Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 17
Ko n u r
Föstudagskvöldið 8. október ákvað hópur
kvenna að fara saman á nektardansstaði til að
skoða hvað þar færi fram. Um 30 konur söfn-
uðust saman og fengu þá þær fréttir að eig-
endur staðanna hefðu vitneskju um þessa að-
gerð og myndu bregðast til varnar. Ekki hafði
það áhrif á konurnar - þær ætluðu að taka því
sem að höndum bæri og siðan var lagt af stað.
Þegar komið var inn í anddyri Óðals við
Austurvöll var Ijóst hver varnarviðbrögð stað-
anna voru. Á stóru skilti í anddyrinu stóð:
Herrakvöld - Gentelmen's night. Bentu dyra-
verðir á skiltið og sögðust því miður ekki geta
hleypt konum inn. I samræðum við þá og eig-
anda staðarins kom fram að þeir óttuðust að
svona stór hópur kvenna gæti haft neikvæð
áhrif á viðskiptin og mátti sjá talsverðan
taugatitring í fari þeirra. Næst var haldið á
Club Clinton í Fishersundi og þar var sama
skiltið uppi og órólegur maður sem hræddist
mjög að hafa lent á mynd og hafði I hótunum
við Ijósmyndara Veru. Maxim's í Hafnarstræti
var næsti viðkomustaður og komst hluti hóps-
ins þar inn. Þegar dyravörður sá kvennahópinn
fyrir utan sagðist hann ekki hleypa fleirum inn
því staðurinn væri svo lítill en þó var langt í frá
að hann væri fullur. Þar inni var hópur korn-
ungra stúlkna frá Eystrasaltslöndum sem sátu á
hnjám karlmanna og döðruðu. Stemningin
breyttist óneitanlega þegar um tíu konur á
miðjum aldri settust og fóru að horfa á dans
stúlknanna á sviðinu. Ekki vildi hópurinn tvístr-
ast og því var stoppað stutt á Maxim's en
haldið á Club 7 í Ingólfsstræti. Þar var öllum
hleypt inn og þar mátti einnig sjá fjölda ungra
stúlkna við sömu iðju. Karlarnir voru iðnir við
að kaupa fyrir þær kampavín sem smóking-
klæddir þjónar báru á borðin í kælifötum. Einn
og einn tíndist síðan afsíðis með stúlku I einka-
dans. Á sviðinu var varan kynnt, súlkurnar
dönsuðu vélrænt, sýndu tilburði sem eiga að
vera eggjandi og afklæddust.
Eftir dvölina á Club 7 var haldið á Vegas við
Frakkastfg. Þar var sama skiltið og á hinum
stöðunum: Herrakvöld - Gentelmen's night.
Dyravörðurinn hafði augsjáanlega beðið eftir
heimsókninni og var vígalegur í dyrunum, til-
búinn með hinar ýmsu varnarsetningar, eins
og: „Þið ættuð að koma færri í einu og ekki
hafa þetta svona áberandi." Konurnar voru til-
búnar að halda áfram að kynna sér starfsem-
ina og taka höndum saman við þann stóra hóp
í þjóðfélaginu sem vill að það komi upp á yfir-
borðið hvaða þjónusta það er sem verið er að
selja á þessum stöðum. Síðan hafa verið farnar
fleiri skoðunarferðir á nektardansstaði.
Eins og sést á spjaldinu, sem Vilborg Haröardóttir heldur á, ákváðu eigendur Óðals að hleypa aðeins karlmönnum inn
þetta kvöld og það sama var gert á Club Clinton og Vegas.
MAXÍM'S
Um tiu konur komust inn
á Maxim's i Haínarstræti
en þegar dyraverðinum
var litið út og sá allan
hópinn sagðist hann ekki
geta hleypt fleirum inn.
Þær sem ekki komust inn
biðu fyrir utan og síðan
var haldið á næsta stað.