Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 18
„Það er gott að vita
hvað maður vill gera
í lífinu í stað þess að
synda bara í allar áttir
og gera ekkert vel.”
„Við ætlum ekkert
endilega að verða
frægar, bara halda
áfram að búa til
tónlist."
Nafnið er ekki sótt í þáttinn um Múmínálfana heldur valið vegna þess
að það fer vel í munni, hljómar vel en það þýðir ekki neitt. Hljómsveitin Múm
var valin „Bjartasta vonin" þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent nýverið
og eru liðsmenn sveitarinnar að vonum hamingjusamir með þá útnefningu.
Jóhanna Vigdís hitti þær Gyðu og Kristínu, Múm-tvíburana, á Svarta Kaffi
og þær sögðu henni nánar af samskiptum sínum við tónlistargyðjuna.
Kristín og Cyða, sem eru 18 ára, koma blaðamanni fyrir sjónir sem
ósköp indælar og ákveðnar ungar konur. Ef Gyða hefur setningu
þá lýkur Kristín henni yfirleitt, og öfugt, þannig að ekki er mögu-
legt að greina þær í sundur. Lesendur verða því að sætta sig við
einradda Múm-tvíbura og geta jafnvel ímyndað sér fyrirbæri,
Múm-skrímsli, þar sem annar helmingurinn leikur á selló á meðan
hinn spilar á píanó.
„Við erum á tónlistarbraut MH, það er fínt, gefur okkur meira
svigrúm til að einbeita okkur að tónlistinni." Kristín er að læra á
píanó en Gyða leikur á selló.
„Hljómsveitin Múm var stofnuð af Gunnari Erni og Örvari, sem
áður voru í hljómsveitinni Andhéri, en við kynntumst þeim í MH."
Þar fluttu þær tónlist sem Gunnar og Örvar sömdu við leikrit sem
MH setti upp. Þær eiga erfitt með að lýsa tónlist Múm, „en ömmu
finnst hún frábær, svo angurblíðir tónar, eins og hún orðar það.
Sumir tala síðan um argasta hávaðapönk en þeir hljóta reyndar að
hafa hlustað á aðra plötu en okkar. Svo virðist sem fólk heyri ná-
kvæmlega það sem það vill heyra þegar það hlustar á Múm."
Hljómsveitin tekur upp grunna í hljóðveri sem hún síðan spilar yfir
á tónleikum. Stundum spinnur hún lögin upp á tónleikunum en
stundum eru þau fullkláruð, það eru aðallega ný lög sem taka
breytingum milli tónleika.
Blaðamaður spyr þær Gyðu og Kristínu hvort þær séu góðar
vinkonur, sem er reyndar heimskuleg spurning miðað við að þær
virðast gera allt saman. „Á tímabili vorum við að reyna að eignast
sitt hvorn vinahópinn en það gekk ekkert þar sem okkur líkar
alltaf vel við sama fólkið. Þannig að við erum bara búnar að sætta
okkur við að eiga sama vinahópinn og erum góðar vinkonur." Þær
segjast hins vegar alls ekki vera mjög líkir persónuleikar og þegar
ég spyr þær hvað þeim líki verst í fari hvor annarrar finna þær
ekkert. „Ef það væri eitthvað til að tala um myndum við sko ekki
gera það í blaðaviðtali."
18 • VERA