Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 11

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 11
TlMARIT VFl 1966 35 að gera þar hafnarvirki, af þeirri stærð, sem þarf vegna notkunar vatnsaflsins. Verður því að leita til Reykjavíkur. Þar eru góð hafnarskilyrði við Skerjaf jörð og mikið land- rými til athafna. Aflið verður því flutt til iðnað- arins sem þar mun rísa upp, til útflutnings á af- urðunum. Vegalengdin er 67,5 km frá Urriða- fossi, 118,5 km frá Búrfelli og 145 km frá Hraun- eyjarfossi í Tungnaá. Næsti þáttur er lýsing á aflstöðvunum. Hefst hann á sameiginlegum inngangi um allar stöðv- arnar. Eiga þær að vera sem líkastar að allri gerð, vélavali, rafbúnaði og stífluvélum í því skyni að gera rekstur þeirra hagkvæmari. Afl- stöðvarnar munu starfa allar hliðtengdar og geta verið hver annarri til aðstoðar, þannig að eigi muni þurfa neinar sérstakar varavélar. Vélasamstæðunum er ætlað við fulla virkjun að nýta allt aflið, sem fáanlegt er í 7 vatnsmestu mánuðum ársins. 1 neðri stöðvunum 4 eru fyrir- hugaðar 10 vélasamstæður, í Búrfellsstöð 20 og í Hrauneyjarfossstöð 6. Verður þá vélastærðin í fyrrnefndri stöð 27.500 hestöfl, en í hinni síð- ari 24.000 hestöfl. Er þess getið, að svo stórir vatnshverflar hafi verið smíðaðir í Bandaríkj- unum. Þjórsárholtsstöðin er hugsuð ólík hinum stöðvunum að því leyti, að hún á að hafa hverfla með lóðréttum ásum, en hinar stöðvarnar eru allar með lárétta vélarása. Þessi stöð og Hest- fossstöðin hafa sömu fallhæð, en ástæðan fyrir tilbreytninni með vélaásana er sú, að fá reynslu mn muninn á rekstri hverfla með lóðréttum og láréttum ásum í þessum tveim stöðvum, sem eru að öðru leyti eins. Þess er getið að í Norður- álfu séu hvarvetna notaðir hverflar með lárétt- um ásum en í Bandaríkjunum séu mikið farnir að tíðkast hverflar með lóðréttum ásum, er þykja taka minna rúm. Gert er ráð fyrir að nota full- komnustu tækni, sem þekkist og að geta full- nægt nútíma kröfum um stöðugleika og öryggi í rekstri. 1 flóðgáttum í stíflunum er ráðgert að nota hólklokur, en þær eru orðnar algengastar við stórvirki og eru mjög öruggar í rekstri. Við flóð í ánni er þeim lyft þannig, að vatnið rennur undir þær og má lyfta þeim alveg upp fyrir vatnsborð. Auk þess er ráðgert að nota sjálf- virkar hleralokur til að hleypa niður reksturs- rennsli, þegar þarf, ef vél skyldi stöðvast skyndi- lega og vatnsborð ofan inntaks taka að hækka af þeirri ástæðu. Slíkar sjálfvirkar hleralokur mætti einnig nota í stað hólkanna í flóðgáttunum, en talið er öruggara að vera óháður sjálfvirkum búnaði til að hleypa niður flóðrennsli. Flóðgátt- irnar eru miðaðar við að hleypa niður 2000 m3/sek rennsli, án aðstoðar hleranna eða hverfl- anna. Botnrásir eru nauðsynlegar við byggingu stíflu til að hleypa rennslinu í gegn, meðan ver- ið er að byggja aðra hluta stíflunnar og síðar við eftirlit á framhlið stíflu. Ofan við hverja aflstöð er stór inntaksþró eða uppistaða með lygnu vatni, sem hindrar kælingu þess. En eigi þarf að búast við mikilli ísingu á inntaksristum við þessar stöðvar, af því að vet- ur eru svo mildir á Suðurlandi. 3) Virkja má á hverjum stað aðeins hluta afls- ins, en gera verður þó öll vatnsvirki í upphafi fyrir fu]la virkjun og ráðgert er einnig að véla- húsin verði fullbyggð í upphafi fyrir allar vélasamstæður, en aðeins sumar þeirra sett- ar upp í byrjun. Fyrsta virkjunarstig er hugsað °/10 af fullri virkjun eða með afli til að nota 5 mán. eða lágrennslið, en næstu stig verði svo framkvæmd með því að bæta við véla- samstæðum smám saman til fullvirkjunar á 7 mánaða rennslinu. Miðlunarvirkin við stöðuvötn- in eru hugsuð gerð um leið og 1. virkjunarstig stöðvanna er framkvæmt. Til þess að geta framkvæmt þessar virkjanir þarf bráðabirgðaaflstöðvar. Er gert ráð fyrir að nota til þeirra sömu þrýstivatnsæðar, sem not- aðar verða í sjálfri stöðinni síðar og vélarnar verða einnig notaðar þar síðar sem hjálpar- vélar. Stíflur eru allar gerðar úr steinsteypu. Blönd- unarhlutföll hennar verða ákveðin síðar, eftir rannsóknir á byggingarefnunum. Sandur er fá- anlegur allsstaðar nálægt virkjunarstað. Flóðgáttir skulu steinlagðar svo og stíflurn- ar sjálfar ofan og forstreymis ásamt stöplum. Stöðvarhúsin skulu steinsteypt, veggir og und- irstöður járnbent. Eftir þennan almenna inngang koma lýsingar á einstökum virkjunum með kostnaðaráætlun- um. Hér á eftir verður aðeins rætt um Búrfells- virkjunina. Lýsingin sýnir þeirra tíma tækni, þ. e. fyrir nær 50 árum. Búrfellsvirkjun. Ráðgert er að stífla Þjórsá um Klofaey og nota fallhæðina þaðan niður fyr- ir Búrfell. Lengd árinnar á þessari leið er 15 km og fallhæðin 120 m. Af því er nothæf fallhæð 111 m, sem er hæðarmismunurinn á vatnsborð- ‘) Kemur hér í ljós að Sætersmoen hefir aldrei dvaliö hér vetrarlangt, þessi rannsöknarár sín. Vanmetur hann því ísingarhættuna, þótt vatnshæöarmælingarnar mis- tækjust á vetrum vegna íss I ánni.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.