Vera - 01.10.1999, Side 50
Vistvænt
heimilishald
Ragnhildur Helgadóttir skrifar um GAP verkefnið
Rusl er vigtað til að mælanlegur árangur fáist
Mengun umhverfisins er eitt af
stærstu vandamálum heimsins.
Margir alþjóðlegir samningar um
umhverfismál hafa verið gerðir en
þrátt fyrir velvilja ýmissa ráða-
manna heimsins hafa fjárhags-
legir hagsmunir komið í veg fyrir
að áberandi framfarir hafa orðið
á þessu sviði. Ábyrgðin á um-
hverfismálum er oft sett á hendur
stærri aðila, s.s. Sameinuðu þjóðanna, Evrópu-
sambandsins, ríkisstjórna o.s.frv. Einstaklingur-
inn stendur oft vanmáttugur gagnvart um-
hverfismálum og lætur því ekki til sín taka. En
hvað geta einstaklingar gert? Skiptir einhverju
máli hvort dósin lendir í endurvinnslu eða í
ruslinu? Eða að bíllinn sé notaður í ferð út í
sjoppu á næsta horni? Alkunna er að margt
smátt gerir eitt stórt og þess vegna skiptir um-
hverfisvæn hegðun máli. Allar fréttir af starfi til
að bæta um betur í umhverfismálum eru því
góðar fréttir. Hér verður greint frá alþjóðlegu
verkefni sem nefnist Global Action Plan for the
Earth (GAP) og líta má á sem skref í rétta átt.
Verkefnið hefur verið í gangi í 17 löndum og er
nú verið að staðfæra upplýsingar fyrir fsland.
Ætlunin er að vinna verkefnið eftir sænskri fyr-
irmynd, staðfæra að íslenskum aðstæðum og
gefa út handbók vorið 2000. Handbókinni er
ætlað að leiðbeina fólki skref fyrir skref í gegn-
um röð verkefna sem stuðla að vistvænu heim-
ilishaldi. Það sem er sérstakt við GAP verkefnið
er að það snýr að einstaklingnum og hans nán-
asta umhverfi, þ.e. heimilishaldinu. Markmið
GAP er að stuðla að sjálfbærri þróun í um-
hverfismálum á næstu öld. Upplýsingar um
hvernig við sem einstaklingar getum borið
okkur að liggja ekki alltaf á lausu og okkur
finnst við vera vanmáttug. Með GAP gefst okk-
ur tækifæri til að skiptast á upplýsingum og
vinna að þessu í samvinnu við aðra.
Verkefnið er auðvelt í framkvæmd og leitað
er raunhæfra lausna sem umbylta ekki lífi þátt-
takenda heldur létta það, t.d. með færri ferð-
um út í ruslatunnu. Þess má einnig geta að út-
reikningar sem gerðir hafa verið í Svíþjóð sýna
að heimili geta sparað umtalsvert með því að
framkvæma aðgerðirn-
ar í handbókinni.
Nú eru ( gangi þrír
aðlögunarhópar á Is-
landi sem aðstoða við
að staðfæra upplýsing-
ar fyrir íslenskar að-
stæður. Verkefnið mun
síðan verða öllum opið
sem vilja taka jákvæð skref til að
bæta umhverfið. Hver og einn
getur átt frumkvæði að því að
mynda hóp. Það getur verið hóp-
ur af ættingjum, fjölskyldum, ná-
grönnum, vinnufélögum eða
hluti af samtökum. Hentug hópa-
stærð er 5-8 einstaklingar. Á sex
mánaða tímabili hjálpast meðlim-
ir hvers hóps við að breyta um
lífsstíl þannig að heimilishaldið verði vistvænt.
Gífurlegt magn af upplýsingum er til um um-
hverfismál en í GAP verkefninu er búið að ein-
falda það og draga saman (sex viðfangsefni,
eitt fyrir hvern mánuð.
Viðfangsefnin eru: Sorp, orka, samgöngur,
innkaup, vatn og fjölbreytni lífríkis og landeyð-
ing. Eitt viðfangsefni er tekið fyrir í hverjum
mánuði. Þátttakendur meta ástandið hjá sér í
mánaðarbyrjun og ákveða hvaða breytinga er
þörf. Staðan er svo endurskoðuð í lok mánað-
arins og lagt mat á árangur. Á þessu sex mán-
aða tímabili taka meðlimír hópsins fyrstu skref-
in til að tileinka sér vistvænan Kfsstd til fram-
búðar.
Ég og fjölskylda mín tilheyrum aðlögunar-
hópi GAP á (slandi sem samanstendur af sex
fjölskyldum. Við vildum vera þátttakendur í
þessari alþjóðlegu grasrótarhreyfingu til að
bæta umhverfið. Þátttakan hefur breytt ýmsu í
heimilishaldinu og á eflaust eftir að breyta enn
meiru því við erum ný byrjuð. Undanfarnar vik-
ur hafa farið í að vigta rusl, en það er gert til
að mælanlegur árangur fáist. Það virkar hvetj-
andi að sjá ruslið minnka þegar aðgerðir hefj-
ast. Innkaupin hafa einnig verið til endurskoð-
unar og margt er óleyst, t.d. hvað kemur í stað
eitursins sem fer í uppþvottavélina og hvað við
gerum við lífrænan úrgang upp á 4. hæð í
blokk. Bíllinn er okkar stærsti höfðuverkur og í
stað þess að hafa áhyggjur af bensfnverði þá
leitum við allra leiða að draga úr mengandi
50 • VERA