Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Side 19

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Side 19
TlMARIT VFI 1966 43 VIRKJUN ÞJÓRSÁR VIÐ BÖRFELL Eftir dr. Gunnar Sigurðsson, yfirverkfræðing Inngangur Islendingum hefur löngum verið ljóst að mikil auðlegð býr í fallvötnum landsins. Meira en hálf öld er nú liðin síðan byrjað var að ræða um virkjun stóránna og þá sérstaklega Þjórsár, en nú er þessi draumur að rætast. Byggingafram- kvæmdir við virkjunina hófust vorið 1936 og miðar allvel áfram. Áætlað er að verkinu ljúki í desember 1969, en ári áður á fyrsta vélasam- stæðan að fara í gang. Mikið hefur verið rætt og ritað á undanförnum árum um Búrfellsvirkj- un og þá stóriðju sem fyrirhuguð er í sambandi við hana. 1 þessari grein verður reynt að skýra stuttlega frá virkjuninni og virkjunaraðstæðum og gefa lesendum yfirlit yfir mannvirkið í heild. Þjórsá Þjórsá er orkumesta fallvatn landsins. Stærsta þverá hennar er Tungnaá, og fellur Kaldakvísl í hana. Tungnaá og Kaldakvísl skila meira vatni en Þjórsá ofan ármóta. Þjórsá og þverár henn- ar eiga upptök sín í Hofsjökli, Tungnafellsjökli, austanverðum Vatnajökli og hálendinu á milli Jökla. Vatnasvið Þjórsár allrar er 7530 ferkíló- metrar að stærð, þar af um 16% jöklar. Lengd árinnar frá upptökum er um 230 km og fallið frá hálendi til sjávar um 600 m. Áætlað er að nýtanleg orka Þjórsár sé um 9600 milljónir kílówattstunda á ári, þar af tæplega þriðjungur á virkjunarsvæðinu hjá Búrfelli. Vatnasvæði Þjórsár ofan Búrfells er 6350 km2. Stór hluti þessa svæðis eru ungar eldfjallamynd- anir, hraun og sandar með gljúpum jarðlögum sem safna í sig vatni. Jarðvatnið, jöklar og stöðuvötn á vatnasvæðinu, jafna rennsli Þjórs- ár þannig, að vetrarrennslið við Búrfell er milli 150 og 250 m3/sek, sumarrennslið milli 400 og 500 m2/sek en meðalrennslið 338 m3/sek. Frá því að reglubundnar mælingar hófust í Þjórsá árið 1947, áætlast mesta flóð við Búrfell vera um 2000 m3/sek, en minnsta rennsli 72 m3/sek. Þetta tiltölulega jafna rennsli gerir kleift að nýta rúmlega 60% af orkunni við Búrfell í svo- kallaðri rennslisvirkjun þ. e. a. s. virkjun, sem nýtir einungis það vatn til orkuframleiðslu, sem er í ánni á hverjum tíma. Þjórsá ber með sér nokkurt magn af aur, bæði grófum sandi og möl, sem skríður með botni, (botnaur) og fínum sandi og jökulleir, sem flýt- ur áfram upphrært í vatninu (svifaur). Auk þess getur ís borið með sér allstóra steina. Þær mælingar, sem fyrir liggja, benda til þess, að aurburður sé ekki mjög mikill í Þjórsá, sé mið- að við sambærileg erlend fallvötn. Ismyndanir í Þjórsá eru margvíslegar s. s. lagnaðarís, grunnstingull, ískrapi og snjókrapi. Lagnaðarís berst að virkjuninni aðallega þegar þíðviðri eða þrepahlaup brjóta upp skarir og ísbrýr ofar í ánni. Grunnstingull setzt á ár- botninn og hleðst á steina. Á Búrfellssvæðinu er algengt að árbotninn sé þakinn 20 sm þykkum ís. Is, sem hleðst á steina, getur vaxið upp úr vatnsborði og myndað íseyjar í ánni. Snjókrapi myndast þegar snjór fýkur í ána. Is, sem myndast í straumhörðu vatn, frýs ekki saman. 1 þess stað halda iðuköst og öldur ís- kristöllunum í sundur. Yfirleitt fljóta þeir í vatnsskorpunni í allstórum flygsum, en á flúð- um losna flygsurnar í sundur og ísinn hrærist upp í vatninu. Þessi ísmyndun er kölluð ískrapi (sjá mynd 1.). Mjög mikið magn af ískrapa myndast í Þjórsá ofan Búrfells. Á þessu svæði er Þjórsá yfirleitt það straumhörð að lagnaðar- ís myndast ekki. I kuldaköflum myndast ís við bakkana og vex smám saman út frá þeim. Þessi ís ásamt einstöku ísbrúm og ísbunkum minnk-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.