Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 39

Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 39
: Macy Gray - sögð lík Billie Macy Gray er bandarfsk og eins og Mary J. líkt við stór- stjörnu, eða sjálfa Billie Holiday, og á Kkum aldri, kannske tveim til þrem árum eldri. Þar með held ég að líkindin séu upp talin, ja nema að báðar eru þær afrísk-amerískar og aldar upp við sömu tónlistararfleifð. En miðað við æviágrip hefur Macy verið betur sett fjárhagslega en Mary J., því hún var send í heimavistarskóla á unglingsárum þar sem flestar stelpurnar voru hvítar og reyndar telur hún vistina þar hafa víkkað tónlistarsýn sína því „þær hlustuðu bara á rokk". Macy Gray er fædd og upp alin í Canton í Ohio en að loknu menntaskólanámi fór hún til Los Angeles í USC- kvikmyndaskólann, í handritadeildina. Þar kynntist hún tónlistarfólki sem bað hana að semja texta fyrir sig. Þar sem Macy hafði sjö ára píanónám að baki lenti hún líka í hljómsveitinni en það hafði aldrei hvarflað að henni að syngja. Reyndar var hún feimin vegna sinnar meðfæddu raddar, segir að hún hafi reynt að þegja sem mest sem barn og unglingur á almannafæri, því að hún þótti tala eins og teiknimyndafígúra. Nema hvað, hljómsveitin ákvað að hljóðrita lag sem samið var við hennar texta, en ekki vildi betur til - eða svo vel vildi til, að söngvarinn mætti ekki í upptöku þannig að Macy var sú eina sem kunni textann og varð að syngja. Upp úr því fór hún að syngja með hljómsveitinni, hróður hennar breiddist út og hún komst á plötusamning í fyrra. Fyrir skömmu kom svo út hennar fyrsta plata: Macy Gray on how life is. Platan hefur fengið góðar viðtökur, enda töluvert sérstök og þá vegna raddarinnar sem er óneitanlega svipuð rödd Billie Holiday. Lögín eru að vísu fremur poppuð en blúsuð en með sál og dálitlum djassi, minna mig á köflum á lög með Tinu Turner og J.J.Cale (samdi t.d. After midnight og Cocain, sem Eric Clapton hefur sett á plötur). Platan er mjög notaleg, svona á svipaðan hátt og plötur Erykhu Badu, en ég vil þó ekki segja að þær séu líkar þótt báð- um hafi verið líkt við Bíllie Holiday. Macy Gray tekur þátt í lagasmíðunum með samverka- fólki sínu en á textana sjálf. Þeir leika henni vel í munni en ekki eru þeir sumir vatn á myllu kvenréttindakvenna og einn þeirra er reyndar sérlega í anda Billiear Holiday: ég fer alltaf aftur til míns manns þótt hann berji mig af því að ég elska hann svo mikið, eða þannig. Að vísu hljómar þessi boðskapur í mlnum eyrum frekar eins og grln þegar hann kemur frá Macy því hún á ekki bága ævi, sem betur fer, öfugt við Billie. I lokin langar mig að minnast á eina söngkonu sem gaf út plötu fyrir síðastliðin áramót og er svona u.þ.b. I svipuðum stíl og þær söngkonur sem hér hefur verið minnst á, nema hvað hún gæti verið raddmest þeirra allra. Whitney Houston heitir hún og þessi plata hennar, My love is your tove, er virkilega góð. Öfugt við Mary J. Blige er hún nær hipp-hoppinu en þeim popp- og dægurlagastíl sem hún er þekkt fyrir, en gengur þó ekki of langt fyrir þá sem ekki eru hrifnir af nýjungum. Platan virkar fersk og sjálf hefur Whitney sagt að þetta sé fyrsta platan þar sem hún hafi fengið að ráða ferðinni I sambandi við val á samstarfs- fólki og tónlist. ■? fÆ 1®.. ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ® &'Z> ::::: — « — E 2mg ^ NICDRETTE 2mg Mint VrbM » ■■ , í munninn I NCORETTE 2 Kesortblcttcr 'Vff NcaperTE. \ l Undir tunguna ■así NICOBEno^etth. NW) ***• Milli fingranna á húöina NICORETTE Hjálpar þér aö ná takmarkinu! Hjálpitrtæki scm inniheltlur nikótín scm kcmur í stað nikólíns vi'O rcvkincar og tlrcgur þannie úr lráhvarl'scinkcnnum og auðvcldar fólki að hætta að rcvkja cða draga úr rcykingum. Oæta vcrður varúðar við notkun lyfianna hjá sjúklingum mcð alvarlcga hiarta- og æðasjúkdöma. Rcyk'ingar gcta aukið hættu á bloðtappamyndun t)g |iað sama á við cf nikoiínlvf cm notuð samtímis lyljum scm innihaltla gcstagcn-östrogcn (t.d. gctnaðarvarnatöllur). Þungaðar konur og konur mcð barn á brjósti ættu ckki að nota nikóiínlyl'. Þcir scm cru mcð sykursýki, ofstarfscmi skjaldkirtils cða krómfíklaæxli ciga að fara varlcga í að nota Nicorcttc tungurótartöflur. Lylið cr ckki ætlað bömum yngri cn 15 ára ncma í samráði við lækni. Nicorcttc cr til scm tyggigúmmí, foi'ðaplástur scm cr límdur á húð, töflur scm scttar cru undir tungu og scm sogrör. Skömmtun lyljanna cr cinstaklingsbundin. Leiðbeiningar um rctta notkun cru í fylgiscðli mcð lyfiunum. Brýnt cr að lyftð sc notað rctt og í tifætlaðan tíma lil að scm bcstur árangur náisl. Mcð hvcrri pakkningu lyfsins cr fylgiscðill mcð nákvæmum upplýsinsum um hycrnig nota á lyfin, hvaða aukavcrkanir þau gcta naft og fleira. Lcstu fylgiscðilinn vandlcga áðurcn þú byrjarað nota lyllð. Markaðslcyfishafi: Pharmacia & UPjohn AS. Danmörk - Inntlytjanui: Pharmaco hf. Hörgatúiii 2. 210 Garðabær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.