Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 34

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 34
58 TlMARIT VFl 1966 breksíu og tuffs, og er hægt að gefa þessum míllistigsbergtegundum ýmis nöfn, sem ekki verða rakin hér. Aldur bergs er oft notaður sem kortaeining. Hér á þessu korti eru tvær aldurseiningar, þ.e. hraun runnin eftir ísöld og sandur frá ísaldar- lokum. Hraunin, sem runnið hafa frá lokum síð- ustu ísaldar eru flest blágrýti og sennilega öll hraunin á meðfylgjandi korti. Eitt af hraunun- um, Sölvahraun, er runnið frá Heklusvæðinu en hin hraunin öll eru frá Veiðivatnasvæðinu og hafa verið nefnd Þjórsárhraun eða Tungnaár- hraun. Mun ég hér nota síðara nafnið sem sam- heiti á öllum þessum hraunum en Þjórsárhraun er notað um 2 þau elztu, sem lengst fóru niður með Þjórsá. 2.3 Moláberg. Molaberg eða setberg má flokka eftir sömu eiginleikum og gosbergtegundirnar. Efnasam- setning molabergs hér á landi er yfirleitt sú sama og gosbergtegundanna í kring, því það er berg sem hefur molnað niður og stundum flutzt til. Flokkun þess byggist því aðallega á kornastærð, myndunarmáta og aldri. Setberg flokkast eftir komastærð í leirstein, siltstein, sandstein, völuberg o.fl. Yfirleitt er bergið orðið til við framburð straumvatna út í stöðuvötn eða sjó, þó er völuberg oftast þurr- lendismyndun, sem hefur setzt til í rennandi vatni. Sandsteinn er langalgengasta setbergsteg- undin og er hann yfirleitt mjög ríkur af eld- fjallaösku svo hann líkist oft tuffi. Skriðuberg er mjög grófkornótt molaberg, sem setzt hefur til utan í hlíðum fjalla og runnið síðan saman í berg. Sandurinn frá lokum ísaldar hefur myndazt á sama hátt og sandsteinn, en er mun yngri. Þessi sandur er þó nokkuð samlímdur og eru hellamir á Rangárvöllum og í Holtum grafnir í slíka myndun. 2Jf Áhrif áldurs á berg. Frá verkfræðilegu sjónarmiði er aldur bergs mjög mikilvægur, því vaxandi aldri fylgja ýmsir æskilegir eiginleikar. Þannig minnkar vatnsleiðni bergsins með vaxandi aldri og samlíming vegna pökkunar og útfellinga eykst. Sérstaklega er það áberandi hjá setbergstegundum og móbergi hvað það verður traustara berg eftir því sem það eld- ist. Þetta á einnig við um millilög milli hrauna. Getur því sama kortaeiningin haft mjög mismun- andi eiginleika eftir aldri. Jarðsaga Búrfells- svæðisins tekur yfir 4—5 milljónir ára og er því mikill munur á elzta og yngsta bergi innan hverr- ar kortaeiningar. Sérstaklega er munurinn á mó- bergi mikill frá yngsta berginu, sem er austan Rangár og minna en 100.000 ára gamalt, til þess elzta við rætur Búrfells og Sámsstaðamúla, sem er a.m.k. 2-3 milljóna ára gamalt. Kortaeiningar á þessu korti eru ekki þær sömu eða samsvarandi kortaeiningum á jarð- fræðikorti af íslandi eftir Guðmund Kjartansson. Munurinn liggur í því að á jarðfræðikorti Guð- mundar eru tímaeiningar notaðar meira og telst þar berggrunnur vestan Þjórsár til sömu korta- einingar, sem er Eldri Grágrýtismyndun eða Hreppamyndun, nema hvað líparít er tekið sem sér kortaeining óháð aldri. Móbergið austan Rangár er þar talið móbergsmyndun, en allt mó- berg vestan Þjórsár er talið með eldri grágrýtis- myndun. 3. Jarðsaga berggrunnsins. 3.1 TJy'phaf jarðsögunnar. Jarðsaga Búrfellssvæðisins hefst fyrir 3-4 milljónum ára og þar hefur síðan verið ör jarð- myndun og niðurrif jarðmyndana á þessu svæði. Ég mun nú rekja þessa jarðsögu í höfuðdráttum. Elzta bergið er blágrýtið við rætur Búrfells að sunnan. Er það fjöldi frekar þunnra blágrýtis- laga og gjallbreksía. Þessi basaltlög hafa tölu- verðan halla til norðausturs og hallar þeim auð- sjáanlega mest allra laga á Búrfellssvæðinu. Engin ummerki eru um jökul eða jökulvatnaset í þessari myndun enda mun hún vera eldri en ísaldir á Islandi. 3.2 Blöndwð gos vestan Búrfells og Eldri Búrféllsmyndun. Næst í sögu svæðisins gerist það, að eldfjall með breytilegri bergkviku gýs í næsta nágrenni. Þetta eldf jall hefur gosið bæði basalt-, hparít- og andesithraunum og sjálfsagt vikri líka. Gosum þess hefur svipað til Heklugosa á síðustu árþús- undum. Rætur eldfjallsins mun að finna uppi í Fossárgljúfri. En hálfsúr og súr hraun sem eru runnin frá því eru í Fossöldu, Stangarfjalli, Skeljafelli og Sámsstaðamúla. Við Sámsstaða- múla köllum við þetta Eldri Búrfellsmyndun og er hana að finna á svæðinu austan undir Sáms- staðaklifi og í klifinu sjálfu. Er það þar mest andesit en einnig líparít og setmyndanir ríkar af líparítvikri. Venjulegt basalt er þar einnig, svo og mjög olivinríkt basalt með þéttum og stórum olivin kristöllum. 3.3 Dálamyndun og dálafylling. Sámsstaðamúlamyndun. Næsta stig í mótun Búrfellssvæðisins virðist vera það, að dalir hafi grafizt í myndanir þær
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.