Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 59
ApJús. a
£ Æ I 1 N D L
á leiðinni heim úr vinnu og 1/2 líter af kóki með, er ég að borða
850 kkal sem er um 40% af dagsorkuþörf minni (dagsþörf um
2000 kkal/dag). Magn fitu í skyndibitanum er um 38 g. Ef ég ætti
að borða samkvæmt manneldismarkmiðum ætti fituneysla mín að
vera minna en 70 g á dag, þannig að þessi sælgætismáltíð gefur
rúmlega lielminginn af ráðlögðum dagskammti fitu.
Viðbættur sykur í skyndibitanum er yfir 100 g, sem er næstum
fjórum sinnum meira en ég ætti að borða yfir allan daginn ef ég
ætla að virða manneldismarkmiðin og gæta að heilsu minni og
líðan.
Skynsamlegra hefði verið að fá sér einn eða tvo ávexti eins og
sjá má í meðfylgjandi töflu.
80.000 kkal
Samkvæmt könnun Manneldisráðs frá 1990, sem er að vísu kom-
in nokkuð til ára sinna, er fólk á aldrinum 15—80 ára að borða tæp
20 kíló af viðbættum sykri á ári. Þessi 20 kíló gefa um 80.000 kkal
sem fylgja engin bætiefni. Þessi sykurneysla er langt frá því að vera
ásættanleg. Ef eitthvað er þá er þessi tala heldur á uppleið, svo það
er full ástæða til að hvetja þau sem eru undir oki sælgætisfiknar að
vinna markvisst að því að draga úr sælgætisáti sínu.
Fæðutegund Orka Fita Sykur
(100 g) (kkal) (g) (g)
Strásykur 406 0 100
Brjóstsykur 398 0 98
Suðusúkkulaði 544 31 50
Lakkrís 3°5 1.6 48
Prins póló 540 32 35
Gulrætur 33 0,4 0
Epli 49 0,4 0
ÞETTA ERU SLYS...
...SEM AUÐVELT ER AÐ FORÐAST /\FV*
59
V E R A •