Vera - 01.10.1999, Page 42
Stundum
mdlo ég
droumano
míno
Steinunn
Eyjólfsdóttir
ræSir viö Margréti
Ásbjarnardóttur
á Patreksfirði
Margrét Ásbjarnardóttir, listakonan sem
sér blómálfa en málar helst snjó og vetrar-
ríki, býr í litlu, gömlu húsi á Patreksfirði
ásamt Gunnari, seinni manni sínum, og
tveim ógurlega háværum hundum.
Margrét hefur fallist á að rifja upp með
mér nokkur atriði úr æfi sinni. Svo tjóðrar
hún annan hundinn við gamla, fallega
kommóðu og sveiar hinum þar til hann
hlassar sér við fætur hennar.
„Nú fáum við okkur smásopa," segir Margrét.
Það sér varla I nokkurn vegg í stofunni hennar
fyrir myndum og minjagripum og gólfrýmið er
heldur ekki mikið. I fyrsta sinn sem ég heimsótti
Margréti fannst mér þröngt I stofunni en þegar
hún útskýrði fyrir mér minningarnar sem fylgdu
hverjum sméhlut, fannst mér ekki lengur þröngt,
bara vinalegt og notalegt. Stofan er frá liðnum
tíma og það er húsið sjálft líka. Einhverntíma stóð
það suður I Breiðafjarðareyjum en var flutt sjóleið-
is til Patreksfjarðar snemma á öldinni og sett ofan
á kjallarann þar sem það stendur enn I dag.
„Já, hvenær ég er fædd," svarar Margrét
spurningu minni. „Ég er fædd 11. maí 1941, í
Botni hérna inn við fjörðinn. Pabbi minn, Ásbjörn
Ólafsson, bjó þar þá. Hann var einn Botnssystkin-
anna sem margir kannast við hér fyrir vestan.
Pabbi mun svo hafa keypt sjálfur býli fyrir föður-
arfinn sinn, en afi minn dó á miðjum aldri. Tveir
bræðranna bjuggu þá áfram með ömmu í Botni
en pabbi flutti að Skápadal, sem er skammt frá og
hóf þar búskap. Nú vantaði hann auðvitað sitt af
hverju á nýja heimilið, þar á meðal kaupakonu. Til
hans réðst stúlka að nafni Marta Vilhjálmsdóttir.
Það teygðist úr þeirri kaupavinnu því þessi stúlka
varð konan hans og mamma mín og eldri systur
minnarsem dó í fæðingunni, foreldrum mínum til
mikillar sorgar.
Ég man vel eftir öllu I Skápadal. En einna
gleggst er í minningunni hve dýrðlegt var að
vakna þar á sólbjörtum sumarmorgni. Glugginn
var opinn og ég heyrði að pabbi var að slá á tún-
inu fyrir utan. Töðuilminn lagði inn til mín. Minn-
ingin um sumardýrðina I Skápadal hefur fylgt mér
alla ævi."
Þú sást ýmislegt dularfullt í Skápadal, var
það ekki?
„Jú, og það sáu fleiri. Gömul kona sagði við
mömmu: Hvernig geturðu verið á þessum reim-
leikabæ, Marta mín? Ekki var allt fallegt sem var
á kreiki I Skápadal. Ég man að einu sinni þegar ég
var smástelpa átti ég að jafna til I hlöðunni, sem
kallað var. Þá sá ég allt I einu hvar ókunnur mað-
ur lá I heyinu, ef mann skyldi kalla. Hann hafði
ósegjanlega Ijótt og ömurlegt útlit og mér fannst
að þetta hlyti að vera sjálfur skrattinn. Þessi vera
benti mér og reyndi að lokka mig til sln. En ég
varð dauðhrædd, hljóp út á tún til fólksins sem
var þar við heyvinnu og sagði pabba frá þessum
Ijóta karli í hlöðunni. Pabbi ætlaði ekki að ansa
þessu en gekk þó með mér að hlöðunni ef ein-
hver ferðamaður kynni að hafa lagt sig þar eða
slíkt. En þar var enginn. Það fauk I pabba og hann
sagðist skyldi flengja mig ef ég færi að taka upp
á að segja svona lygasögur. Enda lét ég mér það
að kenningu verða og hef sjaldan talað um það
þó ég hafi séð eitthvað.
Sástu fleira þarna í dalnum?
„Ekki sem ég get rifjað upp. Þarna átti þó sitthvað
að vera á ferli. Upp með gilinu í dalbotninum er
einstigi sem stundum var farið áður fyrr. Ég fór
það einu sinni með pabba. Þarna hröpuðu ein-
hverntíma I fyrndinni margir menn sem voru að
koma af heiðinni. Þeir áttu stundum að sjást.
Mamma hefur líka sagt mér að í Skápadal muni
vera álfafólk. Þegar ég var lítil - svo lítil að ég man
ekki eftir því sjálf - ætlaði mamma sundum ekki
að geta náð mér inn á kvöldin. Henni var ekki vel
við þessa ásókn mína I að vera ein að dunda úti
fram eftir öllu, eins þó vetur væri og myrkur.
„Hvað ertu að gera úti svona lengi, Magga mín?"
spurði hún einu sinni. Þá hafði ég svarað að ég
væri að horfa á alla krakkana sem væru að leika
sér á svellinu.
Og nú hefurðu félagsskap við blómálfana
þína?
Margrét brosir, eins og íhugandi. „Já, ég get
reyndar ekki verið viss um að það séu blómálfar
því ég hef mjög fá blóm. En þeir koma frá ein-
hverjum björtum og blómstrandi heimi. Sjálfir eru
þeir bjartir, alla vega litir - bláir, bleikir og rauðir.
Ég hef séð þá flögra hér um húsið. Og ef ég á
42 • VERA