustig og hin ýmsu lyf, fjölgar sér ört og þá um leið gera einkennin vart við sig. Anna Eövaldsdóttir hjúkrunarfræöingur og Ijósmóðir Þegar kona finnur fyrir áðurnefndum einkennum, leiðir það oft til þess að hún fer oftar í sturtu og notar jafnvel óæskilega sápu til að ná fram tímabundnum létti á ertingu, kláða og lykt, þá er hún komin í vítahring. Sýrustig heilbrigðrar húðar er 5,5 en sýrustig í leggöngum 4-4,5. Því er mikilvægt að halda sýrustiginu f kringum 4 sem er kjörsýrustig í heilbrigðum leggöngum. Hér á landi hafa ýmist stílar og / eða krem verið notað sem meðferð við sveppasýkingu í leggöngum. Aukaverk- anir sumra þessara lyfja er húðerting, særindi og þurrkur. Þeim konum sem hafa haft endurteknar sveppasýkingar í leggöngum eða fengið hafa framangreind einkenni eftir lyfjanotkun hefur verið ráðlagt að nota ab-mjólk, 10 ml. í leggöng 1-2 sinnum á dag. í ab-mjólkinni eru mjólkursýrugerlar sem viðhalda lágu sýrustigi í leggöngunum. Þessi meðferð hefur reynst vel, en sá galli er á ab-mjólkuraðferðinni að mjólkin vill leka niður og valda óhrein- lætistilfinningu. Þess vegna er það fagnaðarefni að komnir eru á markaðinn mjólkursýrugerlar í hylkjum þar sem hvert hylki inni- heldur um 100 milljón mjólkursýrugerla. Þetta er náttúruvænn kostur sem hjálpar líkamanum að leiðrétta sýru- stigið í leggöngunum. SÞECIAlS^. m Vivag fljótandi sápa Vivag er einnig til sem mild, fljótandi sápa, sem stuðlar að verndun viðkvæmrar húðar og hentar mjög vel þeim sem þurfa að þvo sér oft. Vivag sápa er án ilms, litar- og rotvarnarefna. Sápan hefur sýrustig 4 og er sérstaklega þróuð til þvotta á viðkvæmum stöðum, en hentar einnig mjög vel á allan líkamann, bæði fyrir börn og fullorðna. Vivag sápa inniheldur mjólkursýru og rakagefandi efni, sem koma jafnvægi á náttúrulegt rakastig og viðheldur mýkt og teygjanleika húðar- innar eftir notkun. Vivag sápa er þróuð sem náttúrulegur og ákjósanlegur kostur með Vivag hylkjum. Vivag fæst i apótekum, lyfja- og heilsubúðum. Thorarensen Lyf Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 568 6044
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.