Vera - 01.10.2001, Page 36
Kaffibollinn hennar Guðmundu
Sú var tíð á íslandi að konur lifðu nánast ein-
gögu á kaffi því þær höfðu ekki tíma til að
borða, þær voru svo uppteknar við að þjóna
heimilisfólkinu. Þær helltu í sig ómældu magni af
bleksterku kaffi til að halda sér uppi. Á tuttug-
ustu og fyrstu öldinni er kaffi munaðarvara og
heilu húsin hafa risið sem kenna sig við þennan
eðaldrykk. Vera ræddi við þrjár konur um kaffi-
venjur þeirra og sérvisku þeim tengdum.
Guðmunda Elíasdóttir söngkona
36
„Þegar ég var að alast upp fyrir vestan þótti ekkert tiltökumál
þó krakkar væru að drekka kaffi. Sjálf var ég átta ára þegar ég
þyrjaði og þá var ekki hægt að kaupa filter-kaffipoka úti f búð
heldur saumaði mamma þá úrgömlum bómullarnærfötum
sem nýttust vel sem kaffisía. En krakkar drukku líka mikið te-
vatn á þessum árum, þá var mjólk og vatni blandað til helm-
inga og soðið svolitla stund. Síðan fengum við kringlu til að
bleyta ofan í. Þá var sykur munaðarvara og það var lúxus fyrir
litla krakka að fá að dýfa sykurmola ofan í kaffibolla hjá þeim
fullorðnu.
í dag drekk ég venjulegan uppáhelling úr rafmagnskaffivél og
nota enga mjólk en svolítið Natreen sætuefni en ef ég fæ
súkkulaðiköku með kaffinu þá sleppi ég sætuefninu. Ég hef
mjög ákveðnar kaffivenjur, ég helli upp á fjóra bolla að
morgni, drekk tvo bolla á meðan ég les Moggann og hinir
tveir duga mér til miðdags en ég passa lfka alltaf að hafa
vatnsflösku hjá mér svo ég hjóli ekki beint í kaffikönnuna ef
mig þyrstir. Svo helli ég upp á einn stóran bolla í litlu Duo-
kaffikönnunni minni á kvöldin og klára úr honum fyrir klukkan
tíu. Ég drekk kaffið hérna heima hjá mér alltaf úr sama boll-
anum þar til hann brotnar en þá verð ég líka miður mín.
Núna er ég með bolla sem einn nemandi minn færði mér frá
Kúbu fyrir tveimur árum. Undirskálin brotnaði en í staðinn
nota ég glasamottu úr silfri og litlu ævafornu teskeiðina má
aldrei vanta. Ég er dálítið vandlát á kaffi og drekk ekki hvað
sem er. Ég kaupi sérristað Merild til að hella upp á heima hjá
mér en þegar ég er í Luxemborg hjá syni mínum á sumrin þá
drekk ég lakobsen kaffi. Ég fer gjarnan á kaffihús en mér
finnst þykkt og níðsterkt kaffi vont svo ég panta mér alltaf
venjulegt kaffi. Hér í bæ finnst mér það best á Kaffi París."
myndir: Gréta