Vera


Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 10

Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 10
N E I A S X B A B A S X það á að vera, þá er mjög gagnlegt að hlusta á þessar varnarræður innsæisins því það er yfirleitt alltaf alveg hárrétt. Öðru vísi samskiptamáti Alveg eins og önnur sambönd þá hafa mín sambönd í gegnum netið þróast. Ég hef aldrei verið að leita að ástarsamböndum eða vonast eftir slíkum í gegnum netið. Ég á heilmikið af vinum sem ég hef skrifast á við í fjölda ára með tölvupósti. Fyrir tíma internetsins þá átti ég það til að skrifa eitt sendibréf á dag og stundum fleiri. Það sem er heillandi við netið er hraðinn. Allt er á fljúgandi hraða en sendibréf eru svo sein að skila sér, enda núorðið kallað snigla- póstur. Það er líka eitthvað óformlegt við tölvupóst, fólk á það til að sýna hliðar á sér sem það myndi aldrei sýna í sendibréfi eða samtali. Það er alveg öruggt að þessi sam- skiptamáti er allt öðru vísi en allt annað. Mér finnst reyndar sendibréf mjög heill- andi og það jafnast ekkert á við alvörubréf. Vegna þess hve mikið ég er á ferð og flugi og hve miklum tíma ég eyði við tölv- una þá hefur það oft þróast þannig að vin- ir mínir víðsvegar, sem ég á í samskiptum við á netinu, fá betri innsýn í hvað er að gerast innra og ytra með mér. Það hefur sína kosti og galla og ég myndi aldrei ganga svo langt að segja að netið gæti nokkru sinni orðið magnaðra en að sitja með vinum sínum yfir kaffibolla og eiga stund saman. Vinátta, virðing og traust Núna er ég búsett hinum megin á hnettin- um, þ.e.a.s. í Astralíu, og er nýgift vini mínum sem ég kynntist í gegnum netið fyrir nokkrum árum.Við hefðum sennilega aldrei kynnst ef ekki hefði verið til inter- net. Ég hefði sennilega bara látið mig dreyma um framandleika landsins eða kannski ekkert leitt hugann að því hvernig andfætlingar hafa það. En lífið er tak- markalaust ævintýraland og möguleikarnir eingöngu bundnir við hvað maður trúir að sé mögulegt. Ég fann að rómantík fór að spretta fram í bréfasamskiptunum okkar. Vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera við sjálfa mig eftir fyrri reynslu, ákvað samt að stökkva út í óvissuna. Ég fór þó eins varlega og hægt er fyrir eldhuga eins og mig og gerði vett- vangskönnun áður en ég festi mitt ráð. Ég held að þegar kemur að samböndum — ást, rómantík og/eða hinu daglega lífi — að það sé oft eins og rússnesk rúlletta. Maður veit aldrei hvernig hlutirnir þróast, aðalatriðið er að læra að laða fram það besta í hvort öðru og byggja á vináttu, umfram allt, ásamt virðingu og trausti. Ef einhverjir af þeim þáttum eru ekki til staðar þá er alveg eins gott að vera bara einn og njóta þess. Síðast en ekki síst er það ekki endilega hvernig maður kynnist heldur hvert inni- hald kynnana er. Þeir sem koma til dyranna eins og þeir eru klæddir og eru einlægir, hylja yfirleitt ekki neina bláskeggsþætti. Rómantíkin í tengslum við internetið er ekkert öðruvísi en önnur rómantík. Hættu- svæðin eru alveg jafn hættuleg og önnur í mannlegum samskiptum. Ég held að eini raunverulegi munurinn sé hraðinn og að heimurinn er orðinn miklu minni og meiri möguleikar á að rekast á mannveru sem maður gæti skilgreint sem sálufélaga eða tvíburasál. Það er líka gott að hafa í huga ef maður kynnist manneskju frá öðru landi að það er alltaf þó nokkuð mikill menningarlegur mismunur sem er ekki sýnilegur í gegnum bréfasamskipti. <hann> hæ <Hún> Helgi um helgi <hann> þá veit ég hvað þú þarft <hann> ask <Hún> nei. <Hún> nú? <Hún> kvk.33 <hann> td. já:) <hann> já <hann> 41 kk rvk <Hún> ég held ekki. <Hún> hvaö? <Hún> hvað er 1 gangi? <hann> afhverju ekki <hann> mig <hann> veit ekki <Hún> hvað ertu þú að spá, segðu <Hún> þig? <Hún> nú. mér það fyrst <hann> já <Hún> einn heima? <hann> allt óákveðið og án allra <Hún> þetta hafði mér dottið 1 hug. <hann> já u 1oforða <hann> já er þaö? <Hún> já <Hún> hvað liggur að baki? Hvað <Hún> en hvað fflar þú best? <hann> áhugam er óákveðið? <hann> hmm...að vera ofaná, og <Hún> humm.... <hann> hverju leitar þú eftir aftan á <Hún> ég hef áhuga á ýmsu..en þú? <Hún> ég er ekki að leita eftir <Hún> æ, ég verö frá.. <hann> þér :) sennilega mest neinu sérstöku, það varst þú sem <hann> frá? nuna:) stakkst uppá þessu deiti... <Hún> af hungri <hann> hefur þú farið á blind <hann> ok mig langar f smá ævin- <hann> kynhungri? deit hér tyri <Hún> allavega hungri f <Hún> já. <Hún> hvernig ævintýri????????? <Hún> hvftan mann <Hún> nokkur slfk <Hún> hvað meinarðu, ertu til 1 <hann> hefur þú velt möguleikanum <Hún> en þú? að tala skýrt? fyrlr þér? <hann> og hvernig var <hann> sex ef okkur list þannig á <Hún> möguleikanum á þér?? <hann> já nokkur annars bara saklaust <hann> já <Hún> æ. <Hún> ég á ekki von á að mig <Hún> já hér og nú er ég að þvf <Hún> misjafnt. langi 1 kynlif með þér <Hún> en þú? <hann> gaman:) <hann> ertu gift <Hún> er e-ö varið i þig? <hann> einhver stelling i uppá- <hann> á þér? <Hún> já <hann> er að þvi núna <Hún> nei. haldi? • <Hún> það fylgir þessu svo mikil <Hún> en þú? <Hún> eiginlega bara þessi hefð- spenna, að hitta e-n sem maður veit <hann> eigum við að deita f bundna. ekki hvernig litur út. kvöld:) <hann> sem er? <Hún> hefur þú hitt einhvern héðan? <hann> nei fráskilin <Hún> mig er farið að langa 1 <hann> já <Hún> deita?? og hvað? hefðbundið kynlif, meira en allt <Hún> hvernig var þaö? <hann> eg heiti helgi u annaö. <hann> þaö var mjög f1nt <hann> sjáum ti1:) <hann> hvað kallarþú hefðbundið? <Hún> ekkert sjokk? <Hún> humm... <Hún> ekki bindingar og pyntingar <hann> nei <hann> viltu hringja i mig eða má og ...e-ö dirty <hann> fengi ég sjokk af þér? eg hringja 1 þig <Hún> bara kona og maður <Hún> ég vona ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.