Vera


Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 42

Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 42
Flóttamannabúðir kaþólsku kirkjunnar í Bari. anna eru skilríkjalausar ungar stúlkur, oft- ast uppdópaðar, í gæslu bátsverja svo þær reyni ekki að flýja eða fyrirfara sér. Þær hafa verið plataðar eða rænt frá heimilum sínum og eru seldar til að stunda vændi. Nokkrum metrum frá landi er þeim hent í sjóinn. A strönd Italíu bíður mafían eða hver sá sem „á“ stúlkurnar, eða ef þær eru heppnar finnur lögreglan þær á undan og færir í flóttamannabúðir. Um þetta fjölluðu erindin á ráðstefn- unni og umræðan sem á eftir fylgdi. Við sáum vídeómyndir sem sýndu viðtöl við nokkrar stúlkur sem hafði verið bjargað frá mafiunni eða melludólgum. Oftar en ekki höfðu þær verið lokaðar inni vikum, jafn- vel mánuðum saman í vændishúsum. Aður höfðu þær verið seldar á milli staða eins og hver annar varningur. Flestar vildu ekki láta andlit sín sjást eða gefa upp nafn, af ótta við að þá yrði fjölskyldum þeirra refsað grimmilega vegna frásagna þeirra og upp- ljóstrana. Við heyrðum þær segja frá vin- konum sínum sem voru látnar vegna mis- þyrminga eða að þeim hafði verið gefinn of stór skammtur af dópi, eða hvoru tveggja. Sumar höfðu tekið líf sitt sjálfar. Við sáum og heyrðum um brunasár, skurði og hverskonar limlestingar og hroðalega kynferðislega misnotkun. Eg er viss um að erindin og vídeómyndirnar létu engan ósnortinn. Með sársaukann og dauðann í svipnum Stundum er sagt að sjón sé sögu ríkari. Það á auðvitað við þegar horft er á hverskonar myndefni. En aldrei hef ég skynjað sann- leiksgildi þessara orða eins sterkt og á þess- ari ráðstefnu í Bari. Síðasta dag hennar fórum við í heim- sókn í flóttamannabúðir sem staðsettar eru rétt fyrir utan borgina. I þessum búðum, sem kaþólska kirkjan rekur án ríkisstyrkja, aðeins fyrir frjáls framlög, búa á sjötta hundrað flóttamenn. Aðeins brot af þeim fjölda flóttamanna sem koma til Italíu í hverri viku. Fólkið dvelur aðeins stuttan tíma í búðunum, eina til tvær vikur, fær föt, mat, læknisaðstoð og aðstoð vegna skilríkja ef með þarf. Er síðan hjálpað áfram heim eða til annarra landa. Þau hugsa um búðirnar sjálf, þ. e. matreiða, þrífa og svo framvegis. Þarfir þessa fólks eru virtar ef mögulegt er. Til dæmis er það svo að þó kaþólska kirkjan reki þær er hvergi að sjá nein trúar- leg tákn. Það er gert af virðingu við þá ein- staklinga sem þarna dvelja og koma frá ólíkum menningar- og trúarsvæðum. Það var undravert að sjá hvernig fólkið hjálpaðist að og bjó saman í stórum sölum hússins. Það gilti þó ekki um alla. I lítilli hliðarálmu voru nokkrir íbúar einangraðir frá hinum. Þar voru starfsmenn kirkjunnar, læknir og sálfræðingur á vakt. Þó íbúar álmunnar væru fáir þurftu þeir meiri og stöðugri aðhlynningu og eftirlit en allir hinir. Þarna bjuggu ungar stúlkur sem lög- reglan hafði náð á ströndinni meðal flótta- mannanna, 20 ungar stúlkur sem komu í búðirnar á einni viku. Stúlkur sem sendar voru frá Balkanskaganum til að stunda vændi í hinum vestræna heimi. Heimi ríki- dæmis, velmegunar og menntunar — um- hverfi sem þær þekktu ekki en væntu sér svo mikils af. Þessar ungu stúlkur náðust áður en þær komust á leiðarenda úr klóm eigenda sinna, fólks sem hafði keypt þær á upp- boðsmörkuðum. Því mætti ef til vill ætla að þær væru ekki svo illa farnar. En það var öðru nær. Það var ólýsanleg tilfinning að standa fyrir framan þessar ungu stúlkur, þær yngstu rétt 1 S ára gamlar. Fallegar stúlkur en með sársaukann og dauðann í svipnum. Þær höfðu samþykkt að taka á móti okkur og að það yrði sagt frá reynslu þeirra ef það mætti verða til þess að bjarga öðrum sem væru í sömu sporum. Allar höfðu gengið í gegnum svipaða lífsreynslu. Búsettar í þorpum og bæjum á Balkanskaga, þó ekki samlanda. Komu úr frekar stórum fjölskyldum sem bjuggu við algera fátækt þegar „bjargvætturinn" eða „bjargvættirnir" birtust. Bjargvættirnir komu og buðu betra líf, vinnu í verslun- um, á hótelum jafnvel við sýningarstörf. Þeim og fjölskyldum þeirra voru sýndar myndir af glæsilegum híbýlum og vinnu- stöðum sem biðu þeirra og að síðustu er svo trompinu spilað út. Himinhá laun á mælikvarða þessa fátæka fólks og mögu- leikar til að mennta sig. Bjargvættirnir komu og buðu bctra líf, vinnu í verslunum, á hótelum jafnvel við sýningarstörf. Þeim og fjölskyldum þeirra voru sýndar myndir af glæsilegum híbýlum og vinnustöðum sem biðu þeirra og að síðustu er svo trompinu spilað út. Himinhá laun á mælikvarða þessa fátæka fólks og möguleikar til að mennta sig. 42 • VERA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.