Vera


Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 33

Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 33
Vegna þess að viðurkennt er að konur séu barðar, var brugðist við þeim hálfsann- leika með stofnun kvennaathvarfs til þess að forða konunum frá „barsmíðunum" og það fannst okkur öllum hin rökrétta lausn. I sumar vorum við Stígamótakonur spurðar að því í útvarpinu fyrir verslunar- mannahelgina hvað segja ætti við ung- lingsstúlkur sem langaði á útihátíðir. A annarri stöð var spurt hvað segja ætti við mæður stelpna sem ætluðu á útihátíðir. Um daginn var ég beðin að koma í efstu bekki grunnskóla. Þar var búið að skipta upp árgöngunum eftir kynjum og ég var beðin að koma og spjalla við stelpurnar um kynferðisofbeldi. í öllum tilfellum var um áhugasama, velupplýsta spyrla að ræða. Það er eins og nauðganir, sifjaspell eða barsmíðar hitti þær konur og börn sem fyrir því verða eins og þruma úr heiðskíru lofti. Bara sí sona. Rifjum upp að algeng- ustu afleiðingar kynferðisofbeldis eru skömm, sektarkennd og léleg sjáifsmynd. Þær sem fyrir ofbeldinu verða bera enn ábyrgðina á því. Þær sem ekki „passa sig“ eru sekar. Hvað er það sem við enn segjum ekki?? Hvað er það sem vantar í þessar fullyrðing- ar um að konum sé nauðgað, börn séu misnotuð og konur séu barðar??? Hverju höfum við pakkað inní orð eins og heim- ilisofbeldi? Hinu ósegjanlega. Nefnilega að það eru menn sem berja, nauðga og beita börn sifjaspellum. Mér líður sjálfri eins og hálf- gerðri ofbeldismanneskju þegar ég segi þetta. Það er svo vont. I ár kærðu bara 17% þeirra sem til Stígamóta leituðu það ofbeldi sem þær urðu fyrir. Langflestir þeirra rúmlega fjög- ur þúsund ofbeldismanna, sem eru okkar eiginlegu vinnuveitendur hjá Stígamótum, ganga um fríir og frjálsir án þess að nokkurn óri fyrir glæpum þeirra, aðrir en þær sem urðu fyrir þeim og við hjá Stíga- mótum. Næstu skref Það er ekki fyrr en við endanlega rjúfum þögnina og setjum skömmina, sektar- kenndina og vondu sjálfsmyndina þar sem hún á heima, að við getum leitað réttra lausna. Það er ekki fyrr en við hættum að tala um heimilisofbeldi og tölum um karlaofbeldi að við bregðumst rétt við. Að við lokum kvennaathvörfunum svo að konur og börn þeirra hætti að verða flóttamenn í eigin landi vegna þess að við horfum framhjá því að karlarnir sem beita þær ofbeldi hafa heimili þeirra í gíslingu. Við þurfum að mynda eins konar friðar- gæslusveitir sem tryggja líka þeim sem búa með ofbeldismönnum friðhelgi heimil- anna og fjarlægjum hættuna - ofbeldis- mennina. Það er ekki fyrr en spurt er hvað eigi að segja við stráka og strákaforeldra áður en haldið er á útihátíðir að eitthvað fer að breytast, því ef stelpurnar færu einar á úti- hátíðirnar ættu engar nauðganir sér stað. Það er ekki fyrr en að við erum líka beðnar að tala við strákana í kynskiptum bekkjum að eitthvað gerist, því bæði eru strákar misnotaðir og í þeirra hópi felast því miður mögulegir framtíðarofbeldis- menn. I baráttuna gegn kynferðisofbeldi þurf- um við að fá í lið með okkur hinn helming þjóðarinnar, karlana. Við þurfum karla- klúbbana, sem einbeita sér að ýmsum þjóðþrifamálum, til þess að taka ábyrgð á og horfast í augu við ofbeldishneigð kyn- bræðra sinna. Næstu skref okkar Stígamótakvenna eru þessi. Að vera enn um sinn boðberar vá- legra tíðinda og setja ábyrgðina þar sem hún á heima. Það eru skref í áttina að því að láta stóra drauminn okkar rætast, drauminn um að loka Stígamótum. Leikkonurnar Margrét Ákadóttir, Steinunn Ólafsdóttir, Kotbrún Erna Pétursdóttir og Edda V. Guðmundsdóttir i hlutverkum sinum. Það er ekki fyrr en spurt er hvað eigi að segja við stráka og strákaforeldra áður en haldið er á útihátíðir að eitthvað fer að breytast, því ef stelpurnar færu einar á útihátíðirnar ættu engar nauðganir sér stað. VERA • 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.