Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Side 28

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Side 28
52 TlMARIT VFI 1966 Jarðfræðirannsókn virkjunarstaðarins við Búrfell Eftir Hauk Tómasson, jarðfræðing. 1. Yfirlit yfir virkjunarhugmyndir og rannsóknir. 1.1 Staðhœttir. Búrfell í Þjórsárdal, sem virkjunarstaðurinn 1 Þjórsá er kenndur við, er fja.ll, sem rís um 500 m yfir flatlendið í uppsveitum Suðurlands en um 300-400 m hærra en lágar hæðir og hásléttan norðan og austan Búrfells. Við Búrfell og í f jöll- unum norðan þess eru skörp skil milli láglendis- ins að vestan og hálendisins að austan, en í sund- inu milli þess og Heklufjalla eru þessi skil aflíð- andi. Þjórsá rennur af hálendinu austan Búrfells i boga fyrir suðurenda þess og er þá komin nið- ur á láglendi. Á þessu svæði eru margir fossar og flúðir og er Þjófafoss hæstur. Er hann við suðurenda Búrfells, en efsti fossinn er Tröll- konuhlaup eða Tröllkonufoss á móts við mitt Búrfell. Fjöllin norðan Búrfells heita Sámsstaðamúli, næstur norðan við, þá Skeljafell og loks Stang- arfjall. Á milli Búrfells og Sámsstaðamúla er lægð, Bjarnalækjarbotnar, sem úr rennur Bjarnalækur, meðfram Búrfelli að austan. Milli Stangarfjalls og Skeljafells er önnur lægð, sem Þjórsá hefur stundum runnið í og á Rauðá þar upptök sín. 1.2 Tillögur um virJcjun Þjársár. Tillögur um að virkja fallið í Þjórsá, er hún fellur niður af hálendinu, komu þegar fram fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Norskur verkfræðingur, Sætersmoen, gerði áætlun um virkjun mjög nærri þeim stað, sem nú er virkjaður, að undirlagi Ein- ars Benediktssonar. Síðar kom Sigurður Thorodd- sen, verkfræðingur, fram með tillögu um að virkja fallið mun ofar eða við Sultartanga og með jarð- göngum gegnum Stangarf jall, og að lokum kom Harza Engineering Company fram með tillögu um virkjun neðar eða rétt fyrir ofan Tröllkonu- hlaup og með jarðgöngum gegnum sjálft Búrfell. Tillaga Harza Engineering kom fram í skýrslu til raforkumálastjóra útgefinni 1959. 1.3 Jarðfræðirannsóknir. Fyrstu jarðfræðirannsóknir vegna virkjana á þessu svæði voru framkvæmdar á grundvelli áætlunar um virkjun við Sultartanga af Guð- mundi Kjartanssyni á árunum fyrir 1959. Var þar um að ræða jarðfræðikortlagningu og yfir- litsrannsókn en engar boranir fóru fram. Eftir 1959 var rannsóknum beint að svæðinu við Tröllkonuhlaup og að Búrfelli sjálfu og stíflu- stæði milli þess og Sauðafellsöldu. Árið 1960 vann Þorleifur Einarsson að yfirlits- jarðfræði virkjunarsvæðisins, en 1961 hófust bor- anir bæði á stíflustæðinu og í Búrfelli sjálfu til þess að reyna að finna góðan stað fyrir neðan- jarðarstöðvarhús. Einnig voru þá gerðar jarð- sveiflumælingar á væntanlegu stíflustæði til þess að finna þykkt vikursins á hrauninu þar. 1 stuttu máli má segja, að þessi rannsókn 1961 hafi leitt í Ijós, að stíflustæðið er mjög erfitt og enginn hentugur staður fannst fyrir stöðvarhús austan í Búrfelli. Aftur á móti reyndust aðstæður hent- ugar fyrir stöðvarhús vestan í Búrfelli en engin leið var að spá um jarðlög þau, sem jarðgöng mundu liggja í, því að lagskipan í fjallinu var svo flókin, að ekki var hægt að tengja saman nein jarðlög vestan og austan megin fjallsins. Boranir niður í gegnum Búrfell til könnunar á jarðgangaleið mega heita útilokaðar vegna þess hversu djúpar holurnar yrðu að vera; bora yrði frá toppi Búrfells og yrði því hver hola 400 m djúp. Haustið 1961, er hinar neikvæðu niðurstöður lágu fyrir um virkjun á neðra stíflustæði, var Sætersmoen áætlunin tekin til athugunar að nýju og síðustu borholurnar þá um haustið voru boraðar í Sámsstaðamúla og við rætur hans. Engin kort voru þá til af efra svæðinu í stórum

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.