Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 53
Nú var Félag fasteignasala stofnað árið 1983 og þú ert
fyrsti kvenformaður félagsins. Er þetta karlastétt?
„Já, það mætti segja það. Það eru nokkrar konur starfandi
en þær eru í minnihluta," segir Guðrún en hún telur að
ekki séu nema um sex eða sjö konur virkar sem fast-
eignasalar. Til samanburðar nefnir hún að í félaginu eru
rétt rúmlega 60 félagar. Það líti út fyrir að konur sæki
ekki í starfið og það virðist ekki vera að breytast. Hún
segir að erfitt sé að gera sér grein fyrir ástæðunni en
játar því að hið mikla álag gæti haft sitt að segja. Félag
fasteignasala er nokkurs konar hagsmunafélag. „Þar
reynum við að vinna að ýmsum málum, sem koma
ekki aðeins okkur til góða heldur líka neytendum,
þ.e. kaupendum og seljendum.Við fáumst þannig við
allt sem snýr að Ibúðalánasjóði og vinnuferlinu þar,
ýmis verkefni sem snúa að ráðuneytum og fleira. Þá
leita margir til okkar með spurningar, kvartanir og
erindi. Þetta er ákveðið starf sem þarf að vinna til
viðbótar við eigin vinnu,“ segir Guðrún þegar hún
er spurð nánar út í formannsstarfið. „En líkt og með
önnur félagsstörf þroskar það einstaklinginn að
þurfa að takast á við ábyrgð og ný verkefni."
Nú hefur ástandið á fasteignamarkaði verið mjög
sérstakt undanfarið og mikið rætt um þenslu og
gríðarlega eftirspurn. Hvernig líta fasteignasalar
á þessa þróun?
„Það er mjög mikil eftirspurn og fasteignaverð er
hátt um þessar mundir. Fyrir hinn almenna kaup-
anda þýðir það að mikil samkeppni er um eignir.
Þetta er mikil breyting frá því ástandi sem liefur
varað í mörg ár. Ég hef stundum sagt til gamans að
ég hafi unnið 10 ár í kreppu og 1 ár í þenslu.
Astandið núna er því svolítið sérstakt. Það er ólíkt
skemmtilegra að vinna við þessar aðstæður."
Hvernig sérðu þróunina á fasteignamarkaðnum
fyrir þér?
„Það er nú ekki viturlegt að reyna að horfa langt fram
í tímann og gefa út einhverja spá,“ segir Guðrún. „En
ég gæti trúað því að ástandið verði mjög svipað í ná-
inni framtíð. Það vantar eignir á markað og það er
ekki byggt nægilega mikið til að svara eftirspurn-
inni.“ Hún telur þó ekki að um neyðarástand sé að
ræða fyrir kaupendur. „Aðstæður eru breyttar og fólk
þarf að taka skjótar ákvarðanir. Það fmna flestir réttu
eignina en umhugsunartíminn er lítill. “
A.A.
Tækniskáli íslands
Bjóðum nám
C Frumgreinadeild )
Undirbúningur að námi á háskólastigi
Hraðferð fyrir stúdenta
tæknískóli íslands__________
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík,
sfmi 577-1400, fax 577-1401, www.ti.is
Œ3
LZ3 DD
C Tæknilræði
Sjö anna nám sem lýkur með B.Sc. gráðu:
Byggingatæknifræði
Iðnaðartæknifræði
Ra fmagnstæknífræði
Uppiýsingatæ
Vél- og orkuti
C Iðnfræði
Þriggja anna nám að loknu iðnnámi og prófi úr
undirbúningsdeild Tækniskóla Islands.
Byggingaiðnfræði
Rafiðnfræði
Véliðnfræði
c Iðnrekstrarfræði )
Fjögurra anna nám á háskólastigi
C Alþjáðamarkaðsfræði )
Tveggja anna nám að lokinni iðnrekstr ;ði
sem lýkur með B.Sc. gráðu
C Vörustjórnun
Tveggja anna nám að lokinni iðnrekstrarfræði
sem lýkur með B.Sc. gráðu
C Meinatækni
Átta anna nám sem lýkur með B.Sc. gráðu
DÐ t
C RöntgentæknT
Átta anna nám sem lýkur með B.Sc.
kmfræði