Vera - 01.10.2001, Síða 49
lUafn: Ragna Ágústsdóttir
Aldur: 44 ára
Menntun: Skjúkraliði frá Sjúkraliða-
skóla íslands 1980. Framhaldsnám í
geðhjúkrun 1996 og í endurhæfingar-
hjúkrun við Fjölbrautaskólann í Ármúla
2001.
Starf: Sjúkraliði.
Vinnustaður: Landspítali, Há-
skólasjúkrahús í Fossvogi.
Starfsaldur: 21, ár.
Laun: 120.000 í grunnlaun.
Fjölskylduhagir: Cift, á tvo stráka
og tvö barnabörn.
Ertu ánægð með launin?
Langt frá því.
Hvað finnst þér að þú ættir að fá í
laun? 200 - 250.000 krónur.
Hvar sérðu þig fyrir þér á vinnu-
markaði í framíðinni? Ég vona að
launin batni, þá vil ég vinna áfram sem
sjúkraliði. Nú hef ég sagt tímabundið
upp störfum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Flugmaður.
Starfsábyrgð og skyldur: Starfinu
fylgir mikil ábyrgð þar sem við erum alla
daga að hjúkra mikið veiku og slösuðu
fólki og aðstoðum það við að komast
aftur út í lífið.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
starfið? Ég hef alltaf haft gaman að
fólki og í okkar starfi kynnumst við allri
flóru mannlífsins.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Hversu
lítils metin störf sjúkraliða eru.
Réttindi og fríðindi sem fylgja starf-
inu: Okkur eru sköffuð vinnuföt. Starfs-
mannafélagið á sumarbústað sem við
eigum rétt á að nota.
Vinnutími: Þrískiptar vaktir; morg-
un-, kvöld- eða næturvaktir, og aðra
hverja helgi.
Hárkollugerð
Kolfinnu Knútsdóttur ehf.
Spennandi nýjung á íslandi.
Dag- og kvöldnámskeið í hárkollugerð.
Vegna opnunar á nýrri verslun Hárkollugerðarinnar að
Skólavörðustíg 8, 1 hæð, bjóðum við upp á
hálfkollur og hárskraut á kynningarverðl.
SkóUvörðustíg 8, 1. hæð • 101 Reyk|avík
Síml 511 5222 • GSM 896 7222 • Fax 511 5220
e-mall koinniia@hArkollugerð.ls • http://www.harkollugerð.ls