Vera - 01.10.1999, Qupperneq 48
Nútímavandamál
Sviði - útferð - kláði
Þetta eru einkenni sem margar konur kannast við. Einkennin eru vísbending um að um
sveppasýkingu geti verið að ræða. Talið er að um helmingur kvenna á barneignaaldri fái
einhvern tíma á ævinni þessi einkenni, sem stafa af röskun á gerlagróðri í leggöngum.
Ástæðurnar geta verið margvíslegar t.d. mikil notkun sápu, tíðari sund- og baðferðir,
aukin notkun sýklalyfja, gerviefni í nærfatnaði, innlegg/bindi, tíðatappar, þröngar galla-
buxur, hormónameðferð, meðganga, blæðingar og breytingaskeiðið. Þá getur sýrustigið í
leggöngunum hækkað og sveppagróður, sem þolir bæði hærra sýrustig og hin ýmsu lyf,
fjölgar sér ört og þá um leið gera einkennin vart við sig.
Anna Eövaldsdóttir
hjúkrunarfræöingur
og Ijósmóðir
Þegar kona finnur fyrir áðurnefndum einkennum, leiðir það oft til þess að hún fer oftar í sturtu og notar jafnvel
óæskilega sápu til að ná fram tímabundnum létti á ertingu, kláða og lykt, þá er hún komin í vítahring. Sýrustig
heilbrigðrar húðar er 5,5 en sýrustig í leggöngum 4-4,5. Því er mikilvægt að halda sýrustiginu f kringum 4 sem
er kjörsýrustig í heilbrigðum leggöngum.
Hér á landi hafa ýmist stílar og / eða krem verið notað sem meðferð við sveppasýkingu í leggöngum. Aukaverk-
anir sumra þessara lyfja er húðerting, særindi og þurrkur. Þeim konum sem hafa haft endurteknar sveppasýkingar
í leggöngum eða fengið hafa framangreind einkenni eftir lyfjanotkun hefur verið ráðlagt að nota ab-mjólk, 10 ml.
í leggöng 1-2 sinnum á dag. í ab-mjólkinni eru mjólkursýrugerlar sem viðhalda lágu sýrustigi í leggöngunum.
Þessi meðferð hefur reynst vel, en sá galli er á ab-mjólkuraðferðinni að mjólkin vill leka niður og valda óhrein-
lætistilfinningu.
Þess vegna er það fagnaðarefni að komnir eru á markaðinn mjólkursýrugerlar í hylkjum þar sem hvert hylki inni-
heldur um 100 milljón mjólkursýrugerla. Þetta er náttúruvænn kostur sem hjálpar líkamanum að leiðrétta sýru-
stigið í leggöngunum.
SÞECIAlS^.
m
Vivag fljótandi sápa
Vivag er einnig til sem mild, fljótandi sápa, sem stuðlar að verndun viðkvæmrar
húðar og hentar mjög vel þeim sem þurfa að þvo sér oft. Vivag sápa er án ilms,
litar- og rotvarnarefna. Sápan hefur sýrustig 4 og er sérstaklega þróuð til þvotta á
viðkvæmum stöðum, en hentar einnig mjög vel á allan líkamann, bæði fyrir
börn og fullorðna. Vivag sápa inniheldur mjólkursýru og rakagefandi efni, sem
koma jafnvægi á náttúrulegt rakastig og viðheldur mýkt og teygjanleika húðar-
innar eftir notkun. Vivag sápa er þróuð sem náttúrulegur og ákjósanlegur kostur
með Vivag hylkjum.
Vivag fæst i apótekum, lyfja- og heilsubúðum.
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 568 6044