Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 26
50
TlMARIT VFÍ 1966
7. mynd. Líkan af stöðvarhúsi virkjunarinnar. Veggmynd gerði Sigurjón Ólafsson,
myndhöggvari. Arkitektar Búrfellsvirkjunar eru þeir Gunnlaugur Halldórsson og Guð-
mundur Kr. Kristinsson.
skurðinum, Bjarnalóni og inntaksskurðinum er
það lítill að lagnaðarís mun myndast þar og
varna frekari ísmyndun. Framan við inntakið er
komið fyrir 6 m breiðu yfirfalli með loku til að
skola út jakahröngli og öðru því sem fljóta kann
að inntakinu.
Inntaksristarnar eru hitaðar til varnar
grunnstingli og jafnframt er komið fyrir þrýsti-
loftskerfi í inntaksmannvirkjunum, sem getur
blásið upp lofti framan við þau, en slíkt hefur
víða reynzt vel, ef halda á opinni vök við inntak.
Jarðgöngin eru 10 m í þvermál, ófóðruð en
verða þétt með því að sprauta sementseðju í
rifur og sprungur og með því að steypa gólf í
botn þeirra. Mynd 6 er úr göngunum. Efri endi
ganganna er 12,5 m undir vatnsborði, en það-
an halla göngin lítillega í straumstefnu. Þessi
ófóðruðu göng eru grafin rúmlega 1000 metra í
gegnum blágrýtislög Sámsstaðamúla áður en
þau greinast í fóðruð þrýstivatnsgöng. Framan
við greininguna er grafin gryfja í botn gang-
anna til að taka við grjóti, sem fallið getur úr
göngunum og borizt með straumnum.
Um 50 metrum neðan við greininguna eru
tvær samtengdar jöfmmarþrær, sín yfir hvor-
um þrýstivatnsgöngum. Sambyggt þrónum er
lokumannvirki fyrir öryggislokur, sem gera
kleift að loka snögglega fyrir vatnsrennslið, ef
einhver bilun á sér stað.
Hvor þrýstivatnsgöng eru um 400 m löng,
þar af um 95 m lóðréttur kafli. Þeir 100 m. sem
næstir eru stöðvarhúsinu eru stálfóðraðir og
5,5 m í þvermál en annars eru göngin fóðruð
með steinsteypu og 6 m í þvermál.
Rétt ofan við stöðvarhúsið greinast hvor göng
í þrjár greinar sem liggja að hverflum stöðvar-
innar. Þar eru sérstakir lokar til öryggis, einn
framan við hvern hverfil.
Stöðvarhúsið er 12,7 m hátt yfir jörð. Aðal-
húsið er 18,6 m breitt og 84,7 m á lengd. Það er
allmikið niðurgrafið, t. d. er botn sográsanna
18,2 m fyrir neðan jarðvegsyfirborð. Það verð-
ur úr steinsteypu svo til gluggalaust, óeinangr-
að, en með eins metra þykkum veggjmn. 1 fram-
hlið hússins verður veggmynd eftir Sigurjón
Ólafsson, myndhöggvara. Mót af listaverkinu
verða gerð úr frauðplasti og fest innan á steypu-
mótin og myndin síðan steypt um leið og vegg-
irnir. Mynd 7 sýnir líkan af stöðvarhúsinu.
I stöðvarhúsinu verða sex 51.600 hestafla
hverflar af „Francis" gerð og knýr hver þeirra
35 MW rafal. Mynd 8 er þverskurður af stöðv-
arhúsinu. Frá hverflunum fer vatnið mn sog-
rásir út í stuttan skurð, sem opnast út í Fossá,
en Fossá rennur í Þjórsá um 2 km neðar. Á
hverflunum eru sérstakir slithringir, sem auð-
velt er að skipta um, ef jökulleir eða vikur sverf-
ur þá niður. Til frekari öryggis verða vatns-
hjól og slithringir gerðir úr ryðfríu stáli.
I stöðvarhúsi er komið fyrir skrifstofum,
verkstæði rafbúnaði og öðru, sem nauðsynlegt
er vegna reksturs og gæzlu virkjunarinnar, eins
og venja er til. Spennistöð virkjunarinnar er
staðsett rétt norðan við stöðvarhúsið. Frá henni
liggur ein einrása 220 kV lína um Irafossstöð
að Geithálsi og þaðan ein tvírása 220 kV lína til
fyrirhugaðrar álbræðslu við Straumsvík. Við
Geitháls verður aðalspennistöð, sem tengist við
núverandi aðalspennistöð við Elliðaár.