Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Page 7
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
7
Námsferð nýútskrifaðra Ijósmæðra
til Skotlands vorið 1987
í byrjun júní 1987 lögðu nýútskrifaðir ljósmæðranemar land undir
fót og heimsóttu Skotland sér til ánægju og yndisauka en þó aðallega
til þess að fræðast örlítið um hvemig þarlendir taka á móti bömum og
sinna öðm því sem þar að lýtur. Okkur til fulltingis vom þrautreyndar
ljósmæður flestar af fæðingardeild Lsp. en þó slæddist með ein af
vökudeild og önnur af göngudeild sama spítala auk kennslustjórans
okkar. Fararstjóm annaðist af mikilli röggsemi Kristín I. Tómasdótt-
ir. Við stöndum í mikilli þakkarskuld við þá íslensku lækna Steingrím
Björnsson sem starfar á Royal Matemity Hospital í Glasgow og Pál
Ágústsson á Ninewells Hospital í Dundee en þeir hjálpuðu mjög við
skipulagningu heimsóknanna. Auk þess sem þeir sýndu okkur sitthvað
fyrir utan veggi spítalanna, sem sumir vom heldur nöturlegir.
Við skoðuðum 3 sjúkrahús, Royal Matemity Hospital og Queen
Mothers í Glasgow og Ninewells Hospital í Dundee. Allstaðar var
tekið vel á móti okkur og í öllum tilfellum búin til prógröm þar sem
ljósmæður sem stóðu fyrir hinum ýmsu deildum héldu fyrirlestra um
starfsemi þeirra og síðan vom umræður og skoðanaskipti á eftir.
Ég ætla að rekja hér á eftir í stuttu máli það sem helst vakti athygli
mína og okkar en kem minna inn á það sem er eins og hjá okkur. Við
þessar nýútskrifuðu höfðum talsverðan áhuga á að vita hvemig ljós-
mæðranámið er byggt upp hjá Skotum og ætla ég að gera stutta grein
fyrir því. Námið er samræmt og em skólar við flestöll stærri sjúkra-
húsin. Það er tekið inn í þá á þriggja mánaða fresti. Námið tekur 18
mánuði og skiptist í 4 hluta sem allir em svipaðir að lengd. í fyrsta
hlutanum er fjallað um eðlilega meðgöngu, fæðingu og sængurlegu og
er fyrst 3ja vikna bóklegt námskeið en næstu 16 vikur skiptast jafht
á mlli fæðingagangs, sængurkvennadeildar, og vinnu úti í hverfum
(sjá síðar).
Annar hlutinn fjallar um vandamál og sjúkdóma á meðgöngu auk
vandamála hjá nýburanum og er byggður upp svipað og sá fyrsti þó
unnið sé á öðmm deildum.
Á þriðja hlutanum er farið mest í stjómun og fæðingarhjálp/fyrir-
burafæðingar.