Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 17
TlMARIT VFI 1966
41
10 ________ 0 >0 20 ____ 10 00 M
8. mynd. ÞversniÖ stöðvarhúss.
inn ofarlega um útvegg og leitt í loftrásum inni
í veggnum til sameiginlegrar rásar undir gólfi
meðfram útveggnum endilöngum. Loftið grein-
ist þaðan til hvers einstaks rafala. Á loftinn-
takinu er spjald til að stilla lofttökuna ýmist
utanfrá eða innan úr vélasal eða blandað eftir
veðri og sé þess gætt, að rakaloft að utan kom-
ist ekki inn að rafölunum.
Frá rafölunum er upphitaða loftinu blásið inn
í rásir undir gólfi og út í loftgöng við efri hlið
stöðvarhússins og þaðan má ýmist hleypa því
inn í vélasalinn til hitunar eða út úr stöðinni.
Rafstraumurinn er leiddur í strengjum eftir
heitloftsgönguniun til spennanna og til raf-
tækjanna í efri hæðum hússins, en þar eru rof-
ar, safnteinar, yfirspennuhlífar og annar raf-
búnaður. Spennarnir eru settir við bakhlið
stöðvarhússins, utan við lokahúsið, í bása þar
meðfram endilöngu húsinu. Þaðan má flytja þá
á vagni, er rennur á spori til verkstæðisins fyrir
öðrum enda en þar er rennikrani yfir til við-
gerða og eftirlits.
Stjórnrúmi stöðvarinnar með stýri og mæli-
tækjum og öðrum rafbúnaði er komið fyrir á
annarri hæð við framhlið stöðvarhússins. Þar
er og símavarzla og samskiptakerfi við starfs-
menn niðri við vélagæzluna.
Fráfaralínur stöðvarinnar eru teknar út frá
efstu hæð um einangra á útveggnum, er hafa
hlífðarþak yfir vegna snjóskriðs. Komast má að
einangrunum af svölum neðan við þá.
Járnbrautarspor liggur með fram stöðvar-
húsinu alla leið iim í verkstæðið, þannig að taka
má þar þungavöru af vögnum með rennikran-
anum og flytja í sporvögnum stöðvarinnar
hvert sem þurfa kann.
Járnbraut vegna virkjunarinnar. Um hana
segir svo: Virkjun Þjórsár verður til þess að
íslenzka ríkið getur framkvæmt fyrirætlanir
sínar um lagningu járnbrautar. Hennar verður
þörf, eigi aðeins vegna þess iðnaðar, sem rísa
mun upp umhverfis aflstöðvarnar, heldur mun
íslenzkur landbúnaður eflast við það að fá til
afnota ódýran tilbúinn áburð, bættar samgöng-
ur við Reykjavík og góða höfn. Það verður því
eðlilegt að fyrirtækin taki höndum saman við
ríkisstjórnina til að leggja járnbraut.
Það er ekki alveg nauðsynlegt að leggja slíka
járnbraut vegna virkjunar Þjórsár, af því að álíta
má að bæði Stokkseyri og Eyrarbakki geti dugað
með nokkrum umbótum til uppskipunar á véla-
hlutum og öðru efni til virkjananna, af því að
eigi þarf að halda uppi stöðugri skipakomu, held-
ur taka inn vörurnar á þeim tíma árs, þegar veð-